Ísland á auðlindir sem Danir eiga ekki – hvers vegna eru kjörin betri í Danmörku? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar 15. júní 2026 10:00 Ísland er ríkt land með sterka og góða menningu. Við eigum auðlindir sem margar þjóðir geta aðeins dreymt um. Við eigum fiskimið sem eru meðal þeirra verðmætustu í heimi, hreint vatn og endurnýjanlega orku. Við eigum jarðhita sem vekur athygli um allan heim. Þess vegna heyrist oft í umræðunni að Ísland þurfi ekki á Evrópusambandinu að halda. En spyrjum: Af hverju hefur Danmörku tekist að byggja upp eitt samkeppnishæfasta hagkerfi heims án þeirra auðlinda sem Ísland býr yfir? Skoðum betur í þessari grein hvers vegna Ísland með sínar sérreglur og örgjaldmiðil nýtir ekki nægjanlega vel sínar auðlindir. Auðlindir skapa ekki sjálfkrafa velmegun Auðlindir eru grunnur, en hvernig og hvar verða verðmætin til? Saga síðustu áratuga sýnir að mestu verðmætin verða til þegar þjóðir tengja auðlindir líka við; rannsóknir, þekkingu, tækni og nýsköpun. Þannig ná þau að selja á bestu verðunum. Við sjáum það í Danmörku, Hollandi og Írlandi. Þessar þjóðir flytja ekki fyrst og fremst út hrávöru. Mesta verðmætasköpunin verður með því að nýta betur; þekkingu, hugviti og bjóða hagkvæmari lausnir. Fiskurinn er grunnauðlind – þekkingin er verðmæti framtíðar Við eigum að halda áfram að nýta fiskimiðin vel og orkuna. En stærsta verkefni næstu áratuga er að skapa meira virði úr auðlindunum en við gerum í dag. Ekki með því að veiða meira. Heldur með því að nýta og selja meiri þekkingu. Þetta á við um allar okkar auðlindir. Ofan á grunnauðlindirnar þurfum við að geta selt okkar þekkingu og getu til að nýta þær enn betur. Þannig getum við gefið komandi kynslóðum fleiri og dýrmætari tækifæri. Hvers vegna fara fyrirtækin núna oft úr landi? Íslendingar hafa sýnt aftur og aftur að þeir geta byggt upp öflug sprotafyrirtæki. Ný fyrirtæki verða til á Íslandi. Þau koma undir sig fótunum og ná árangri. En þurfa þá meira fjármagn til að komast á stærri markaði. Þá bregst hið lokaða íslenska regluverk og fjármálakerfi. Fyrirtækin fá nýtt fjármagn eða eru seld og þá eru sett skilyrði að höfuðstöðvarnar verði fluttar frá Íslandi. Núverandi staða er okkur því mjög dýr og grefur undan okkar eigin hagvexti til framtíðar. Við erum að flytja út framtíðarstörf, skatttekjur og tækifæri Íslendinga til að vinna við verðmæt störf á Íslandi. Þessi þróun er þegar hafin, ef við náum ekki að bjóða hátæknistörf á Íslandi þá flytur ungt fólk erlendis eða kemur ekki heim eftir langskólanám eins og vel þekkt er í dag. Við verðum að spyrja: Hvernig getum við tryggt að fleiri fyrirtæki vaxi áfram á Íslandi? Ísland þarf fleiri traust alþjóðleg fyrirtæki Eftir fimmtíu ár munu þjóðir ekki fyrst og fremst keppa um grunnauðlindir eins og fisk. Samkeppnishæfni mun byggja á þekkingu og hæfni unga fólksins til að skapa ný verðmæti í samræmi við þróun samfélaga. Þá skiptir mestu máli að vera í góðu samstarfi um rannsóknir, gervigreind, heilbrigðistækni og græna orku. Ísland hefur alla burði til að taka þátt í samkeppni framtíðarinnar. Við eigum að byggja á okkar vel menntaða fólki, auðlindum, lýðræði og friðarmenningu sem sífellt fleiri þjóðir sækjast eftir. Eina leiðin til að koma okkar menningu á framfæri er að vera við borðið með öðrum ESB ríkjum. Við erum fá en höfum alla burði til að láta okkar skoðun og rödd heyrast við borðið. Til framtíðar er mikilvægt að skapa aðstæður fyrir alþjóðleg fyrirtæki til að fjárfesta hér og byggja upp starfsemi. Við þurfum að stöðva flótta okkar unga hæfileikafólks úr landi. Við eigum að laða vel menntað fólk til Íslands. Munum að það er fjöldi Íslendinga erlendis sem gjarnan vill koma heim þegar tækifæri bjóðast á Íslandi, t.d. sambærileg við þau sem bjóðast í Danmörku. Já við að skoða framtíðarmöguleika Þjóðaratkvæðagreiðslan í ágúst snýst ekki um að afhenda auðlindir eða sjálfstæði Íslands. Hún snýst um hvort við eigum að kanna hvort hægt sé að skapa betri skilyrði fyrir næstu kynslóðir. Hvort við getum aukið samkeppnishæfni Íslands. Hvort við getum laðað að meiri fjárfestingu. Hvort við getum byggt upp fleiri hátæknistörf. Hvort við getum tryggt að fleiri íslensk fyrirtæki verði áfram íslensk þegar þau vaxa. Hvort við getum umbreytt meiri hluta verðmætasköpunarinnar úr hrávöru yfir í þekkingu. Munum - Við eigum áfram auðlindirnar. En það sem skiptir mestu máli hvernig við nýtum þær. Það er mikilvægt að nýta tækifærið núna - hefja vegferðina fyrir komandi kynslóðir Íslendinga. Höfundur er viðskiptafræðingur og áhugamaður um farsæla framtíð Íslands. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Þorvaldur Ingi Jónsson Mest lesið Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Nei er ókei Ágúst Valves Jóhannesson skrifar Skoðun Hvað ef? Pétur B. Sveinsson skrifar Skoðun Húsnæðisvextir lækka ekki sjálfkrafa með evru Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Mun ESB hjálpa við vegagerð á Íslandi? Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Við erum í partíinu en megum ekki velja lag Árni Páll Jónsson skrifar Skoðun Með öllum mjalla? Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Fyrsti steinninn úr múrnum – af hverju ég segi já Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir skrifar Skoðun Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Til hvers var þá barist? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Skynsamleg röð hlutanna Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Græða fyrirtæki á verðbólgu? Konráð S. Guðjónsson skrifar Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson skrifar Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Sjá meira
Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar