Áttatíu ára gamalt hitamet slegið í Sviss Freyja Þórisdóttir skrifar 25. júní 2026 17:35 Það hefur aldrei mælst hærri hiti í júnímánuði í Bretlandi. Fólki er ráðlagt að halda sig innandyra og drekka nóg af vatni. AP Áttatíu ára gamalt hitamet hefur verið slegið í Sviss en á fjórum mismunandi veðurstöðvum fór hitinn yfir þrjátíu og sjö gráður en er þetta hæsti hiti sem mælst hefur í landinu í júnímánuði. Í hitabylgjunni sem nú gengur yfir Evrópu hefur hiti víða farið yfir þrjátíu og fimm gráðurnar og er áætlað að allt að fjögurhundruð milljón manns muni upplifa hita yfir þrjátíu gráður í álfunni á næstu dögum.
Er þetta meðal þess sem fram kemur í umfjöllun katarska ríkismiðilsins Al JAzeera en júníhitamet hefur einnig verið slegið í Bretlandi. Þar hefur hiti haldist í þrjátíu og sex komma sjö gráðum í dag, fimmtudaginn 25. júní. Í Wales var sömuleiðis slegið met fyrir hita í júní en þar mældust þrjátíu og fimm komma níu gráður í Bute-garði í Cardiff. Í umfjölluninni segir jafnframt að áætlað sé að fimmtíu milljónir manna í Frakklandi og um átján milljónir manna í Þýskalandi muni þurfa að þrauka í ríflega þrjátíu og fimm gráðu hita í dag. Belgía, Lúxemborg og Holland munu einnig verða fyrir áhrifum af hitabylgjunni sem hefur gengið yfir stóran hluta Vestur-Evrópu síðan um síðustu helgi, sem og íbúar í Póllandi, Ungverjalandi, Tékklandi og Króatíu. Bretland mældi í dag, líkt og fyrr segir, sinn heitasta júnídag frá upphafi, en hitinn náði þrjátíu og sex komma fjórum gráðum í vesturensku sýslunni Somerset og sló þar með fyrra met upp á þrjátíu og sex komma eina gráðu sem sett var tæpum sólarhring áður. Rauð hitaviðvörun í Frakklandi Þá hafa dauðsföll vegna hita í Frakklandi stóraukist á síðustu dögum og nú hefur franska veðurstofan sett þrjá fjórðu hluta landsins á rauða viðvörun vegna mikils hita frá hádegi í dag til hádegis á föstudag. Á Brittaníu-skaga í norðvesturhluta Frakklands, sem venjulega er temprað svæði, olli hitatengd bilun í búnaði rafmagnsleysi hjá tugþúsundum heimila sem urðu þar af leiðandi að þola ástandið án rafmagnsblásara. Á Parísarsvæðinu fannst þriggja ára barn látið í bíl, þriðja slíka dauðsfall barns í þessari viku. Foreldrar fundu drenginn í „bílnum fyrir utan heimili sitt“, að sögn lögreglu. Almannavarnir staðfestu andlát hans í bænum Saint-Gratien í úthverfi Parísar.
Veður England Bretland Sviss Wales Þýskaland Lúxemborg Holland Ungverjaland Tékkland Króatía Hitabylgja í Evrópu í júní 2026 Tengdar fréttir Eins og að vera í bakaraofni í hitabylgjunni: „Raunveruleg hætta á að fólk geti fengið hitaslag“ Nýliðin nótt var sú heitasta frá upphafi mælinga í Frakklandi og Lundúnum er lýst sem bakaraofni. Hitabylgjan í Evrópu hefur reynst banvæn en veðurfræðingur sem talar frá Róm segir að miðja hitahvelfingarinnar sé að færast norður yfir Bretlandseyjar. 23. júní 2026 12:44 Áfram viðvaranir vegna hitasvækju víða um Evrópu Áfram er varað við lífshættulegri hitabylgju í Evrópu, allt frá London í vestri til Mílanó í austri, í dag. Líkur eru á að nýtt hitamet fyrir júní verði sett á Englandi. 24. júní 2026 11:01 Mest lesið Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Innlent Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Innlent Holmes flutt á áfangaheimili Erlent Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Innlent Fleiri fréttir Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Halda andstæðingum fjarri Grænlandi með samkomulagi Sjá meira
Eins og að vera í bakaraofni í hitabylgjunni: „Raunveruleg hætta á að fólk geti fengið hitaslag“ Nýliðin nótt var sú heitasta frá upphafi mælinga í Frakklandi og Lundúnum er lýst sem bakaraofni. Hitabylgjan í Evrópu hefur reynst banvæn en veðurfræðingur sem talar frá Róm segir að miðja hitahvelfingarinnar sé að færast norður yfir Bretlandseyjar. 23. júní 2026 12:44
Áfram viðvaranir vegna hitasvækju víða um Evrópu Áfram er varað við lífshættulegri hitabylgju í Evrópu, allt frá London í vestri til Mílanó í austri, í dag. Líkur eru á að nýtt hitamet fyrir júní verði sett á Englandi. 24. júní 2026 11:01