Erlent

Sprengja sprakk við hótel Macron í Damaskus

Kjartan Kjartansson skrifar
Ahmad al-Sharaa, forseti Sýrlands (t.h.) með Emmanuel Macron, forseta Frakklands, í Damaskus í morgun.
Ahmad al-Sharaa, forseti Sýrlands (t.h.) með Emmanuel Macron, forseta Frakklands, í Damaskus í morgun. AP/Ghaith Alsayed

Emmanuel Macron, forseti Frakklands, er sagður heill á húfi eftir að sprengja sprakk nærri hóteli hans í Damaskus í Sýrlandi þar sem hann er í opinberri heimsókn.

Sýrlenskir ríkisfjölmiðlar segja að tvær sprengjur hafi sprungið í miðborg höfuðborgarinnar. Þær eru sagðar hafa sprungið nærri Four Seasons-hótelinu þar sem Macron dvelur í heimsókn sinni.

Myndir sem deilt var á samfélagsmiðlum sýna brennandi bifreið og blóðbletti á götunni, að sögn AP-fréttastofunnar.

Macron var kominn inn í forsetahöllina í Damaskus til fundar við Ahmad al-Sharaa, forseta Sýrlands, þegar sprengjan sprakk. Embætti Frakklandsforseta segir að hann sé óhultur og að heimsókn hans haldi áfram.

Að minnsta kosti tíu létust og tuttugu særðust þegar sprengja sprakk á kaffihúsi í Damaskus fyrir örfáum dögum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×