Hver stjórnar ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur? Júlíus Valsson skrifar 9. júlí 2026 11:30 Forsætisráðherra á að leiða ríkisstjórn sína. Sá sem lendir í því hlutverki að reka á eftir sterkari samráðherra, eða afsaka gjörðir hans frammi fyrir þjóðinni, glímir ekki lengur við venjulegan innanbúðarágreining. Þá er sjálf forysta hans komin undir smásjána og um leið pólitísk framtíð hans. Ríkisstjórn Jóhannu og Steingrímsr, lærdómsríkur samanburður Samanburður á Jóhönnu Sigurðardóttur og Kristrúnu Frostadóttur er lærdómsríkur að þessu leyti. Þær eiga það sameiginlegt að hafa orðið forsætisráðherrar Samfylkingarinnar í samsteypustjórnum þar sem ráðherra samstarfsflokks tók sér óvenjumikið svigrúm til að móta stefnuna og að hafa mátt gjalda þess. Jóhanna tók við völdum eftir bankahrunið, við aðstæður sem enginn íslenskur forsætisráðherra hafði áður kynnst. Í stjórn hennar óx Steingrímur J. Sigfússon fljótt upp fyrir hefðbundið hlutverk fjármálaráðherra. Á árunum 2009 til 2011 hélt hann um ríkisfjármálin, Icesave-samningana og samskiptin við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn. Þótt Jóhanna væri andlit ríkisstjórnarinnar út á við lá aflið að verulegu leyti hjá honum. Hún bar ábyrgðina, en þurfti í sífellu að taka tillit til klofinna Vinstri grænna og þess neitunarvalds sem Steingrímur hafði í reynd. Í ESB-málinu talaði stjórnin aldrei einni röddu. Afleiðingarnar komu í ljós vorið 2013, þegar fylgi Samfylkingarinnar hrundi úr tæpum þrjátíu prósentum niður í tæp þrettán. Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur. Sama mynstrið Nú má greina sama mynstur, og raunar skýrara. Í stærsta máli ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur, þjóðaratkvæðagreiðslunni um „aðildarviðræður“ við Evrópusambandið sem fram fer 29. ágúst, hefur Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir tekið sér aðalhlutverkið. Það var hún sem mælti fyrir tillögunni á Alþingi (þrátt fyrir valdþurrð hennar í því máli) , hún ber hitann og þungann af umræðunni þar og í fjölmiðlum, og hún hefur jafnvel sótt afar umdeilda erlenda ráðherra til landsins til að styrkja málstaðinn. Afskipti hennar hafa þó náð lengra en til umræðunnar einnar. Upphaflega stóð til að spyrja þjóðina hvort „halda ætti áfram“ viðræðum, orðalag sem gaf sér umdeilda forsendu um stöðu umsóknarinnar. Landskjörstjórn gerði þungorðar athugasemdir við tillöguna og taldi spurninguna leiðandi í eðli sínu. Eftir ábendingar Feneyjanefndarinnar var orðalaginu að lokum breytt. Ekki er hægt að ganga til slíkra viðræðna við ESB án formlegrar umsóknar um aðild Íslands. Utanríkisráðherra reyndi með öðrum orðum að hafa hönd í bagga með sjálfum kjörseðlinum. Frá forsætisráðherranum heyrðist á meðan þessu stóð hvorki hósti né stuna. Hver stjórnar ríkisstjórninni? Það er reginmunur á formlegri forystu og raunverulegri. Kristrún hefur enn ekki sagt þjóðinni hvort hún vilji að Ísland gangi í Evrópusambandið. Hún kveðst ætla að bíða eftir „samningi“ áður en hún tekur afstöðu. Forsætisráðherra sem sendir þjóðina í atkvæðagreiðslu um framtíð fullveldisins, en treystir sér ekki til að svara spurningunni sjálf, hefur um leið svarað annarri og stærri spurningu: Hver ræður för? Samanburðurinn við Jóhönnu er Kristrúnu ekki í hag. Jóhanna stjórnaði í skugga hrunsins og gat með nokkrum rétti vísað til neyðarástands. Kristrún hefur enga slíka afsökun. ESB-málið er pólitískt val sem hún skrifaði sjálf undir í stjórnarsáttmála, eða öllu heldur leyfði samstarfsflokknum að skrifa fyrir sig. Kjósendur krefjast sterkrar forystu Stjórnmál fyrirgefa sjaldan slíkan vanmátt. Kjósendur geta sætt sig við mistök og jafnvel óvinsælar ákvarðanir, svo fremi sem þeir telji að leiðtoginn standi uppréttur og beri ábyrgð á eigin verkum. Þeim reynist hins vegar erfitt að treysta forsætisráðherra sem virðist ekki hafa stjórn á eigin ríkisstjórn. Einungis sjö vikur eru nú til stefnu og enn veit þjóðin ekki hvað forsætisráðherra hennar vill. Jóhanna varð háð Steingrími og greiddi fyrir það hátt verð. Kristrún er orðin háð Þorgerði Katrínu. Takist henni ekki að endurheimta forystuna í málinu verður hún á endanum dæmd af því hvort hún hafi nokkru sinni haft stjórn á ferlinu, hver sem niðurstaðan verður 29. ágúst. Vantraust sem áður beindist að aðildarferlinu færist þá yfir á forsætisráðherrann sjálfan. Þegar svo er komið hangir pólitísk framtíð hans á bláþræði. Höfundur er læknir og fullveldissinni. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Júlíus Valsson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Nei er ókei Ágúst Valves Jóhannesson skrifar Skoðun Hvað ef? Pétur B. Sveinsson skrifar Skoðun Húsnæðisvextir lækka ekki sjálfkrafa með evru Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Mun ESB hjálpa við vegagerð á Íslandi? Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Við erum í partíinu en megum ekki velja lag Árni Páll Jónsson skrifar Skoðun Með öllum mjalla? Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Fyrsti steinninn úr múrnum – af hverju ég segi já Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir skrifar Skoðun Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Til hvers var þá barist? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Skynsamleg röð hlutanna Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Græða fyrirtæki á verðbólgu? Konráð S. Guðjónsson skrifar Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson skrifar Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Sjá meira
Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar