Villa að stela Manzambi af Newcastle Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 13. júlí 2026 11:32 Johan Manzambi hefur skorað sex mörk í sextán landsleikjum fyrir Sviss. Þrjú þeirra komu á HM. getty/Emma Ottosen Svo virðist sem Aston Villa sé að stela svissneska miðjumanninum Johan Manzambi beint fyrir framan nefið á Newcastle United.
Manzambi sló í gegn á HM og skoraði þrjú mörk og lagði upp tvö áður en hann meiddist og missti af síðustu tveimur leikjum Svisslendinga á mótinu. Frammistaða Manzambis á HM, sem og með Freiburg á síðasta tímabili, vakti mikinn áhuga annarra félaga og Newcastle virtist hafa klófest miðjumanninn öfluga. Skjótt skipast veður í lofti og nú bendir allt til þess að Manzambi sé á leið til Villa. Félagið mun jafna 49 milljóna punda boðið sem Newcastle gerði Freiburg. Manzambi hafði náð munnlegu samkomulagi við Newcastle en ætlaði að bíða fram yfir HM með að taka lokaákvörðun um næsta áfangastað sinn á ferlinum. Hann virðist ætla að vera hjá Villa en hjá liðinu fær hann tækifæri til að spila í Meistaradeild Evrópu, eitthvað sem Newcastle getur ekki boðið honum. Villa veitir ekki af liðsstyrk á miðsvæðinu. Amadou Onana sleit krossband í hné í leik Belgíu og Bandaríkjanna í sextán liða úrslitum heimsmeistaramótsins og samherji hans, Youri Tielemans, virðist vera á leið frá Villa til Manchester United samkvæmt nýjustu fréttum. Manzambi, sem er tvítugur, var í lykilhlutverki hjá Freiburg sem komst í úrslit Evrópudeildarinnar á síðasta tímabili. Þar tapaði liðið fyrir væntanlegum verðandi samherjum Manzambis í Villa. Auk þess að vinna Evrópudeildina endaði Villa í 4. sæti ensku úrvalsdeildarinnar á síðasta tímabili.
Enski boltinn Aston Villa FC Newcastle United Mest lesið Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti „Enski boltinn er annar heimur“ Enski boltinn Grealish í agabanni hjá Everton Enski boltinn Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Fótbolti Fleiri fréttir Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Brentford bjargaði United frá fallsæti Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Sjáðu mörkin: Varnarmenn United eins og keilur og rautt spjald Martínez Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Carragher biðst afsökunar: „Klaufalegt og rangt“ Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Grealish í agabanni hjá Everton Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað „Enski boltinn er annar heimur“ „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Verða án Sesko fram í janúar „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea Sjá meira