Verum góð við hvort annað Eva Pandora Baldursdóttir skrifar 9. júlí 2026 11:01 Margir halda að góð sambönd séu heppni. Sumir trúa því að maður hitti „réttu manneskjuna“ og þurfi svo ekki að gera mikið meira. En raunveruleikinn er aðeins flóknari. Sterk og hamingjusöm sambönd snúast ekki um að vera fullkomin eða passa fullkomlega saman. Þau byggjast á ákveðinni færni, góðum samskiptum og venjum sem allir geta lært og æft sig í. Rannsóknir síðustu ára sýna að gæði sambandsins ráðast ekki af því hversu mörg sameiginleg áhugamál pör eiga eða hversu sjaldan þau rífast. Miklu meira máli skiptir hvernig þau koma fram við hvort annað dags daglega. Oft skipta smáatriðin í hversdagsleikanum meira máli en stórar rómantískar yfirlýsingar. Það hefur mikil áhrif hvernig við hlustum á makann þegar hann segir okkur frá deginum sínum, hvernig við tökumst á við ágreining og hvort við sýnum virðingu og áhuga á hverjum degi. Ein áhrifamesta rannsóknin á þessu sviði er eftir bandarísku sálfræðingana John Gottman og Julie Schwartz Gottman. Þau hafa í yfir fjörutíu ár rannsakað þúsundir para til að svara spurningunni: Hvað gerir sum sambönd sterk en önnur ekki? Niðurstöður þeirra urðu grunnurinn að því sem kallast Gottman Method. Þetta er aðferð sem byggir á rannsóknum á raunverulegum pörum, ekki bara hugmyndum um hvernig sambönd „ættu“ að vera. Ein mikilvægasta niðurstaðan úr rannsóknum þeirra er að hamingjusöm pör rífast líka. Ágreiningur er eðlilegur hluti allra sambanda. Það sem skiptir mestu máli er hvernig við tölum saman þegar við erum ósammála. Það er vegna þess að um 69% ágreiningsmála í langtímasamböndum eru varanleg og munu aldrei „leysast”. Markmiðið er heldur ekki að losna við allan ágreining heldur að læra að takast á við hann af virðingu og skilningi. Gottman hjónin hafa líka bent á fjögur samskiptamynstur sem geta smám saman skaðað sambandið ef þau verða of algeng. Þau kalla þetta The Four Horsemen of The Apocalypse. Riddararnir fjórir eru: gagnrýni (e. criticism), fyrirlitning (e. contempt), vörn (e. defensiveness) og tilfinningaleg lokun (e. stonewalling). Það er ekki hræðilegt ef þetta gerist af og til. Flest pör kannast alveg við það en ef þetta verður að vana getur það grafið undan sambandinu með tímanum. Á móti leggja Gottman hjónin áherslu á að sterk og góð sambönd einkennast af vináttu, trausti, forvitni og því að pör snúi sér hvort að öðru í litlum augnablikum hversdagsins. Það eru sjaldnast rómantísku instagram augnablikin eða flottu gjafirnar sem halda sambandinu gangandi heldur þetta dagsdaglega eins og að hlusta af athygli, sýna áhuga, bregðast hlýlega við og láta makann finna að hann skipti máli. Eitt það mikilvægasta sem rannsóknir Gottman hjónanna hafa kennt okkur er að það vex sem við vökvum. Farsæl sambönd eru ekki eitthvað sem gerist af sjálfu sér. Við ræktum þau alla daga með litlum ákvörðunum um hvernig við komum fram við hvort annað. Höfundur er sambands- og kynlífsráðgjafi, MSc Sexual Psychology & Sexual Therapy Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Eva Pandora Baldursdóttir Mest lesið Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Fólkið eða peningarnir? Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Stöndum vörð um...hvað? Ingibjörg Rósa Björnsdóttir skrifar Skoðun Hvaða ákvæði læknasamningsins voru mistök? Steinunn Þórðardóttir skrifar Skoðun Fullveldi hvað Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Nei er ókei Ágúst Valves Jóhannesson skrifar Skoðun Hvað ef? Pétur B. Sveinsson skrifar Skoðun Húsnæðisvextir lækka ekki sjálfkrafa með evru Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Mun ESB hjálpa við vegagerð á Íslandi? Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Við erum í partíinu en megum ekki velja lag Árni Páll Jónsson skrifar Skoðun Með öllum mjalla? Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Fyrsti steinninn úr múrnum – af hverju ég segi já Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir skrifar Skoðun Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Til hvers var þá barist? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Skynsamleg röð hlutanna Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Græða fyrirtæki á verðbólgu? Konráð S. Guðjónsson skrifar Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson skrifar Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar