Fyrrverandi eiginmaður Sturgeon í fimm ára fangelsi Atli Ísleifsson skrifar 24. júní 2026 07:18 Nicola Sturgeon og Peter Murrell árið 2016. EPA Dómstóll í Skotlandi hefur dæmt Peter Murrell, fyrrverandi eiginmann Nicolu Sturgeon, fyrrverandi forsætisráðherra Skotlands, í fimm ára og þriggja mánaða fangelsi fyrir fjárdrátt.
Murrell játaði sök í málinu, en hann var ákærður fyrir að hafa dregið sér fé þegar hann starfaði sem framkvæmdastjóri Skoska þjóðarflokksins á þeim tíma þegar Sturgeon var forsætisráðherra. Hinn 61 árs Murrell var ákærður fyrir að hafa dregið sér rúmlega 400 þúsund pund, tæplega 70 milljónir króna, úr sjóðum flokksins meðal annars til að kaupa bíla, ýmsar lúxusvörur og húsbíl. Murrell og Sturgeon eru nú skilin, en Sturgeon tók við embætti forsætisráðherra árið 2014 en sagði óvænt af sér 2023 – fáeinum mánuðum áður en hún var handtekin í tengslum við rannsókn lögreglu á málinu. Hún var sjálf hreinsuð af öllum ásökunum í mars á síðasta ári. Murrell játaði sök í málinu við þingfestingu í dómstólnum í Edinborg í síðustu viku, en fjárdrátturinn stóð yfir frá árinu 2010 til 2023. Viðurkenndi hann að hafa nýtt hið illa fengna fé til að kaupa Volkswagen-bíl og síðar Jagúar, ásamt lúxusvörum frá merkjum á borð við Estee Lauder og Harrods og LeCreuset.
Bretland Skotland Erlend sakamál Tengdar fréttir Nicola Sturgeon orðin einhleyp Fyrrverandi fyrsti ráðherra Skotlands Nicola Sturgeon er skilin við eiginmann sinn Peter Murrell. Þau höfðu verið par í tuttugu og tvö ár og hjón í fimmtán ár. 16. janúar 2025 21:50 Eiginmaður Sturgeon ákærður fyrir fjárdrátt Peter Murrell, eiginmaður Nicolu Sturgeon, fyrrverandi oddvita skosku heimastjórnarinnar, var ákærður í tengslum við fjárfrátt hjá Skoska þjóðarflokknum í dag. Sturgeon sagði af sér skömmu áður en Murrell var handtekinn í fyrra. 18. apríl 2024 20:19 Nicola Sturgeon handtekin í tengslum við fjármálamisferli Nicola Sturgeon, fyrrverandi forsætisráðherra Skotlands var handtekin nú í morgun í tengslum við yfirstandandi rannsókn sem stendur yfir á fjármögnun og fjármálum Skoska þjóðarflokksins. Grunur leikur á að flokkurinn hafi misfarið með kosningaframlög uppá 600 þúsund pund. 11. júní 2023 14:28 Eiginmaður Sturgeon handtekinn í tengslum við lögreglurannsókn Eiginmaður Nicolu Sturgeon, fyrrverandi leiðtoga Skoska þjóðarflokksins og æðsti ráðherra Skotlands, hefur verið handtekinn í tengslum við rannsókn á fjármálum þjóðarflokksins. 5. apríl 2023 10:11 Mest lesið Dagný Ósk látin Innlent Framkvæmdastjóri hjá BL handtekinn og settur í leyfi Innlent Framkvæmdastjóri hjá þekktu fyrirtæki meðal handteknu Innlent Vaktin: Verkfallsaðgerðum flugvirkja aflýst Innlent Ætluðu að setja lög á verkfall flugvirkja Innlent Flugvirkjar aflýsa verkfalli Innlent „Að mínu mati fyrsta alvöru haustlægðin“ Innlent Drengurinn er fundinn Innlent Fylgi haggast varla eftir atkvæðagreiðslu Innlent Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Innlent Fleiri fréttir Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Halda andstæðingum fjarri Grænlandi með samkomulagi Svona var ræða Trumps: Spurning um „gereyðingu“ og nýtt nafn á gervigreind Í leyfi á meðan kosningasvik eru til rannsóknar Bein útsending: Ræða Trumps á allsherjarþinginu Bretar ætla að aðstoða Sáda gegn Hútum Beita buddunni til að vega á móti óvinsældum Trumps Rétta yfir konu spænska forsætisráðherrans Grunur um alvarlegt kosningasvindl í Svíþjóð Stefna að tveimur nýjum herstöðvum á Grænlandi Sniðganga Hvíta húsið Bað Selenskí um að stöðva árásir á rússneskar olíuvinnslur Höfða mál gegn Trump vegna bannsins Pútín sló öll met Sigurboginn verður leyniskyttuhreiður Maður á níræðisaldri lést í átökum um sólbekk Noregur og Kanada auka samstarf í varnarmálum Fyrirgefur Lindsay fyrir að myrða börnin Mótmæli í Texas vegna ICE-liða Kallar kosningarnar „hörmung“ en heitir því að fara ekki fet Sjá meira
Nicola Sturgeon orðin einhleyp Fyrrverandi fyrsti ráðherra Skotlands Nicola Sturgeon er skilin við eiginmann sinn Peter Murrell. Þau höfðu verið par í tuttugu og tvö ár og hjón í fimmtán ár. 16. janúar 2025 21:50
Eiginmaður Sturgeon ákærður fyrir fjárdrátt Peter Murrell, eiginmaður Nicolu Sturgeon, fyrrverandi oddvita skosku heimastjórnarinnar, var ákærður í tengslum við fjárfrátt hjá Skoska þjóðarflokknum í dag. Sturgeon sagði af sér skömmu áður en Murrell var handtekinn í fyrra. 18. apríl 2024 20:19
Nicola Sturgeon handtekin í tengslum við fjármálamisferli Nicola Sturgeon, fyrrverandi forsætisráðherra Skotlands var handtekin nú í morgun í tengslum við yfirstandandi rannsókn sem stendur yfir á fjármögnun og fjármálum Skoska þjóðarflokksins. Grunur leikur á að flokkurinn hafi misfarið með kosningaframlög uppá 600 þúsund pund. 11. júní 2023 14:28
Eiginmaður Sturgeon handtekinn í tengslum við lögreglurannsókn Eiginmaður Nicolu Sturgeon, fyrrverandi leiðtoga Skoska þjóðarflokksins og æðsti ráðherra Skotlands, hefur verið handtekinn í tengslum við rannsókn á fjármálum þjóðarflokksins. 5. apríl 2023 10:11