Arnhildur Pálmadóttir er borgarlistamaður Reykjavíkur Magnús Jochum Pálsson skrifar 17. júní 2026 14:47 Arnhildur Pálmadóttir er margverðlaunaður arkitekt og borgarlistamaður Reykjavíkur árið 2026. Stjr Arkitektinn Arnhildur Pálmadóttir var útnefnd borgarlistamaður Reykjavíkur árið 2026 við hátíðlega athöfn í Höfða í dag. Arnhildur hefur vakið athygli fyrir framsæknar hugmyndir, hlaut umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs árið 2024 og var fulltrúi Íslands á Feneyjartvíæringnum í arkitektúr ári síðar.
Útnefningin er heiðursviðurkenning einstaklings sem með sköpun sinni hefur skarað fram úr og markað sérstök spor í íslenskri list, að þessu sinni byggingarlist. Hildur Björnsdóttir borgarstjóri gerði grein fyrir valinu á Arnhildi sem hefur vakið athygli fyrir framsæknar hugmyndir í arkitektúr, sérstaklega hvað varðar sjálfbærni, nýtingu auðlinda og framtíð byggingariðnaðarins. Verk Arnhildar og rannsóknir snúa oft að því hvernig hægt sé að byggja umhverfisvænni borgir og byggingar. Arnhildur fékk ágrafinn stein frá Steinsmiðju S. Helgasonar, heiðursskjal og verðlaunafé að virði 1,2 milljónar króna. Óhrædd við að ögra Arnhildur Pálmadóttir fæddist í Reykjavík 22. júlí 1972, lauk arkitektúrnámi við Listaháskóla Íslands árið 2006 og fór í framhaldsnám í hinum virta arkitektaskóla IAAC í Barcelona á Spáni. Arnhildur stofnaði arkitektastofuna Sap arkitekta árið 2018 og hefur um árabil verið í fararbroddi nýrrar hugsunar í byggingarlist og skipulagi, komið með hugmyndir sem ögra og fengið fólk til að hugsa á nýjan hátt um samband manns, umhverfis og samfélags. Í verkum sínum og rannsóknum hefur Arnhildur sýnt að arkitektúr er ekki aðeins spurning um byggingar, heldur samfélagslegt afl sem mótar hvernig fólk býr, hvernig við upplifum umhverfi okkar og hvernig við skiljum möguleika framtíðarinnar. Fyrr á árinu hlaut Arnhildur hönnunarverðlaun frá New European Bauhaus í flokki hringrásarsamfélagsins fyrir hönnun íbúðakjarna að Háteigsvegi 59. Markvisst var unnið að því að lækka kolefnisspor hússins samhliða hönnun þess. Frumkvöðlastarf í byggingarlist Arnhildur hefur vakið athygli langt út fyrir landsteinana fyrir frumkvöðlastarf á sviði sjálfbærrar byggingarlistar og tekið þátt í alþjóðlegum sýningum og umræðu. Árið 2024 hlaut Arnhildur Umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs fyrir þverfaglega nálgun og áherslu á minnkaða kolefnislosun og endurnýtingu byggingarefnis. Arnhildur Pálmadóttir hlaut Umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs árið 2024 og hefur nú verið valin borgarlistamaður Reykjavíkur. Þá var hún sýningarstjóri íslenska skálans á Feneyjatvíæringnum í arkitektúr árið 2025, en það var í fyrsta sinn sem Ísland tók þátt. Arnhildur setti fram djarfa framtíðarsýn með sýningunni Hraunmyndanir (Lavaforming) í Feneyjum en hún fjallar um hvernig nýta mætti íslenskt hraun sem byggingarefni og umbreyta þannig náttúruafli sem oft er litið á sem ógn í verðmæta auðlind. Sýningin vakti mikla athygli og undirstrikar einstaka hæfni Arnhildar til að tengja saman nýsköpun og sjálfbærni. „Arnhildur hefur um árabil verið í fararbroddi nýrrar hugsunar í byggingarlist og skipulagi og hafa verk hennar vakið verðskuldaða athygli bæði hérlendis og erlendis,“ sagði Hildur Björnsdóttir borgarstjóri við athöfnina. Arnhildur þakkaði fyrir viðurkenninguna sem hún sagði að væri mikill heiður. Hún sagði ánægjulegt að byggingarlist væri gert hátt undir höfði. „Ég þakka fyrir þennan heiður og lít á hann sem hvatningu til að halda áfram að spyrja spurninga, ögra viðteknum hugmyndum og taka þátt í samtalinu um þá framtíð sem við viljum skapa saman,“ sagði hún.
Reykjavík Arkitektúr Borgarstjórn Mest lesið Svaf til fóta eftir fyrstu sambandsslitin Lífið Flúði Pútín og þurfti svo að glíma við MAST Lífið John Grant tók Eldborg með áhlaupi — en hjartað vann stríðið Gagnrýni Tónlistin bjargráð eftir erfiða kulnun Tónlist Myndaveisla: Aldrei of gamall til að skella sér á bak Menning Djömmuðu sem dauðasyndirnar sjö Lífið Arnhildur Pálmadóttir er borgarlistamaður Reykjavíkur Menning Hvað veistu um... HM karla í fótbolta? Lífið Hafþór Júlíus reynir að hafa uppi á manni Lífið Veggjakrotað með kandýfloss á sýningunni „Hæhóogjibbíjei” Menning Fleiri fréttir Arnhildur Pálmadóttir er borgarlistamaður Reykjavíkur Veggjakrotað með kandýfloss á sýningunni „Hæhóogjibbíjei” Myndaveisla: Aldrei of gamall til að skella sér á bak David Hockney er látinn Ný bók frá Kirkegaard 47 árum eftir dauða hans Pissaði fyrir framan fólk í sjö klukkutíma á dag Þorgerður Katrín og Sólveig Anna í þrumustuði í Þulu Metsöluhöfundur birtist óvænt á Ísafirði og áritaði bækur Marjane Satrapi er látin „úr sorg“ Natasha S. hlýtur Maístjörnuna Deilt um sýningu Bjarkar: „Asnalega uppsett og kostnaðarsamt prump“ Samfélag í bleyti framlag Íslands á Feneyjartvíæringnum í arkitektúr Aðalsteinn Bergdal er látinn Jónmundur bæjarlistamaður Garðabæjar 2026 Stóri skandallinn, óvæntir sigurvegarar og ótvíræð taplið Óresteia og Lína sigursælust á Grímunni Fjörður og mynd um áhrif innrásar Rússa verðlaunuð í Cannes „Þetta parísarhjól sökkar“ Tónlistariðnaðurinn mikið til „klám og rúnk“ Lætur Parkinson ekki lengur stöðva sig Borgin vill breyta Ingólfstorgi í sumarmarkað: „Eins og þruma úr heiðskíru lofti“ Tíminn stóð í stað í bílveltunni Sjóðheitir listamenn í eina litríka sæng Benedict snýr aftur í Þjóðleikhúsið og Óresteia í útrás Heiðra Sigrúnu Eldjárn með sérstöku brunnloki í Lækjargötu Myndlistarkonan Rúna er látin Netflix setti leikárið í Borgó í uppnám Sjá meira