Martin þýskur meistari eftir lygilega endurkomu Sindri Sverrisson skrifar 21. júní 2026 16:40 Martin Hermannsson varð einnig þýskur meistari með Alba Berlín árið 2020. Getty/Andreas Gora Eftir hreint ótrúlega 20 stiga endurkomu varð Martin Hermannsson í dag þýskur meistari í körfubolta með Alba Berlín, með 84-81 sigri gegn Bayern München á útivelli í oddaleik.
Þetta er í annað sinn sem Martin verður Þýskalandsmeistari því hann fagnaði titlinum einnig með Alba árið 2020, áður en hann gekk í raðir Valencia á Spáni. Martin sneri aftur til Alba fyrir tveimur og hálfu ári og hefur verið lykilmaður þar síðan, líkt og áður. View this post on Instagram A post shared by ALBA BERLIN (@albaberlin) Sigurinn í dag, þegar allt var undir, var með hreinum ólíkindum. Martin og félagar virtust nefnilega hafa grafið sína eigin gröf þegar þeir skoruðu aðeins sjö stig í 2. leikhluta og munurinn í hálfleik var heil tuttugu stig, 47-27. Þá tók hins vegar við ótrúlegur viðsnúningur og Martin átti sinn þátt í því. Hann setti niður þrist og átti tvær stoðsendingar, og Berlínarliðið hafði komið muninum undir tíu stig, 52-43, eftir aðeins þrjár og hálfa mínútu í þriðja leikhluta. Martin Hermannsson einbeittur í einvíginu við Bayern.Getty/Reinaldo Coddou Aftur átti Martin stoðsendingu og munurinn fór niður í sex stig áður en Bayern tók við sér á nýjan leik og var staðan 66-53 fyrir síðasta leikhlutann. Áfram hélt Martin svo að leggja upp fyrir liðsfélaga sína á meðan að Alba-vörnin skellti í lás. Liðið skoraði fyrstu fjórtán stigin í fjórða leikhluta og komst yfir, 67-66, þegar enn voru sjö mínútur eftir af leiknum. Spennan var svo gífurleg á lokakaflanum en Alba komst mest fimm stigum yfir, 75-70. Liðið endaði á að vinna lokafjórðunginn 31-15. Martin endaði með langflestar stoðsendingar á vellinum eða átta talsins, skoraði sjö stig og tók tvö fráköst. View this post on Instagram A post shared by ALBA BERLIN (@albaberlin)
Þýski körfuboltinn Mest lesið Keyptu kynlífsþjónustu fyrir dómara með korti sambandsins Fótbolti Ronaldo gifti sig í fámenni Fótbolti Gunnlaugur Árni setti heilsuna í fyrsta sæti Golf Nú á að okra á miðum á Ólympíuleikana Sport Stórbrotin endurkoma næstum því nóg í úrslitaleiknum Körfubolti Olli árekstri í miðjum fótboltaleik Fótbolti Berglind fékk Gullboltann Körfubolti Besti árangur Íslendings á EM í 24 ár Sport Segir að Guardiola hafi verið „mjög nálægt“ því að taka við Ítalíu Fótbolti Notar ekki þrjá af bestu mönnunum sínum í úrslitaleiknum Enski boltinn Fleiri fréttir Berglind fékk Gullboltann Stórbrotin endurkoma næstum því nóg í úrslitaleiknum Komust í 8-liða úrslit þrátt fyrir tap Fyrsti leikur LeBron með Sixers gegn meisturum Knicks Berglind langstiga- og framlagshæst á EM Íslensku stelpurnar unnu Dani og eru einum sigri frá A-deild Íslenska liðið enn ósigrað Don Nelson látinn Fullkomin byrjun íslensku drengjanna heldur áfram Tryggði bæði framlengingu og skoraði sigurkörfuna Strákarnir byrja Evrópukeppnina á tveimur sigurleikjum Ísrael í undanúrslit á kostnað Íslands Sjöfaldur NBA meistari kennir íslenskum krökkum að setja stóru skotin Njarðvík semur við Sadio Doucouré Berglind með 33 stig í fyrsta leik og strákarnir unnu Úkraínu Hilmir greiddi sjálfur fyrir félagaskiptin með launalækkun Sótti silfur á EM eftir rúmt ár af meiðslum Ármenningar semja við fyrrum Íslandsmeistara Stjarnan tekur efnilegan leikmann frá Álftanesi Sneru leiknum á síðustu stundu og komust áfram Stelpurnar rúlluðu yfir Hollendinga Rebekka með 31 stig í góðum sigri á Portúgal NBA-stjarna skuldar Cam Newton 32 milljónir vegna vangreiddrar leigu Náðu ekki að halda í við heimaliðið í fyrsta leik EM Strákarnir spila um fimmtánda sætið Misstu Svisslendingana frá sér á hræðilegum lokamínútum LeBron framleiðir „Last Dance“ heimildarþætti Sakar leikmann um að halda framhjá sér með mörgum leikmönnum Milka farinn frá Njarðvík Birmingham stigahæstur í þriðja sigri strákanna Sjá meira