Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Atli Ísleifsson skrifar 9. júlí 2026 08:37 Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri Bláa lónsins. Bláa lónið Bláa lónið hf. hefur samið um aukningu á eignarhlut sínum í Norðurböðum ehf. sem eru hluthafi í Jarðböðunum á Mývatni og Sjóböðunum á Húsavík. Jarðböðin eru jafnframt hluthafi í Vök á Egilsstöðum.
Í tilkynningu frá Bláa lóninu segir að kjarnastarfsemi þessara félaga sé rekstur baðlóna. Markmið viðskiptanna sé að styrkja grunnrekstur Bláa lónsins hf. á fjölbreyttum áfangastöðum á Íslandi og auka áhættudreifingu í rekstri félagsins. Fram kemur að Bláa lónið hafi frá upphafi staðið í fararbroddi í uppgangi baðlónsmenningar á Íslandi. Kaupin séu markviss liður í áformum félagsins um áframhaldandi áherslu á hágæða upplifun og vellíðan í vexti félagsins til framtíðar víða um land. Haft er eftir Sigríði Margréti Oddsdóttur, forstjóra Bláa lónsins, að uppbygging baðlóna á Íslandi hafi verið einn helsti vaxtarsproti ferðaþjónustu allt frá stofnun Bláa lónsins og skýr sérstaða landsins sem áfangastaðar. „Bláa lónið hefur fjárfest í einstökum áfangastöðum víða um land og staðirnir þrír eiga það allir sameiginlegt að hafa sína eigin sögu að segja. Um leið endurspegla þeir þau miklu gæði afþreyingar og vellíðunar sem Bláa lónið hefur lagt áherslu á og falla því vel að vörumerki félagsins. Við sjáum af mánaðarlegum könnunum sem við gerum að þrír fjórðu ferðamanna heimsækja baðlón á meðan á dvöl þeirra á Íslandi stendur. Árangur Bláa lónsins hefur veitt fjölmörgum innblástur og er rekstur baðlóna í dag mikilvægur þáttur í sérstöðu og styrkleika landsins sem áfangastaðar“ segir Sigríður Margrét. Í tilkynningunni segir að kaupin séu gerð með fyrirvara um samþykki hluthafafundar Bláa lónsins hf. og Samkeppniseftirlitsins. „Nái viðskiptin fram að ganga mun Bláa Lónið hf. eiga meirihluta í Norðurböðum. Áður hafði félagið tryggt sér meirihluta í Fontana á Laugarvatni. Bláa Lónið undirbýr nú skráningu á íslenskan hlutabréfamarkað. Landsbankinn og Fossar fjárfestingarbanki eru umsjónaraðilar útboðsins,“ segir í tilkynningunni.
Bláa lónið Sundlaugar og baðlón Kaup og sala fyrirtækja Múlaþing Þingeyjarsveit Ferðaþjónusta Tengdar fréttir Bláa lónið festir kaup á Arctic Adventures og stefnir á markað Bláa lónið hefur fest kaup á ferðaþjónustufyrirtækinu Arctic Adventures og er stefnt að samruna fyrirtækjanna. Þá hefur Bláa lónið hafið formlegan undirbúning að skráningu félagsins á íslenskan hlutabréfamarkað. 16. júní 2026 14:05 Mest lesið Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Viðskipti innlent Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Viðskipti innlent Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Viðskipti innlent Dóra Björt ráðin deildarstjóri Viðskipti innlent Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Viðskipti innlent Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Viðskipti innlent Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Viðskipti innlent Kristinn V. Jóhannsson er látinn Viðskipti innlent Olíuverð hækkar um rúm fimm prósent í kjölfar ummæla Trumps Viðskipti erlent Epli opnar nýja og glæsilega verslun í Smáralind Samstarf Fleiri fréttir Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Kristinn V. Jóhannsson er látinn Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Sjá meira
Bláa lónið festir kaup á Arctic Adventures og stefnir á markað Bláa lónið hefur fest kaup á ferðaþjónustufyrirtækinu Arctic Adventures og er stefnt að samruna fyrirtækjanna. Þá hefur Bláa lónið hafið formlegan undirbúning að skráningu félagsins á íslenskan hlutabréfamarkað. 16. júní 2026 14:05
Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Viðskipti innlent
Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Viðskipti innlent