Ekki hægt að fullyrða að lækkunin hafi skilað sér Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 2. júlí 2026 10:35 Álagning á bensín og dísel hefur hækkað undanfarin ár. Vísir/Vilhelm Ekki er hægt að fullyrða að virðisaukaskattslækkun eldsneytis hafi í öllum tilvikum skilað sér að fullu í endanlegu útsöluverði þess samkvæmt nýju umræðuskjali Samkeppniseftirlitsins. Ýmsum spurningum sé enn ósvarað. Einhver olíufélög hækkuðu verðið dagana fyrir gildistöku skattalækkunarinnar.
Samkeppniseftirlitið hefur birt umræðuskjal um þróun eldsneytismarkaðar hér á landi og áhrif breytinga á opinberum gjöldum og virðisaukaskatti á eldsneyti. Skjalið byggir á ítarlegri gagnaöflun frá olíufélögum og greiningu Samkeppniseftirlitsins á þeim. „Í gögnunum kemur fram að álagning á bensíni og dísel hefur hækkað verulega á síðustu árum og að verðmunur á Íslandi og öðrum Evrópuríkjum hafi aukist á síðustu árum. Jafnframt bendir greiningin til þess að fyrri ályktanir Samkeppniseftirlitsins um fákeppnisaðstæður og vísbendingar um þegjandi samhæfingu á eldsneytismarkaði eigi enn við,“ segir í fréttatilkynningu frá eftirlitinu. Eftir að ný lög um virðisaukaskatt og samkeppnislög, sem fela í sér lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti, voru samþykkt á Alþingi var Samkeppniseftirlitinu gert skylt að hafa eftirlit með því að lækkunin skili sér til neytenda. Hækkuðu verðið rétt fyrir gildistöku „Greiningin bendir meðal annars til verðhækkana hjá sumum olíufélögum rétt fyrir gildistöku skattalækkunarinnar og hækkandi álagningar eftir 1. maí,“ segir í tilkynningunni. Eftirlitið óskað eftir frekari skýringum frá viðkomandi olíufélögum og mun síðan taka afstöðu til þess hvort tilefni sé til frekari aðgerða. „Þá bendir greiningin til þess að innlent eldsneytisverð hafi fylgt hækkunum á heimsmarkaðsverði betur en lækkunum þess. Að mati Samkeppniseftirlitsins gefur sú þróun, ásamt öðrum niðurstöðum umræðuskjalsins, tilefni til frekari rannsóknar á verðmyndun eldsneytis hér á landi.“ Umræðuskjal_SamkeppniseftirlitsinsPDF5.9MBSækja skjal Samkeppniseftirlitið óskar eftir sjónarmiðum fyrirtækja, hagsmunaaðila og almennings. Einnig er óskað eftir ábendingum um möguleg brot á samkeppnislögum, aðrar samkeppnishindranir, hindranir af hálfu hins opinbera og hugmyndum að aðgerðum sem gætu stuðlað að virkari samkeppni og lægra eldsneytisverði.
Bensín og olía Samkeppnismál Mest lesið Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Viðskipti innlent Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Viðskipti innlent Drangar kaupa Brauð & Co Viðskipti innlent Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Viðskipti innlent Nýr 40/40 listi: Yngri stjórnendur hógværir og gamli leiðtogastíllinn að víkja Atvinnulíf Má gefa börnunum sínum peninga? Viðskipti innlent Á bak við stórar framkvæmdir eru stórar vélar Samstarf Thule lækkar í prósentu Neytendur Bylgjan slær enn met í hlustun Samstarf Mango opnar í Kringlunni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Vélfagsmenn fóru bónleiðir til búðar frá Hæstarétti Setja 630 milljónir í að markaðssetja Ísland sem áfangastað Atvinnuleysi 5,6 prósent í maí Hagnaður Samherja nam um 8,5 milljörðum Stefna að uppbyggingu baðlóns og hótels í Grundarfirði Hafa samið um aukin raforkukaup á Blönduósi Ráðnir forstöðumenn hjá OK Sjá meira