Njósnarar enn í lögsögunni Agnar Már Másson skrifar 12. júní 2026 16:54 Rússneska njósnaskipið Yuri Ivanov. Utanríkisráðuneytið Rússneskt njósnaskip siglir enn um íslenska lögsögu og hefur nú gert það í um viku.
Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi hjá Landhelgisgæslunni, staðfestir í samtali við Vísi að skipið sé enn í íslensku efnahagslögsögunni en greint var frá því síðasta laugardag að Landhelgisgæslan og varnarmálayfirvöld fylgdust með skipinu, er nefnist Yuri Ivanov. Ásgeir kveðst ekki geta tjáð sig meira um málið. Skipið er hluti af norðurflota rússneska sjóhersins. Íslensk varnarmálayfirvöld segjast ekki hafa sérstakar áhyggjur af skipinu enda stafi lítil sem engin hætta af sjálfu sjófarinu. Það er er 95 metrar að lengd, 16 metrar að breidd, vegur allt að fjögur þúsund tonn fullfermt og er með rými fyrir ríflega 120 manna áhöfn. Þá er skipið enn fremur búið háklassa njósnabúnaði, svo sem loftnetum, sem er ætlað að veita rússneska sjóhernum getu til upplýsingaöflunar, eftirlits, rafræns hernaðar, flotaumsjónar og hlerunar, samkvæmt skráningu þess í opna varnarmálagagnagrunninum. Það á sér systurskip, Ivan Kursch, sem hefur siglt um Eystrasaltið undanfarin misseri. Áður en skipið kom hingað hafði það verið á sveimi í kringum kafbátaæfingu Atlantshafsbandalagsins (NATO), Dynamic Mongosse, sem haldin var fyrir utan strendur Noregs seinni hluta maí.
Öryggis- og varnarmál Rússland Mest lesið Samninganefnd Reykjavíkurborgar leyst undan störfum Innlent Fyrirgefur Lindsay fyrir að myrða börnin Erlent Pútín sló öll met Erlent Rýma húsið: „Draumurinn er að Reykjavíkurborg geti hjálpað okkur“ Innlent Sigmar í veikindaleyfi Innlent Sigurboginn verður leyniskyttuhreiður Erlent Niður í ellefu ára bruni um á allt að 100 kílómetra hraða Innlent Skattadrottning þurfti að borga álag eftir allt saman Innlent Barn á rafmagnskrossara sótt af foreldrum sínum Innlent Skipuleggur eigin jarðarför Innlent Fleiri fréttir Niður í ellefu ára bruni um á allt að 100 kílómetra hraða Börn á rafmagnskrossurum og Kópavogur vill herða reglur Sigmar í veikindaleyfi Tafir á Keflavíkurflugvelli Vilja þingkosningar og staðgöngumæður Samninganefnd Reykjavíkurborgar leyst undan störfum Barn á rafmagnskrossara sótt af foreldrum sínum Rýma húsið: „Draumurinn er að Reykjavíkurborg geti hjálpað okkur“ Skattadrottning þurfti að borga álag eftir allt saman Vill þyngja hámarksrefsingu fyrir að kaupa vændi af barni „Mikill skilningur á því að það þurfti að fara í breytingar“ Hólmarnir í Tjörninni fá andlitslyftingu Missti stjórn á bílnum og hafnaði á vegg Vonar að „Evrópusambandsblætið“ renni af forystu ríkisstjórnarinnar Fá engin svör frá ráðherra og segja matvælaöryggi undir Fleiri herstöðvar ekki slæm tíðindi fyrir Íslendinga Líklega síðustu hvalveiðivertíðinni lokið Opið bréf til Ingu: „Þetta er „lausn“ á einhverju sem var aldrei vandamál“ Náum verðbólgunni aldrei niður ef ríkið hægir ekki á sér Afi ákærður fyrir brot gegn barnabarni sínu Börnin segja hóp manna hafa elt þau og boðið nammi Danir og Grænlendingar til New York og hettuklæddir menn í Árbæ Arnarfell dregið til Færeyja Fimm nýir í stjórn Ungs jafnaðarfólks „Ég stend eins lengi og ég þarf að standa í þessu“ Hótuðu að loka Vogi Menntakerfið, útlendingamál og hallalaus fjárlög í Sprengisandi Tuttugu lögðu ólöglega Brutust inn hjá fyrirtæki Skipuleggur eigin jarðarför Sjá meira