Körfubolti

Martin þýskur meistari eftir lygi­lega endur­komu

Sindri Sverrisson skrifar
Martin Hermannsson varð einnig þýskur meistari með Alba Berlín árið 2020.
Martin Hermannsson varð einnig þýskur meistari með Alba Berlín árið 2020. Getty/Andreas Gora

Eftir hreint ótrúlega 20 stiga endurkomu varð Martin Hermannsson í dag þýskur meistari í körfubolta með Alba Berlín, með 84-81 sigri gegn Bayern München á útivelli í oddaleik.

Þetta er í annað sinn sem Martin verður Þýskalandsmeistari því hann fagnaði titlinum einnig með Alba árið 2020, áður en hann gekk í raðir Valencia á Spáni. Martin sneri aftur til Alba fyrir tveimur og hálfu ári og hefur verið lykilmaður þar síðan, líkt og áður.

Sigurinn í dag, þegar allt var undir, var með hreinum ólíkindum. Martin og félagar virtust nefnilega hafa grafið sína eigin gröf þegar þeir skoruðu aðeins sjö stig í 2. leikhluta og munurinn í hálfleik var heil tuttugu stig, 47-27.

Þá tók hins vegar við ótrúlegur viðsnúningur og Martin átti sinn þátt í því. Hann setti niður þrist og átti tvær stoðsendingar, og Berlínarliðið hafði komið muninum undir tíu stig, 52-43, eftir aðeins þrjár og hálfa mínútu í þriðja leikhluta.

Martin Hermannsson einbeittur í einvíginu við Bayern.Getty/Reinaldo Coddou

Aftur átti Martin stoðsendingu og munurinn fór niður í sex stig áður en Bayern tók við sér á nýjan leik og var staðan 66-53 fyrir síðasta leikhlutann.

Áfram hélt Martin svo að leggja upp fyrir liðsfélaga sína á meðan að Alba-vörnin skellti í lás. Liðið skoraði fyrstu fjórtán stigin í fjórða leikhluta og komst yfir, 67-66, þegar enn voru sjö mínútur eftir af leiknum.

Spennan var svo gífurleg á lokakaflanum en Alba komst mest fimm stigum yfir, 75-70. Liðið endaði á að vinna lokafjórðunginn 31-15.

Martin endaði með langflestar stoðsendingar á vellinum eða átta talsins, skoraði sjö stig og tók tvö fráköst.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×