Þjónusta þjarka og falskra aðganga gengur kaupum og sölu Tómas Arnar Þorláksson skrifar 10. júní 2026 23:13 Finnbogi Jónasson aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá greiningardeild ríkislögreglustjóra. vísir/anton brink Þjónusta þjarka og falskra aðganga til að afvegaleiða umræðuna og auka upplýsingaóreiðu gengur kaupum og sölu á netinu. Greiningardeild ríkislögreglustjóra telur líklegt að erlendir aðilar muni reyna að hafa áhrif fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu varðandi ESB.
Umræða fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna um aðildarviðræður við Evrópusambandið er orðin nokkuð hávær jafnt á kaffistofum landsmanna sem á samfélagsmiðlum og öðrum kimum internetsins. Framkvæmdastjóri landskjörstjórnar hefur hvatt almenning til að vera vakandi fyrir afskiptum erlendra aðila. Netöryggissveitin Certis segir tilefni til að fylgjast betur með upplýsingaóreiðu í boði falskra aðganga og þjarka í aðdraganda kosninganna. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu er nokkuð einfalt að tryggja sér þjónustu svokallaðra þjarkameistara sem stýra fjölda falskra aðganga í því skyni að afvegaleiða umræðuna með greinum eða athugasemdum. Þjónustan gengur kaupum og sölu á netinu fyrir litlar upphæðir, til að mynda á hópum á Telegram. Finnbogi Jónasson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá greiningardeild ríkislögreglustjóra, gerir ráð fyrir því að erlendir aðilar beiti sér til að hafa áhrif á niðurstöður kosninganna, sem sé áhyggjuefni. „Það hefur verið vart við umferð frá svona bottum eða þjörkum núna rétt fyrir síðustu kosningar. Í rauninni er það bara talsvert líklegt og það verði eitthvað slíkt í gangi fyrir þessar kosningar. Það er það sem við höfum verið að sjá í ríkjum í kringum okkur þegar það er verið að kjósa um mikilvæg málefni.“ Hann hvetur almenning til að beita gagnrýnni hugsun og tilkynna grunsamlega umferð á netinu til lögreglu. „Birtingarmyndin getur verið alls konar. Hún er allt frá því að vera bottar sem að eru augljósir og það er til að skapa umræðu og sundrung í þjóðinni að þetta sé í gangi. Síðan eru þessir bottar sem eru mjög fágaðir, samfélagsmiðlareikningar sem hafa kannski verið virkir árum saman og ekkert sem gefur til kynna að um gervi aðgang sé að ræða. Þá eru menn jafnvel búnir að vera í stjórnmálaumræðunni í einhver ár án þess að nokkur átti sig á því.“ Þau ríki sem eiga hagsmuni undir hvort Ísland gangi í ESB eður ei eru talin líklegust til að beita sér. „Erlendis hafa menn verið að sjá leyniþjónustur erlendra ríkja og þá helst þeirra ríkja sem eru skilgreind óvinveitt eða áhugaverð af Atlantshafsbandalaginu. En síðan getur þetta verið allt saman frá því að vera einstaklingar upp í hagsmunasamtök, fyrirtæki, stofnanir og önnur ríki og þá jafnvel ríki sem við myndum almennt telja vera vinveitt. Þeir sem hafa hagsmuni af því að Ísland sé annað hvort í Evrópusambandinu eða gangi ekki í Evrópusambandið. Við teljum líklegt að það verði gerðar tilraunir til að hafa áhrif á stjórnmálaumræðuna á Íslandi með þessum hætti.“
Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Netglæpir Mest lesið Samninganefnd Reykjavíkurborgar leyst undan störfum Innlent Fyrirgefur Lindsay fyrir að myrða börnin Erlent Rýma húsið: „Draumurinn er að Reykjavíkurborg geti hjálpað okkur“ Innlent Pútín sló öll met Erlent Sigurboginn verður leyniskyttuhreiður Erlent Skattadrottning þurfti að borga álag eftir allt saman Innlent Barn á rafmagnskrossara sótt af foreldrum sínum Innlent Skipuleggur eigin jarðarför Innlent Vilja þingkosningar og staðgöngumæður Innlent Maður á níræðisaldri lést í átökum um sólbekk Erlent Fleiri fréttir Börn á rafmagnskrossurum og Kópavogur vill herða reglur Sigmar í veikindaleyfi Tafir á Keflavíkurflugvelli Vilja þingkosningar og staðgöngumæður Samninganefnd Reykjavíkurborgar leyst undan störfum Barn á rafmagnskrossara sótt af foreldrum sínum Rýma húsið: „Draumurinn er að Reykjavíkurborg geti hjálpað okkur“ Skattadrottning þurfti að borga álag eftir allt saman Vill þyngja hámarksrefsingu fyrir að kaupa vændi af barni „Mikill skilningur á því að það þurfti að fara í breytingar“ Hólmarnir í Tjörninni fá andlitslyftingu Missti stjórn á bílnum og hafnaði á vegg Vonar að „Evrópusambandsblætið“ renni af forystu ríkisstjórnarinnar Fá engin svör frá ráðherra og segja matvælaöryggi undir Fleiri herstöðvar ekki slæm tíðindi fyrir Íslendinga Líklega síðustu hvalveiðivertíðinni lokið Opið bréf til Ingu: „Þetta er „lausn“ á einhverju sem var aldrei vandamál“ Náum verðbólgunni aldrei niður ef ríkið hægir ekki á sér Afi ákærður fyrir brot gegn barnabarni sínu Börnin segja hóp manna hafa elt þau og boðið nammi Danir og Grænlendingar til New York og hettuklæddir menn í Árbæ Arnarfell dregið til Færeyja Fimm nýir í stjórn Ungs jafnaðarfólks „Ég stend eins lengi og ég þarf að standa í þessu“ Hótuðu að loka Vogi Menntakerfið, útlendingamál og hallalaus fjárlög í Sprengisandi Tuttugu lögðu ólöglega Brutust inn hjá fyrirtæki Skipuleggur eigin jarðarför Eldur í bíl í Heiðmörk Sjá meira