Íran gerir árásir á Barein og Kúveit í kjölfar árása Bandaríkjanna Freyja Þórisdóttir skrifar 28. júní 2026 12:12 Íran gerði meðal annars flugskeytaárás á höfuðstöðvar fimmta flota bandaríska sjóhersins í Manama, Barein, til að hefna fyrir árásir Bandaríkjanna og Ísraels. Getty Enn eykst spenna í Mið-Austurlöndum en Íslamska byltingarvarðliðið í Íran (IRGC) hefur staðfest dróna- og loftskeytaárásir á Barein og Kúveit. Árásirnar hafi beinst að flugstöð Bandaríkjanna í Kúveit og flota Bandaríkjanna í Barein en hersveitir Bandaríkjahers héldu árásum sínum áfram og skutu á írönsk skotmörk í gær, laugardaginn 27. júní.
Vopnahléi sem báðir aðilar samþykktu fyrr í mánuðinum hefur verið stefnt í algjöra óvissu með árásunum og hafa erlendar fréttaveitur á borð við AP og Al Jazeera greint frá því að samkomulagið sé undir miklu álagi. Tilraunir til að opna Hormússund aftur „án beins eftirlits Írans“ hafi leitt til skotbardaga sem nú geisi á svæðinu og stofnað samningaviðræðum um varanlegt vopnahlé í hættu. Þá er meðal annars haft eftir Donald Trump Bandaríkjaforseta, sem skrifaði á Truth Social seint í gærkvöldi, að Teheran hefði brotið vopnahléssamkomulagið. „Það gæti komið að því að við getum ekki lengur verið sanngjörn og neyðumst til að ljúka með hernaðarafli því verki sem við hófum með svo miklum árangri,“ skrifaði hann í færslunni og bætti við: „Ef það gerist mun Íslamska lýðveldið Íran ekki lengur vera til!“ Yfirlýsingar þess efnis að árásirnar brjóti í bága við fullveldi ríkjanna hafa jafnframt verið gefnar út af ráðamönnum í Barein og Kúveit. Leiði til versnandi ástands Lengi hefur verið litið á Hormússund sem alþjóðlega siglingaleið, þrátt fyrir að það sé innan landhelgi Írans og Ómans. Undanfarna daga hefur Íran tvisvar ráðist á skip sem fara um leið Ómanmegin við sundið, að því er segir í frétt AP. Íran krefst þess að hafa eitt stjórn á umferð um sundið, en þar fór um árabil fram um fimmtungur allrar olíu- og jarðgasflutninga heims. Abbas Araghchi, utanríkisráðherra Írans, ítrekaði þá kröfu í opinberri heimsókn til Íraks í dag, sunnudaginn 28. júní. „Allar nýjar vendingar munu leiða til versnandi ástands og einnig seinka opnun sundsins. Það mun einnig auka spennustigið,“ er haft eftir honum í frétt AP. Hann sagði jafnframt að enginn annar aðili ætti að skipta sér af og hvatti alla aðila til að virða skuldbindingar sínar samkvæmt viljayfirlýsingunni, ella myndi hún „fara út af sporinu“. Samkvæmt viljayfirlýsingunni, sem undirrituð var fyrr í þessum mánuði, hafa Bandaríkin og Íran 60 daga til að ganga frá endanlegu samkomulagi.
Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Bandaríkin Íran Skipaflutningar Hernaður Tengdar fréttir Fyrstu lotu friðarviðræðna Bandaríkjanna og Íran lokið Fyrstu samningalotu Bandaríkjanna og Írans um að ná endanlegu samkomulagi til að binda enda á stríðið lauk snemma í morgun, mánudag. Viðræðurnar hófust í gær í Sviss, í kjölfar samkomulags Bandaríkjanna og Írans í síðustu viku. Tæknilegar viðræður munu halda áfram alla vikuna en áframhaldandi átök í Líbanon eru sögð hafa veruleg áhrif. 22. júní 2026 06:35 Mest lesið Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Erlent Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair Erlent Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Erlent Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Erlent Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Innlent Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Innlent „Ég hafna samningi þeirra“ Erlent Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Innlent Þyrlan lenti við Hörpu Innlent Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Innlent Fleiri fréttir Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Sjá meira
Fyrstu lotu friðarviðræðna Bandaríkjanna og Íran lokið Fyrstu samningalotu Bandaríkjanna og Írans um að ná endanlegu samkomulagi til að binda enda á stríðið lauk snemma í morgun, mánudag. Viðræðurnar hófust í gær í Sviss, í kjölfar samkomulags Bandaríkjanna og Írans í síðustu viku. Tæknilegar viðræður munu halda áfram alla vikuna en áframhaldandi átök í Líbanon eru sögð hafa veruleg áhrif. 22. júní 2026 06:35