Óttast rússneskar ögranir gegn Eystrasaltsríkjunum Kjartan Kjartansson skrifar 26. júní 2026 07:16 Pólskir hermenn á vettvangi þar sem rússneskur dróni hrapaði í september. Vísir/EPA Tvö Atlantshafsbandalagsríki vara við því að stjórnvöld í Kreml kunni að ráðast til atlögu gegn Eystrasaltsríkjunum eða Póllandi til þess að láta reyna á samstöðu bandalagsins. Örvænting vegna hrakfara Rússa í stríðinu gegn Úkraínu kunni að drífa þá áfram til þess.
Lettneska leyniþjónustan greindi frá því á mánudag að hún sæi merki um að Rússar væru að undirbúa hernaðarlegar ögranir gegn Eystrasaltsríkjunum eða Póllandi. Þær yrðu þó ekki í formi allsherjarinnrásar enda telja Lettar nágranna sína ekki færa um að heyja stríð á tveimur vígstöðvum. Breska blaðið The Guardian segir að heimildirmaður frá öðrum NATO-ríki í Austur-Evrópu hafi tekið í svipaðan streng í síðustu viku. Teikn væru á lofti um að Vladímír Pútín Rússlandsforseti væri að brugga Eystrasaltsríkjunum launráð. Sá heimildarmaður taldi Pútín vilja láta reyna á stuðning Bandaríkjastjórnar við Eystrasaltsríkin nú þegar erfiðega gengur í stríðrekstri hans í Úkraínu. Lettarnir telja Rússa íhuga að skjóta flugskeytinu, drónum eða beita annars konar blönduðum hernaði til þess að fæla ríkin frá því að styðja Úkraínumenn. Tapa ekki þegjandi og hljóðalaust Hægt hefur á sókn Rússa í Úkraínu að undanförnu og stríðið hefur í auknum mæli færst nær Kreml sjálfri. Úkraínumenn hafa þannig staðið fyrir umfangsmiklum drónaárásum á Rússland og jafnvel náð að sprengja upp meiriháttar olíuhreinsistöð í útjaðri Moskvu. Keir Giles, sérfræðingur í Rússlandi hjá hugveitunni Chatham House, segir stjórnvöld í Moskvu munu leita leiða til þess að hrista upp í stöðunni, til dæmis með því að færa átökin til fleiri ríkja. „Við ættum ekki að reikna með því að Rússland tapi bara þegjandi og hljóðalaust,“ segir hann við breska blaðið. Rússar eru raunar taldir standa að baki fjölda skemmdarverka í Evrópu frá því að innrás þeirra í Úkraínu hófst, þar á meðal í Póllandi og Eystrasaltsríkjunum.
Lettland NATO Rússland Innrás Rússa í Úkraínu Úkraína Hernaður Mest lesið „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Innlent Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Erlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Innlent Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Innlent Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Innlent Birtir skilaboð um uppsögn: „Kominn tími á að sannleikurinn komi í ljós“ Innlent Fleiri fréttir Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Sjá meira