Viðskipti innlent

Drangar kaupa Brauð & Co

Áróra L Davíðsdóttir skrifar
Sigurður Máni Helguson, framkvæmdastjóri, Viðar Brink, markaðsstjóri, og Jón Anton Bergsson, yfirbakari Brauð & Co.
Sigurður Máni Helguson, framkvæmdastjóri, Viðar Brink, markaðsstjóri, og Jón Anton Bergsson, yfirbakari Brauð & Co. Drangar

Drangar hafa gengið frá kaupum á Brauð & Co, einn þekktustu bakarískeðju landsins.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Dröngum. Þar segir að samningur sé gerður með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins. Brauð & Co. reka átta bakarí á höfuðborgarsvæðinu.

Félagið hafi skilað hagnaði á rekstrarárinu 2025 og ársvelta félagsins sé rúmlega einn og hálfur milljarður króna. Kaupverðið verði greitt með hlutabréfum í Dröngum og reiðufé.

„Frá stofnun hefur Brauð & Co. skapað sér sérstöðu á íslenskum markaði með súrdeigsbrauði, fersku bakkelsi og metnaðarfullri vöruþróun. Vörumerkið nýtur mikillar virðingar meðal neytenda og hefur orðið eitt sterkasta vörumerki landsins á sínu sviði,“ segir í tilkynningunni.

Brauð & Co. á Frakkastíg, eitt vinsælasta bakarí miðborgarinnar.Drangar





Fleiri fréttir

Sjá meira


×