Viljum við kvótavæða sjókvíaeldið? Gunnlaugur Stefánsson skrifar 29. júní 2026 09:00 Nýr atvinnuvegaráðherra ákvað að draga upp úr skúffu embættismanna gamalt frumvarp um lagareldi og flytja á Alþingi, sem raðherra Vinstri grænna í gömlu ríkisstjórninni hafði flutt, en náði ekki í gegn vegna þess að það var meingallað og svaraði á engan hátt lámarkskröfum um náttúrvernd. Frumvarpið hafði að megin tilgangi að kvótavæða opna sjókvíaeldið og gefa þar með útlendingum til eilífðar firði og flóa landsins til að rækta lax í opnum netpokum með allri þeirri mengun sem fylgir auk erfðablöndunar við villta laxastofna. Upphafið að endurskoðun gildandi laga um sjókvíaeldið var harðorð úttekt Ríkisendurskoðunar á stjórnsýslunni um sjókvíaeldið. En frumvarpið bregst á engan hátt við þeirri gagnrýni og Ríkisendurskoðun tæpast nefnd í greinargerð frumvarpsins. Þegar ný ríkisstjórn tók við völdum, þá hafði fólk væntingar um nýja tíma, opna og gegnsæja stjórnsýslu, að leitað yrði sátta í viðkvæmum deilumálum og hefja umhverfisvernd til virðingar í sátt við öflugt atvinnulíf. Það var því algjört stílbrot, að nýr atvinnuvegaráðherra skyldi draga gamla lagareldisfrumvarpið upp úr embættismannaskúffunni og flytja nánast óbreytt aftur. Að vísu var eina veigamikla breytingu að finna. Gamla frumvarpið hafði kveðið á um að lögfesta friðunarsvæði gagnvart eldinu. Það ákvað ráðherrann að taka út úr frumvarpinu þannig að í raun var allur sjór umhverfis landið í boði fyrir eldið, nema ráðherra ákveði annað. Lyktir frumvarpsins urðu aftur þau, að málið dagaði uppi í þinginu af því að mörgum alþingismönnum var misboðið. Í raun er þetta frumvarp umgjörð yfir kvótavæðingu sjókvíaeldisins að fyrirmynd úr fiskveiðistjórnunarkerfinu með heimild um að leigja, framselja og veðsetja, kvótinn sjálfstæð eign með hlutdeild í heildarframleiðslu. Orðréttar setningar eru fengnar að láni úr fiskveiðistjórnunarlögum og látnar gilda um eignarhaldið á kvótanum í sjókvíaeldinu líka. Hvergi í veröldinni gildir slík kvótavæðing um sjókvíaeldi, hefur ekkert með náttúrvernd eða atvinnusköpun að gera, en býr til verðmæti og skapar einokun fyrir eigendurna úr ríkisgjöf til að braska með í viðskiptum. Því er haldið fram af málshefjendum að þetta sé í fínu lagi af því að ströng ákvæði gilda eins og girðingar með tengingu við leyfin og líkt við “belti og axlabönd”. Þessum málflutningi var líka beitt af hörku þegar framsalið í fiskveiðikvótanum var samþykkt á Alþingi árið 1990, en hefur aldrei haldið af því að fljótt fundust hjáleiðir til að vanvirða það. Engar fréttir berast af því að ríkið innkalli fiskveiðikvóta af því að girðingarnar virki. Einn er þó munur á eignarhaldi kvótans. Útlendingum er bannað að eiga nema brot í einstökum fiskveiðikvóta, en í frumvarpinu um sjókvíaeldið eru engar slíkar takmarkanir að finna, enda eiga útlendingar meirihluta í fyrirtækjarekstri sjókvíaeldis á Íslandi. Allt í einu er í fínu lagi að gefa útlendingum, og til eilífðar, firði og flóa landsins til að rækta norskan, frjóan lax með allri þeirri mengun sem fylgir og þurfa enga ábyrgð að bera samkvæmt frumvarpinu á þeim skaða sem það veldur á lífríkinu. Svo yrði heimilt að braska með sjókvíaeldiskvótann á útlenskum markaðstorgum. Afhverju eiga að gilda aðrar kröfur um eignarhald á kvótanum í sjókvíaeldinu en á fisveiðkvótanum? Þetta er ekki síður alvarlegt í ljósi þess, að hvergi í veröldinni hefur tekist að rækta lax í opnu pokaeldi án þess að eyða villtum laxastofnum og stórskaða lífrikið í nágrenni við eldið. Þetta eru vísindalegar staðreyndir. Í Noregi hefur reynslan af opna pokaeldinu verið skelfileg. Þar er nú mál að linni og samkomulag um að engin ný leyfi verði gefin út fyrir opna eldið. Áhersla er lögð á að útsetja lokaðar kvíar sem standast kröfur um náttúrvernd. Þá hefur orðið til öflugt eldi í Kanada með geldfisk. Opna netpokaeldið er úrelt framleiðslutækni og algjör tímaskekkja og viðbúið fyrr en seinna að verði bannað með alþjóðalögum. Nú þarf öflug ríkisstjórn að vakna til verka í anda nútímans, undirbúa nýtt frumvarp sem tekur mið af þeim sjálfsögðu kröfum sem gerðar eru til nýsköpunar og náttúrverndar og verði gert í samráði við alla hagaðila. Það er óboðlegt að hjakka áfram í sama farinu sem endar í þroti fyrir alla. Besta framlag í boði fyrir atvinnulífið á Vestfjörðum og samfélagið á Djúpavogi, sem eiga mikið undir sjókvíaeldinu, er að eldið verði nútímavætt og standist kröfur tímans. Höfundur er fyrrverandi alþingismaður og sóknarprestur í Heydölum í Breiðdal Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sjókvíaeldi Gunnlaugur Stefánsson Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Já við fleiri verkfærum fyrir byggðir landsins Arna Lára Jónsdóttir Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Hver ætlar að hafa augun á boltanum? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar