„Fólk sem er á bið á ekki að vera þjónustulaust“ Smári Jökull Jónsson skrifar 27. júní 2026 19:02 Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir er formaður velferðarráðs Reykjavíkurborgar. Vísir/Vilhelm Formaður velferðarráðs Reykjavíkurborgar segir að breyta þurfi algjörlega hvernig NPA-þjónusta sveitarfélaga sé fjármögnuð og núrverandi staða sé óásættanleg. Þá séu tækifæri til að bæta aðra þjónustu við fólk með fötlun.
Í vikunni var greint frá máli manns sem fær ekki NPA-þjónustu þrátt fyrir að umsókn hans hafi verið samþykkt fyrir sjö mánuðum. Notendastýrð persónuleg þjónusta, eða NPA er lögfest á Íslandi. Formaður velferðarráðs Reykjavíkurborgar segir kerfisvanda á bakvið fjármögnun þjónustunnar. „Ég held við eigum ekki að vera með kerfi sem er háð fjárhagsáætlun hverju sinni, hvort sem það er hjá ríki eða sveitarfélaginu. Heldur eigi þetta bara að vera pottur sem er byggður á traustum og sjálfbærum grunni sem er bætt í jafnt og þétt,“ segir Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir sem nýlega tók við sem formaður velferðarráðs. „Þannig að um leið og þú ert kominn með þessi réttindi að þá sé fyrirsjáanlegt hvenær þjónustan hefst og hvernig hún er fjármögnuð. Mér finnst við þurfa að breyta algjörlega um það hvernig við erum að fjármagna þessa þjónustu.“ Fjörtíu manns bíða eftir samþykkt Hún segir að um 40 samningar um NPA-þjónustu bíði samþykktar hjá borginni. Um sé að ræða kerfi sem búi til biðlista sem hafi frá upphafi verið vanfjármagnað. „Við höfum bara mikinn metnað um að tryggja þjónustu þannig að fólk sé ekki fast á biðlistum. Það sem við ætlum að gera í raun og veru er að fara strax í samstarf við sambandið og ríkið um að endurskoða hvernig þetta er fjármagnað þannig að þetta sé sannarlega fjármagnað.“ Hún segir að ekki eigi að horfa í hvort þjónustan sé dýr, ágreiningur snúi að fjármögnun. „Hún er ekki ódýr en hún endurspeglar bara nákvæmlega hvernig það er að vera með menneskju í vinnu í x margar klukkustundir á viku og mikla þjónustu. Ef við lítum til þess síðan að fólk sem fær NPA-þjónustu getur farið í vinnu og jafnvel menntað sig. Við eigum bara að tryggja þessa þjónustu,“ segir Ragnhildur Alda. „Greinilega mikið af tækifærum til að bæta þá þjónustu“ Aðspurð hvað sé hægt að gera til að bregðast við strax segir hún að tækifæri séu til að bæta þjónustu við fatlaða víðar, til dæmis í heimaþjónustu. „Fólk sem er á bið á ekki að vera þjónustulaust. Það er að fá þjónustu á öðrum þrepum og það er greinilegt að það er mikið af tækifærum til þess að bæta líka þá þjónustu.“ „Þegar ég hugsa um hvernig við ætlum að tækla þetta mál núna, þá er það ekki bar aað fara í róttækar breytingar á fjármögnun NPA heldur líka að skoða alla þjónustuna í heild sinni. Þannig að þegar fólk er að bíða eftir NPA eða einhverri annarri þjónustu, sem getur gerst, þá sé sú þjónustu sem þau eru að fá alveg í lagi og á þann hátt sem við viljum veita hana.“
Málefni fatlaðs fólks Reykjavík Félagsmál Mest lesið Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Erlent Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair Erlent Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Erlent Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Innlent Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Erlent Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Innlent Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Innlent „Ég hafna samningi þeirra“ Erlent Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Innlent Tómas kominn aftur til starfa Innlent Fleiri fréttir Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Fluttur til aðhlynningar eftir umferðarslys Tortímir gervigreindin mannkyninu? „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Sjá meira