Menningarsjá og hlutverk hennar Anna Hildur Hildibrandsdóttir og Erna Kaaber skrifa 25. júní 2026 11:02 Þegar rætt er um menningarinnviði er oft vísað til stofnana, húsa og formlegra kerfa: leikhúsa, safna, tónlistarhúsa, bókasafna, menningarmiðstöðva og styrkjakerfa. Slíkir innviðir skipta miklu máli og eru ómissandi hluti af menningarlífi samfélaga. En þeir segja ekki alla söguna. Á jaðarsvæðum, þar sem stofnanir eru fáar, markaðir smáir og formlegir innviðir oft veikari en í stærri byggðakjörnum, verður menningarstarfsemin sjálf oftar en ekki að mikilvægum samfélagslegum innviði. Það eru hátíðirnar, kórarnir, handverksþekkingin, frásagnirnar, tónlistarsenan, félagasamtökin, skapandi frumkvöðlar, staðbundin þekking og óformleg tengsl sem skapa vettvang fyrir þátttöku, sjálfsmynd, samvinnu og nýjar hugmyndir. Þetta eru ósýnilegir þættir sem mælast ekki endilega í þeirri tölfræði sem oft er ráðandi í stefnumótun stjórnvalda. Menning sem samfélagslegir innviðir Það var því ánægjulegt að sjá að í Hvítbók um byggðamál er að finna aðgerð um þróun Menningarsjár. Aðgerðin byggir á niðurstöðum Evrópurannsóknarinnar IN SITU sem teymi Háskólans á Bifröst hefur unnið að undanfarin fjögur ár í samstarfi við fjölbreytt net fræðimanna frá Evrópu og víðar. Rannsóknin skoðar áhrif menningar og skapandi greina á nýsköpun og þróun jaðarsvæða. Verkefnið hefur leitt saman rannsakendur, sveitarfélög, almenning, listamenn, skapandi frumkvöðla og menningarframleiðendur víða um Evrópu. Vesturland var eitt af sex tilraunasvæðum verkefnisins og þar höfum við skoðað áhrif menningar og skapandi greina á nýsköpun með aðferðum menningarkortlagningar með virkri þátttöku íbúa og Landshlutasamtaka sveitarfélaga á Vesturlandi. Ein mikilvægasta niðurstaða rannsóknarinnar er sú að menning er ekki aðeins afþreying, viðburðir eða „mjúku málin“ í opinberum útgjöldum. Menning er marglaga samfélagslegur innviður. Hún tengir saman fólk, styrkir staðarvitund, skapar traust, eykur þátttöku og seiglu og er uppspretta nýrra hugmynda, verkefna og atvinnu. Hún skapar skilning og merkingu fyrir fólk á samfélagi sínu, áskorunum og tækifærum. Hvernig drögum við fram hið ósýnilega? Þegar kynna átti þessar niðurstöður var snúið að draga fram það sem ekki er auðvelt að mæla með tölum. Í framhaldinu var þróuð frumgerð að gagnvirku korti með tækni sem þegar er notuð af öðrum stofnunum. Tæknina má nýta til að gera sýnilegar upplýsingar um fjölbreytta menningarstarfsemi um land allt og skapa nýja möguleika til að tengja saman gögn, staðbundna þekkingu og reynslu fólks. Þannig má sýna hvernig saga, menningararfur, staðarandi, fjölbreytt menningarstarfsemi eða verkmenning getur með margvíslegum hætti verið auðlind í byggðaþróun og stefnumótun. Menningarsjá sem þekkingarinnviðir Þess vegna er ánægjulegt að sjá í nýrri Hvítbók um byggðamál að lagt er til að þróuð verði Menningarsjá sem kortleggur menningarstarfsemi, menningarstofnanir, viðburði, skapandi greinar og menningarinnviði og arf um land allt, en styður jafnframt við samráð og miðlun þekkingar milli samfélaga, fagfólks og stjórnvalda. Slík aðgerð getur orðið mikilvæg viðbót við þekkingargrunn byggðamála. Verkefnið verður á ábyrgð Byggðastofnunar og þannig byggist upp verkfæri og þekking sem er opin og aðgengileg, ef vel tekst til. Menningarsjá getur hins vegar verið meira en kort eða gagnagrunnur. Hún getur orðið að lifandi þekkingarinnviðum sem styður rannsóknir, samráð, stefnumótun og ákvarðanatöku. Til þess þarf hún jafnframt að vera hluti af áframhaldandi samtali við samfélög um land allt þar sem ný þekking og ný sjónarmið geta komið fram eftir því sem aðstæður breytast. Hún þarf að tengja saman gögn, reynslu heimafólks, menningarstarf, atvinnuþróun og byggðasjónarmið. Hún þarf að sýna, ekki aðeins hvar menning á sér stað, heldur einnig hvaða hlutverki hún gegnir í samfélögum. Mikilvægur hluti af framtíðarsýn byggða Þetta er sérstaklega mikilvægt vegna þess að byggðaþróun snýst ekki eingöngu um að jafna aðgengi að þjónustu eða fjölga störfum. Hún snýst líka um það hvort fólk sjái framtíð fyrir sér á staðnum. Hvort það upplifi að það tilheyri. Hvort samfélagið hafi getu til að bregðast við breytingum, skapa ný tækifæri og byggja á eigin styrkleikum. Menning kemur ekki í stað samgangna, húsnæðis, heilbrigðisþjónustu eða atvinnuuppbyggingar. En hún getur verið þeir innviðir sem tengir þessa þætti saman og gefur þeim merkingu í daglegu lífi fólks. Þess vegna skiptir máli að huga að ólíkum birtingarmyndum menningar í staðbundnu samhengi. Við eigum sóknaráætlunarkerfi sem byggir á samráði og samtali við fólkið í landinu og höfum leiðir til að taka tillit til staðbundinna þátta og sérstöðu ólíkra samfélaga. Með menningarkortlagningu má virkja aðferðafræði sem dregur fram staðbundna styrkleika og eflir um leið vitund bæði heimafólks og utanaðkomandi um menningarauðlindir og möguleika samfélaga. Við þurfum að nýta bæði menningarkortlagningu og nýjar tæknilausnir sem geta stutt við samráð, þekkingarsköpun og sýnileika menningarauðlinda. Aðgerðin um Menningarsjá í Hvítbók um byggðamál er jákvætt skref í þá átt. Hvítbók um byggðamál er í samráðsgátt til 18. ágúst nk. Anna Hildur er fagstjóri skapandi greina við Háskólann á Bifröst og formaður stjórnar Rannsóknaseturs skapandi greina. Erna Kaaber er sérfræðingur við Háskólann á Bifröst og dotorsnemi í menningarstjórnun við Háskólann í Hildersheim í Þýskalandi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Húsnæðisvextir lækka ekki sjálfkrafa með evru Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Mun ESB hjálpa við vegagerð á Íslandi? Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Við erum í partíinu en megum ekki velja lag Árni Páll Jónsson skrifar Skoðun Með öllum mjalla? Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Fyrsti steinninn úr múrnum – af hverju ég segi já Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir skrifar Skoðun Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Til hvers var þá barist? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Skynsamleg röð hlutanna Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Græða fyrirtæki á verðbólgu? Konráð S. Guðjónsson skrifar Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson skrifar Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Sjá meira
Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar