Til hamingju með Þjóðarhöll! Dagur B. Eggertsson skrifar 17. júní 2026 15:15 Loksins, loksins! Það er gríðarlega stór áfangi að hinu langa og margflókna útboðs- og samningaferli vegna Þjóðarhallar sé lokið - þannig að hægt sé að ráðast í þessa mikilvægu framkvæmd. Þetta er eitt flóknasta verkefni sem ég man eftir að hafa komið að. Aðeins útboðs- og valferli Hörpu var eitthvað sambærilegt. Eftir langar umræður og undirbúning var rammi um verkefnið undirritaður milli ríkis og borgar vorið 2022. Lykil samningar um Þjóðarhöll á milli ríkis og borgar náðust á síðustu dögum mínum í embætti borgarstjóra - sem mér þótti sérstaklega vænt um. En ferlið í kjölfarið var ekki síður langt og strangt, sem nú lýkur með þessari glæsilegu niðurstöðu Þjóðarhöll, útlits- og afstöðumynd ASK-arkitekta. Hvað verður í Þjóðarhöll? Þar sem svo lengi hefur verið talað um Þjóðarhöll er ekki nema eðlilegt að ýmsir hafi gleymt hvað í henni felst. Mannvirkið er ætlað fyrir íþróttir, menningu, kennslu og viðburði og á að uppfylla kröfur um alþjóðlega innanhússkappleiki. Gert er ráð fyrir allt að 19.000 m² byggingu, um 8.600 sætum og allt að 12.000 gestum á stærri viðburðum. Keppnissölum má skipta upp þannig að úr verður fjöldi æfingasala. Gömlu Laugardalshöllinni má skipta í tvo æfingavelli fyrir handbolta- eða körfubolta. Nýju Þjóðarhöllinn má skipta í fjóra slíka velli til viðbótar, alls sex sem hægt er að nota á sama tíma. Til viðbótar er nýr þjóðarleikvangur í fimleikum hluti af uppbyggingu Þjóðarhallar þar sem afreksfólk og æfingar barna og unglinga fá framúrskarandi aðstöðu. Áhorfendastúkur má færa og breyta keppnissal í fjóra fullstóra æfingavelli. Aðgengi og önnur uppbygging Áhersla er lögð á góða aðkomu, gott flæði fyrir iðkendur, gesti og starfsfólk og tengingu við núverandi mannvirki í Laugardal. Unnið er með hæðarmuninn í landinu í hönnuninni. Þannig verður nánast innangengt í Þjóðarhöll úr Borgarlínu frá Suðurlandsbraut og má segja að gengið sé inn á fjórðu eða fimmtu hæð, en hægt að komast í gegnum bygginguna niður á jarðhæð, þaðan sé gengið er beint út í Laugardalinn. Austan við Þjóðarhöll er ráðgert að gerður verði þjóðarleikvangur í frjálsum íþróttum og er hópur að störfum sem vinnur að frumathugun varðandi það verkefni. Einnig hefur verið sýnt fram á að stækka megi Skautahöllina sem er þegar hluti af dalnum. Þegar hafa verið gerðir og endurgerðir þrír full-stórir æfingavellir með upphituðu gervigrasi fyrir knattspyrnu á vegum Þróttar og komið er sk hybrid gras á aðalleikvang Laugardalsvallar þannig að þar má nú spila stærri hluta ársins. Þá er tilbúin keppnislýsing fyrir samkeppni um endurbætur og frekari uppbyggingu við Laugardalslaug. Ástæða er einnig til að botna umbætur á áhorfendaaðstöðu á Laugardalsvelli sjálfum sem lengi hefur verið í undirbúningi og til umræðu. Um allar þessar breytingar hefur verið búið í heildarskipulagi og framtíðarsýn fyrir Laugardalinn sem miðstöðvar íþrótta á Íslandi til langrar framtíðar. Heildarskipulag fyrir Laugardalinn frá 2022 skv. tillögu Landslags er rammaskipulag sem hefur ekki formlega stöðu en sýnir hvernig uppbygging í þágu íþrótta og umferðarmál og varðveisla grænna svæða getur farið saman. Til hamingju öll með Þjóðarhöll Það er hægt að þakka bæði núverandi og fyrrverandi ríkisstjórn og samstöðu í borgarstjórn gegnum árin fyrir það að Þjóðarhöll er að verða að veruleika. En ekki síður baráttufólki fyrir betri aðstöðu úr röðum íþróttahreyfingarinnar og foreldra í Laugardal Takk öll og til hamingju öll börn og unglingar og afreksfólk í Laugardalnum. Ekki er minni ástæða til að óska landsliðum Íslands og íþróttahreyfingunni í heild til hamingju með þetta glæsilega mannvirki og byltinguna sem henni mun fylgja varðandi alla aðstöðu. Til hamingju með Þjóðarhöll! Höfundur er alþingismaður Reykvíkinga og fyrrverandi borgarstjóri. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Dagur B. Eggertsson Ný þjóðarhöll Reykjavík Mest lesið Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Skoðun Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Samdráttur í losun Íslands – en ekki kerfisbreyting Sigurpáll Ingibergsson skrifar Skoðun Við tryggjum ekki lýðræðið eftir á Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Veit hið opinbera hvað virkar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Skeifan í smjörinu Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta reddast: en hvað ef það reddast ekki? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann skrifar Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Getureglan og froðan Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Hvernig lögum við fegurðarskyn okkar að orkuskiptabyltingunni? Páll Jakob Líndal skrifar Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hver borgar? — Seinni hluti: Já 2026 Gestur Valgarðsson skrifar Sjá meira
Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar
Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar