Mannréttindi í Reykjavík í hættu Eldur Smári Kristinsson skrifar 25. júní 2026 16:01 Mannréttindaskrifstofa Reykjavíkurborgar hefur verið lögð niður! Lögð niðurlægð! Í einu vetfangi er allt hið heilaga verk kynjaköltsins og regnbogavottunarinnar í alvarlegri hættu.Hvað á að gera núna? Hver mun nú tryggja að enginn fimm ára krakki í Reykjavík verði fyrir því ofbeldi að fá að leika við einhvern án þess að hafa fyrst undirritað kynja- og persónufornafnayfirlýsingu? Hver mun passa upp á það að allar afmælisveislur séu rétt Regnbogavottaðar með öllum hinsegin- og kynjafræðilegum öryggisráðstöfunum og viðeigandi fjölda „þau/þeir/þeirra/hán/hín“-merkimiða á hverri einustu möffinsköku?Ímyndið ykkur hvernig þetta fer: Örvinglaðir foreldrar standa úti í rigningunni, með afmælisbarn grátandi í fanginu, með köku sem er bara venjuleg kaka – enginn merkimiði, engin regnbogavottun, enginn sérstakur sérfræðingur í málefnum hinsegin fólks til að meta hvort liturinn á veisluhattinum sé nógu „inklúsív“.Hvað ef einhver krakki kallar einhvern „hann“ án þess að hafa sótt þriggja tíma námskeið fyrst? Þetta er ekki bara óþægilegt – þetta er beinlínis mannréttindabrot á hæsta stigi.Foreldrar þurfa áfallahjálp strax!Hversu mörg börn eiga að þurfa að þjást vegna venjulegs afmælisboðs með venjulegum kökum og venjulegum nöfnum áður en við gerum eitthvað?Þetta er byrjunin á endalokum siðmenningarinnar. Næst verður leyft að halda afmælisboð án þess að hafa ráðið kynjakúltúrráðgjafa. Síðan verður leyft að kalla stráka stráka og stelpur stelpur!Og áður en við vitum af því þá erum við komin aftur í miðaldir þar sem fólk bara lifir lífinu án þess að láta allt snúast um kynjaflóru og regnbogavottun.Ég krefst þess að borgin endurskoði þetta og endurreisi mannréttindaskrifstofuna strax. Höfundur er alþjóðafulltrúi LGB Samtakanna og stjórnarmaður í LGB International. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Við höfum engu að tapa – þess vegna segi ég já Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson skrifar Skoðun Spánverjar vilja íslenskan sjávarútveg Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Fólkið eða peningarnir? Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Stöndum vörð um...hvað? Ingibjörg Rósa Björnsdóttir skrifar Skoðun Hvaða ákvæði læknasamningsins voru mistök? Steinunn Þórðardóttir skrifar Skoðun Fullveldi hvað Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Nei er ókei Ágúst Valves Jóhannesson skrifar Skoðun Hvað ef? Pétur B. Sveinsson skrifar Skoðun Húsnæðisvextir lækka ekki sjálfkrafa með evru Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Mun ESB hjálpa við vegagerð á Íslandi? Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Við erum í partíinu en megum ekki velja lag Árni Páll Jónsson skrifar Skoðun Með öllum mjalla? Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Fyrsti steinninn úr múrnum – af hverju ég segi já Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir skrifar Skoðun Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Til hvers var þá barist? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Skynsamleg röð hlutanna Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Græða fyrirtæki á verðbólgu? Konráð S. Guðjónsson skrifar Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson skrifar Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Sjá meira
Mannréttindaskrifstofa Reykjavíkurborgar hefur verið lögð niður! Lögð niðurlægð! Í einu vetfangi er allt hið heilaga verk kynjaköltsins og regnbogavottunarinnar í alvarlegri hættu.Hvað á að gera núna? Hver mun nú tryggja að enginn fimm ára krakki í Reykjavík verði fyrir því ofbeldi að fá að leika við einhvern án þess að hafa fyrst undirritað kynja- og persónufornafnayfirlýsingu? Hver mun passa upp á það að allar afmælisveislur séu rétt Regnbogavottaðar með öllum hinsegin- og kynjafræðilegum öryggisráðstöfunum og viðeigandi fjölda „þau/þeir/þeirra/hán/hín“-merkimiða á hverri einustu möffinsköku?Ímyndið ykkur hvernig þetta fer: Örvinglaðir foreldrar standa úti í rigningunni, með afmælisbarn grátandi í fanginu, með köku sem er bara venjuleg kaka – enginn merkimiði, engin regnbogavottun, enginn sérstakur sérfræðingur í málefnum hinsegin fólks til að meta hvort liturinn á veisluhattinum sé nógu „inklúsív“.Hvað ef einhver krakki kallar einhvern „hann“ án þess að hafa sótt þriggja tíma námskeið fyrst? Þetta er ekki bara óþægilegt – þetta er beinlínis mannréttindabrot á hæsta stigi.Foreldrar þurfa áfallahjálp strax!Hversu mörg börn eiga að þurfa að þjást vegna venjulegs afmælisboðs með venjulegum kökum og venjulegum nöfnum áður en við gerum eitthvað?Þetta er byrjunin á endalokum siðmenningarinnar. Næst verður leyft að halda afmælisboð án þess að hafa ráðið kynjakúltúrráðgjafa. Síðan verður leyft að kalla stráka stráka og stelpur stelpur!Og áður en við vitum af því þá erum við komin aftur í miðaldir þar sem fólk bara lifir lífinu án þess að láta allt snúast um kynjaflóru og regnbogavottun.Ég krefst þess að borgin endurskoði þetta og endurreisi mannréttindaskrifstofuna strax. Höfundur er alþjóðafulltrúi LGB Samtakanna og stjórnarmaður í LGB International.
Skoðun Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson skrifar
Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar