„Hann var orðinn svo ofboðslega kaldur“ Freyja Þórisdóttir skrifar 16. júní 2026 07:57 Sigurgeir hefur synt yfir Ermasund til styrktar Píeta samtökunum en það er um 30 kílómetra langt sund. Instagram/Tilhversaðsigla/Facebook/Sigurgeir Sigurgeir Svanbergsson sjósundskappi varð að ljúka sundi niður Lagarfljót snemma vegna ofkælingar en fljótið var kaldara en búist var við. Hann hóf sundið niður Lagarfljót um klukkan níu í gærkvöldi, mánudaginn 15. júní, en áætlað hafði verið að það tæki um sólarhring að synda þessa leið sem er um fimmtíu kílómetra löng. Tilgangurinn var að vekja athygli á þjónustu Píeta samtakanna á Austurlandi og um land allt.
Í færslu sem birt var á Instagram-reikningi Sigurgeirs, „Til hvers að sigla?“, er greint frá því að aðstæður í Lagarfljóti hafi ekki verið eins og spár, fyrri ár og athuganir hafi gert ráð fyrir. Vatnið hafi verið um tvær til fjórar gráður, en ekki átta gráður eins og gert var ráð fyrir. Um klukkan fjögur í nótt, þegar hann var búinn að synda um fimmtán kílómetra, var Sigurgeir orðinn of kaldur að mati yfirlæknis stuðningsteymisins, Óskars Kristjánssonar, sem í myndbandsfærslu taldi líkamshita Sigurgeirs vera um 34,0-34,5 gráður. View this post on Instagram A post shared by Sigurgeir (@til_hvers_ad_sigla) „Hann var orðinn svo ofboðslega kaldur að það var mjög erfitt fyrir hann að synda,“ segir Vigdís Diljá Óskarsdóttir, stjórnandi samskipta- og samfélagsmála hjá Alcoa Fjarðaáli og ein þeirra sem voru í stuðningsteyminu sem fylgdi Sigurgeiri í nótt. Hún bætir við að hann sé mjög leiður yfir því að hafa ekki náð að klára sundið. Mun ná fullri heilsu en tekur smá pásu „Það er sorglegt að hafa ekki tekist þetta en eins og einhver í teyminu benti á þá þarf líka hugrekki til þess að stoppa,“ segir hún í samtali við blaðamann fréttastofunnar. Sigurgeir hafi verið fluttur á HSA á Egilsstöðum og þaðan á Norðfjörð. Hann sé nú kominn í Neskaupstað og muni ná fullri heilsu aftur en sé undir eftirliti sérfræðinga þar. Sundið sem samsvarar rúmum fimmtíu kílómetrum hefði verið lengsta samfleytta sund sem nokkur maður hefði synt hérlendis. Reikningsnúmer 0301-26-041041 Kennitala 410416-0690 Sóley konan hans fékk að taka myndband af honum lofa því að „taka smá pásu“,“ segir Vigdís en hún segir ekki ólíklegt að hann sé hvergi staðar numinn og minnir á styrktarreikning Píetasamtakanna sem má sjá hér fyrir ofan.
Geðheilbrigði Múlaþing Fljótsdalshreppur Sjósund Tengdar fréttir Lærði skriðsund á YouTube og syndir Ermarsund á morgun Sigurgeir Svanbergsson lærði að synda skriðsund á YouTube fyrir fáeinum árum en syndir Ermarsundið í fyrramálið. Hann hefur verið veðurtepptur í Dover undanfarna daga en hann hefur aðeins vikuglugga til að klára þrekvirkið. 22. júlí 2025 12:15 Mest lesið Grunur um alvarlegt kosningasvindl í Svíþjóð Erlent Barnaníðingur fékk ekki annað leyfi hjá Hæstarétti Innlent „Skólinn okkar er alltof lítill“ Innlent Íslensk ungmenni drekka minnst af orkudrykkjum Innlent Ljóst hvar hnífurinn stendur í kúnni Innlent Beita buddunni til að vega á móti óvinsældum Trumps Erlent Bílastæði við Stúdentagarða verða einkastæði Innlent Sniðganga Hvíta húsið Erlent Verði að bregðast við „bullandi launarýrnun“ Innlent Landlæknir fellir niður starfsleyfi sex lækna Innlent Fleiri fréttir Boða stórsókn í skóla- og menntamálum í Reykjavík Bein útsending: Kynnir nýjar losunartölur Nauðgaði sofandi sambýliskonu sinni og tók myndir Hagsmunir Íslands að efla Sameinuðu þjóðirnar Íslensk ungmenni drekka minnst af orkudrykkjum „Skólinn okkar er alltof lítill“ Barnaníðingur fékk ekki annað leyfi hjá Hæstarétti Ljóst hvar hnífurinn stendur í kúnni Bílastæði við Stúdentagarða verða einkastæði Verði að bregðast við „bullandi launarýrnun“ Flugvirkjar eigi að sýna vilja sinn í verki Lárus Welding á endastöð hjá MDE Segja Icelandair hafa hafnað boði um frestun verkfalls Bifreið fjarlægð með krana eftir að eldur kviknaði Litlu nær um peningana í Fljótagöng Hefði þegið samtal við Jóhannes Tekjur af fiski utan kvóta rúmlega fjórfaldast á fimm árum „Norðurlöndin eru ekki að eltast við skráningarskyldu hlaðvarpa“ Muni grípa til nauðsynlegra aðgerða vegna verkfallsins Tveir á vinnupalli sem hrundi Landlæknir fellir niður starfsleyfi sex lækna Útgjaldaaukningin mest hjá Ragnari Skoða hvort útlendingar þurfi að bíða eftir fullri aðstoð Niður í ellefu ára bruni um á allt að 100 kílómetra hraða Börn á rafmagnskrossurum og Kópavogur vill herða reglur Sigmar í veikindaleyfi Tafir á Keflavíkurflugvelli Vilja þingkosningar og staðgöngumæður Samninganefnd Reykjavíkurborgar leyst undan störfum Barn á rafmagnskrossara sótt af foreldrum sínum Sjá meira
Lærði skriðsund á YouTube og syndir Ermarsund á morgun Sigurgeir Svanbergsson lærði að synda skriðsund á YouTube fyrir fáeinum árum en syndir Ermarsundið í fyrramálið. Hann hefur verið veðurtepptur í Dover undanfarna daga en hann hefur aðeins vikuglugga til að klára þrekvirkið. 22. júlí 2025 12:15