Telur „gusumeistara“ hafa sölsað undir sig eign borgarinnar Kjartan Kjartansson skrifar 26. júní 2026 13:22 Vala Baldursdóttir (t.v.) opnaði gufubað í grásleppuskúr sem Reykjavíkurborg gerði upp fyrir nokkrum árum. Gufubaðið er í svarta skúrnum á miðri myndinni hægra megin. Borgarlögmaður telur að Reykjavíkurborg þurfi að fara í hart til þess að stöðva rekstur gufubaðs í grásleppuskúr á Ægisíðu sem yfirlýstur „gusumeistari“ hafi sölsað undir sig. Hann telur fyrri eiganda og gufubaðsstjórann ekkert tilkall eiga til skúrsins.
Vala Baldursdóttir hefur selt aðgang að gufubaði í grásleppuskúr við Ægisíðu í Reykjavík sem hún kallar Sækot. Fyrir einn og hálfan tíma þurfa áhugasamir að reiða fram sjötíu þúsund krónur en skúrinn er sagður geta tekið á móti allt að átján manns í senn. Að áliti borgarlögmanns er skúrinn hins vegar alls ekki í eigu Völu heldur Reykjavíkurborgar. Í minnisblaði borgarlögmanns sem var lagt fyrir borgarráð í gær kemur fram að Vala eigi ekkert tilkall til skúrsins. Ítrekað hafi verið reynt að gera henni grein fyrir því munnlega og skriflega en án árangurs. Borgarlögmaður telur önnur úrræði eða lausnir en dómsmál óákjósanlegar eða ólíklegar til þess að skila árangri. Þá setti það slæmt fordæmi að selja gefandanum eða Völu skúrinn þannig að einstaklingur geti „sölsað undir sig eignir borgarinnar með þeim hætti sem gert hefur verið og af þeim sökum gefið tækifæri til að kaupa eignina“. „Í ljósi þess á Reykjavíkurborg þann kost einan að leita atbeina dómstóla við að færa aftur grásleppuskúrinn í hendur Reykjavíkurborgar,“ segir í minnisblaðinu. Vala segir í samtali við Vísi að hún hafi keypt skúrinn af fyrri eiganda hans fyrir þremur árum en að eignastaðan sé flókin. Hún segir grátlegt ef leggja þurfi niður starfsemina. „Nú er staðan sú að það þarf auðvitað að komast að niðurstöðu hver á skúrinn. Ef það þarf að gera það fyrir dómstólum þá verður það bara gert,“ segir hún. Vildi rifta afsali en borgin segir það ólögmætt Forsaga málsins er sú að Magnús Ingólfsson, eigandi grásleppuskúrsins á Grímsstaðavör á Ægisíðu, afsalaði borginni skúrnum árið 2007 þegar borgaryfirvöld sóttust eftir að vernda menningarminjar þar. Reykjavíkurborg skuldbatt sig þá til þess að varðveita og viðhalda minjunum. Borgin lét endurgera skúrinn frá 2020 til 2021 fyrir fjórar og hálfa milljón króna. Það sama ár falaðist Vala eftir því við fyrri eiganda skúrsins að kaupa hann til þess að reka þar gufubað. Í minnisblaði borgarlögmanns segir að hún hafi einnig haft samband við borgina um að fá afnot af skúrnum en borgin ekki orðið við þeirri beiðni. Gömul mynd af grásleppuskúrunum við Æigssíðu á söguskiltiVísir/Bjarni Þremur árum síðar tilkynnti Magnús borginni að hann rifti afsalinu og vísaði til meintra vanefnda borgarinnar. Þær fælust í því að borgin hefði ekki sett á laggirnar fræðslusetur fyrir almenning. Borgaryfirvöld mótmæltu riftuninni þar sem hvergi hefði verið minnst á slíkt í forsendum afsalsins. Þá hefði Magnús aldrei hreyft við mótbárum í samskiptum sem áttu sér stað þegar skúrinn var gerður upp. Vala segist sammála borginni að staðan á skúrnum sé á gráu svæði. Hún hafi meðal annars farið yfir það með Magnúsi hvort hann hafi selt henni skúr sem hann ætti ekki. Hún telji einnig að hann hafi góð rök fyrir sínu máli. „Ég er svona á milli tveggja elda. Það er ekki kappsmál fyrir mig að eiga þannan skúr. Það sem er kappsmál fyrir mig er að það er búið að skapast þannig samfélag og hollustuiðja í kringum þetta að það væri grátlegt að þurfa að leggja það niður.“ Tilkynnt um leyfislausan rekstur til heilbrigðiseftirlitsins Þrátt fyrir þetta innréttaði Vala gufubað í skúrnum í fyrra og hóf rekstur án tilskilinna leyfa frá borginni sem eiganda skúrsins og starfsleyfis frá heilbrigðiseftirliti. Borgarlögmaður segist hafa tilkynnt starfsemina til heilbrigðiseftirlitsins. „Svona gususánur eru almennt ekki starfsleyfisskyldar af því að það er ekki komin reglugerð sem gildir um svona,“ segir Vala. Vala segir starfsemina í skúrnum ekki starfsleyfisskylda þar sem ekki sé um eiginlegt baðhús að ræða. Þar sé hvorki rennandi vatn, sturtur né salerni. Fólk greiði ekki fyrir aðgang að húsinu heldur þjónustuna sem hún veiti og tengist sjóböðum. Skúrinn og hjólhýsi með öðru gufubaði hefur verið nýtt af sjósundsfólki á Ægisíðu.Vísir/Bjarni Heilbrigðiseftirlitið hafi komið og tekið starfsemina út en komist að því að ekki væru til reglugerðir til þess að byggja starfsleyfi á. Þá vísar borgarlögmaður í umsögn sem Borgarsögusafn aflaði frá arkitektastofu um áhrif gufubaðsstarfseminnar á skúrinn. Í henni segi að skúrinn sé ekki smíðaður og endurgerður með gufubað í huga. Sú starfsemi hafi áhrif á líftíma hans og veki spurningar um hver eigi að kosta viðgerðir vegna starfseminnar. Vala segist hins vegar hafa borið áform sín undir þá sem endurnýjuðu skúrinn á sínum tíma og þeir hafi tekið jákvætt í þau. Ekki náðist strax í fulltrúa heilbrigðiseftirlitsins við vinnslu fréttarinnar. Borgarstjóri fastagestur í skúrnum Loðið er hvernig meirihlutinn í borgarráði ætlar að bregðast við nákvæmlega. Í bókun sem fulltrúar Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokks samþykktu segir að lagalegur ágreiningur liggi fyrir sem leysa þurfi af festu og ábyrgð. „Meirihlutinn mun vinna að því að finna farsæla niðurstöðu sem byggir á lögum, virðingu fyrir menningararfi borgarinnar og þeirri sýn að skapa áfram fjölbreytt tækifæri til útivistar og heilsueflingar fyrir íbúa Reykjavíkur,“ segir í bókuninni. Frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík í gufu í grásleppuskúrnum umdeilda fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor. Vala segir Hildi Björnsdóttur (hægra megin með höfuðfat á myndinni) fastagest.Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík Hildur Björnsdóttir, borgarstjóri, er fastagestur í gufubaðinu í grásleppuskúrnum, að sögn Völu. Hún hafi meðal annars smalað öllum framboðshópnum í kosningagufu í aðdraganda borgarstjórnarkosninganna í síðasta mánuði.
Borgarstjórn Reykjavík Fornminjar Gufuböð Mest lesið Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Innlent Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Fleiri fréttir Hellisheiði lokuð í báðar áttir vegna umferðarslyss Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fæti Sjá meira