Framkvæmdir við Hvammsvirkjun í vari út árið Árni Sæberg skrifar 10. júní 2026 16:24 Guðjón Ármannsson hæstaréttarlögmaður segir niðurstöðu héraðsdóms ánægjulega. Vísir/Lýður Valberg Lögmaður Landsvirkjunar í máli sem landeigendur við Þjórsá höfðuðu til að stöðva framkvæmdir við Hvammsvirkjun segir framkvæmdirnar í vari út árið, hvað sem líður mögulegri áfrýjun landeigendanna.
Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði íslenska ríkið, Landsvirkjun og fleiri í dag af öllum kröfum landeigenda við Þjórsá, sem kröfðust þess meðal annars að virkjunarleyfi Landsvirkjunar vegna Hvammsvirkjunar yrði ógilt. Það virkjunarleyfi var gefið út í desember í fyrra eftir að Hæstiréttur hafði ógilt fyrra virkjunarleyfi í júlí sama ár. Útgáfa nýs leyfis var byggð á breytingu á raforkulögum og lögum um stjórn vatnamála. Í kjölfar lagabreytingarinnar sögðu bæði Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis- orku og loftslagsráðherra, og forsvarsmenn Landsvirkjunar að lagagrundvöllur fyrir útgáfu virkjunarleyfis væri skýr. Gríðarlega mikilvægt að framkvæmdir fái að halda áfram Nú virðist Héraðsdómur Reykjavíkur hafa staðfest það með því að slá því föstu að virkjunarleyfið sé lögmætt og hafna öllum ógildingarkröfum landeigendanna. Guðjón Ármannsson, sem flutti málið fyrir hönd Landsvirkjunar, ræddi við Vísi að lokinni dómsuppsögu í dag. „Þetta er auðvitað bara héraðsdómur en hvað sem öðru líður þá er ljóst að framkvæmdir á þessu ári hjá Landsvirkjun við byggingu Hvammsvirkjunar, þær eru í vari út árið, þær eru í skjóli og það er auðvitað gríðarlega mikilvægt að framkvæmdir geti haldið áfram. Undirbúningsframkvæmdum Landsvirkjunar lauk á síðasta ári og nú eru hinar eiginlegu virkjunarframkvæmdir í gangi.“ Engin útistandandi mál Hann segir annarra að svara því hvenær megi búast við því að Hvammsvirkjun verði ræst en dómur dagsins sé í samræmi við væntingar. „Hann er gleðilegur og vonandi verður þetta punktur í annars áralöngum deilum um þessa virkjun.“ Þá segir hann að engin mál séu útistandandi að svo stöddu, þannig hafi leyfi Fiskistofu vegna virkjunarinnar verið staðfest með dómi Hæstaréttar í fyrra, þær framkvæmdir sem nú eru í gangi séu innan Rangárþings ytra og framkvæmdarleyfi þess sveitarfélags séu hvorki fyrir kærunefndum né dómstólum. „Þannig að þetta er auðvitað óskaplega ánægjulegt allt saman en eins og ég segi, þetta er bara héraðsdómur og það á eftir að koma í ljós hvort þetta fer áfram en nú er fyrst og fremst ánægja að þetta hafi farið á þennan veg.“
Deilur um Hvammsvirkjun Dómsmál Umhverfismál Orkumál Mest lesið Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Innlent Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Innlent Holmes flutt á áfangaheimili Erlent Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Innlent Fleiri fréttir Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Hver ákvað að Guðmundur Ingi ætti að hætta? Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Fundu umfangsmikla kannabisrækt í Bolungarvík „Nauðsynlegt er að kjarasamningar haldi“ Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Freyr látinn fara frá Eflingu Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Stefna á að taka inn skjólstæðinga í næstu viku Segir Ingu hafa brotið trúnað í ræðustól Alþingis Bein útsending: Sjálfsvíg á Íslandi – staðan, forvarnir og leiðin fram á við „Við erum ekki að byrja á núlli“ Fimm ára dómur Norberts staðfestur Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Jöfnuður næst ekki í um öðrum hverjum kosningum Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Endurskoða samning SÁÁ María Sigurðardóttir er látin Handtekinn fyrir líkamsárás, rán, íkveikju og þjófnað Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Sjá meira