Starmer segir af sér Atli Ísleifsson skrifar 22. júní 2026 08:38 Keir Starmer hefur gegnt embætti forsætisráðherra Bretlands í um tvö ár. Hann ávarpaði fréttamenn og bresku þjóðina í morgun. EPA Keir Starmer hyggst segja af sér sem leiðtogi breska Verkamannaflokksins og forsætisráðherra Bretlands. Hann mun gegna embættunum þar til að nýr leiðtogi Verkamannaflokksins hefur verið kjörinn í haust.
Starmer tilkynnti um afsögnina fyrir utan bústað forsætisráðherrans í Downing-stræti í London á níunda tímanum í morgun. Hann sagðist hafa tilkynnt Karli III Bretakonungi um ákvörðun sína í morgun. Starmer sagði ljóst að hann nyti ekki lengur nægilegs stuðnings meðal flokksmanna til að gegna stöðunni áfram, en rúmlega hundrað þingmenn Verkamannaflokksins höfðu skorað á hann að láta af embætti. Starmer varði helginni í sumarbústað forsætisráðherrans og lagði mat á stöðuna og fóru breskir fjölmiðlar að flytja fréttir á sunnudaginn um að Starmer hefði tekið ákvörðun um afsögn. Starmer hefur gegnt embætti forsætisráðherra Bretlands frá júlí 2024 eftir stórsigur Verkamannaflokksins í þingkosningum. Hann tók við forsætisráðherraembættinu af þáverandi leiðtoga Íhaldsflokksins, Rishi Sunak. Starmer tók við leiðtogaembættinu í breska Verkamannaflokknum af Jeremy Corbyn árið 2020. Keir Starmer og eiginkona hans, Victoria, fyrir utan Downing-stræti 10 í morgun. AP Mikill þrýstingur hefur verið á Starmer að segja af sér og ekki dró úr honum þegar Andy Burnham fyrrverandi borgarstjóri Manchester vann þingsæti í aukakosningu á dögunum sem mun gera honum kleift að skora Starmer á hólm og sækjast eftir leiðtogasætinu og forsætisráðuneytinu. Á fréttamannafundinum í morgun sagði Starmer að hann myndi nú einbeita sér að því að verða besti eiginmaðurinn fyrir eiginkonu sína og besti faðirinn fyrir börnin sín. Hann sagðist sömuleiðis munu styðja við bakið á hverjum þeim sem tekur við formennsku í Verkamannaflokknum.
Bretland England Skotland Norður-Írland Wales Tengdar fréttir Sagður ætla að tilkynna afsögn á morgun Breskir fjölmiðlar segja að Keir Starmer ætli að segja af sér sem forsætisráðherra Bretlands. Þetta muni hann líklega tilkynna á morgun, að sögn Guardian. Donald Trump Bandaríkjaforseti blandar sér einnig í málið og fullyrðir að Starmer muni segja af sér. 21. júní 2026 14:46 Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ráðherrar í ríkisstjórn breska forsætisráðherrans Keirs Starmer eru sagðir hafa beðið forsætisráðherrann að segja af sér, bæði sem formaður Verkamannaflokksins og sem leiðtogi ríkisstjórnarinnar. Rísandi stjarna í flokknum hefur orðuð við að leysa hann af hólmi. 19. júní 2026 19:12 Mest lesið Dagný Ósk látin Innlent Framkvæmdastjóri hjá BL handtekinn og settur í leyfi Innlent Framkvæmdastjóri hjá þekktu fyrirtæki meðal handteknu Innlent Vaktin: Verkfallsaðgerðum flugvirkja aflýst Innlent Ætluðu að setja lög á verkfall flugvirkja Innlent Flugvirkjar aflýsa verkfalli Innlent Drengurinn er fundinn Innlent Fylgi haggast varla eftir atkvæðagreiðslu Innlent Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Innlent Strætisvagni ekið utan í rútu á Snorrabraut Innlent Fleiri fréttir Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Halda andstæðingum fjarri Grænlandi með samkomulagi Svona var ræða Trumps: Spurning um „gereyðingu“ og nýtt nafn á gervigreind Í leyfi á meðan kosningasvik eru til rannsóknar Bein útsending: Ræða Trumps á allsherjarþinginu Bretar ætla að aðstoða Sáda gegn Hútum Beita buddunni til að vega á móti óvinsældum Trumps Rétta yfir konu spænska forsætisráðherrans Grunur um alvarlegt kosningasvindl í Svíþjóð Stefna að tveimur nýjum herstöðvum á Grænlandi Sniðganga Hvíta húsið Bað Selenskí um að stöðva árásir á rússneskar olíuvinnslur Höfða mál gegn Trump vegna bannsins Pútín sló öll met Sigurboginn verður leyniskyttuhreiður Maður á níræðisaldri lést í átökum um sólbekk Noregur og Kanada auka samstarf í varnarmálum Fyrirgefur Lindsay fyrir að myrða börnin Mótmæli í Texas vegna ICE-liða Kallar kosningarnar „hörmung“ en heitir því að fara ekki fet Senda Trump pillu vegna Ameríkukorts Sjá meira
Sagður ætla að tilkynna afsögn á morgun Breskir fjölmiðlar segja að Keir Starmer ætli að segja af sér sem forsætisráðherra Bretlands. Þetta muni hann líklega tilkynna á morgun, að sögn Guardian. Donald Trump Bandaríkjaforseti blandar sér einnig í málið og fullyrðir að Starmer muni segja af sér. 21. júní 2026 14:46
Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ráðherrar í ríkisstjórn breska forsætisráðherrans Keirs Starmer eru sagðir hafa beðið forsætisráðherrann að segja af sér, bæði sem formaður Verkamannaflokksins og sem leiðtogi ríkisstjórnarinnar. Rísandi stjarna í flokknum hefur orðuð við að leysa hann af hólmi. 19. júní 2026 19:12