„Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ Sindri Sverrisson skrifar 9. júní 2026 16:48 Emma Sóldís Svan Hjördísardóttir er komin heim í KR eins og kynnt var á blaðamannafundi í dag. vísir/Sigurjón Eftir sex ár í burtu, sem vægast sagt hafa verið krefjandi, er Emma Sóldís Svan Hjördísardóttir mætt aftur heim í KR og klár í að stefna hátt í Bónus-deildinni í körfubolta á næstu leiktíð. „
Það er orðið svolítið síðan ég var hérna en ég er ótrúlega spennt fyrir komandi tímum,“ segir Emma. Hún er aðeins 22 ára gömul en hefur þurft að sýna mikla þrautseigju á sínum ferli og var í vetur að jafna sig eftir að hafa slitið krossband í hægra hné í annað sinn á ferlinum. Klippa: Emma Sóldís heim í KR eftir krefjandi ár Emma spilaði því ekkert með Hamri/Þór á síðustu leiktíð en þangað fór hún eftir að hafa snúið heim til Íslands úr bandaríska háskólaboltanum, þar sem hún lék með Liberty Flames eftir að hafa jafnað sig af því að slíta krossband í fyrra skiptið, í mars 2023 þegar hún var leikmaður Hauka. „Það er ótrúlega leiðinlegt að ganga í gegnum þetta en ég hef alltaf komið sterkari til baka. Maður þarf bara að njóta á meðan maður getur spilað. En ég er orðin mjög góð og er bara þakklát. Ég kom heim [veturinn 2024-25] og spilaði örfáa leiki, og var komin á ótrúlega góðan stað fannst mér, en sleit svo aftur og hef núna tekið heilt ár í endurhæfingu. Ég hef unnið mjög hart að því að snúa aftur og er mjög spennt fyrir komandi tímum,“ segir Emma. „Við stefnum á alla titla“ Hún hefur leikið fyrir yngri landslið og A-landslið Íslands og ætti að reynast góður liðsstyrkur fyrir KR-inga sem þrátt fyrir að vera nýliðar náðu 3. sæti í deildarkeppni Bónus-deildarinnar í vetur en féllu svo út í 8-liða úrslitum gegn Keflavík. KR kynnti í dag sömuleiðis landsliðskonuna Söru Rún Hinriksdóttur til leiks sem nýjan leikmann en hún kemur frá Keflavík. „Mér líst rosalega vel á liðið og Danna [Daníel Andra Halldórsson, þjálfara KR], er ótrúlega spennt fyrir að kynnast þeim betur og spennt fyrir tímabilinu. Við stefnum á alla titla. Þetta er ótrúlega spennandi lið með frábæran þjálfara. Ég hef aðeins fengið að spila með Söru í landsleikjum og ég er mjög spennt fyrir að spila með henni hérna. Þetta er frábært „sign“ hjá okkur. Hún er fyrst og fremst leiðtogi, elst og hefur spilað í Evrópu, og getur leitt liðið okkar með reynslu. Það er geggjað að fá hana sem viðbót í liðið,“ segir Emma.
Bónus-deild kvenna KR Mest lesið Sænskur varnarjaxl ólétt og segir að ferlinum sé lokið Fótbolti Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Íslenski boltinn Jón Þór ráðinn til Stjörnunnar Fótbolti Bandaríkin byrja sterkt á heimavelli Fótbolti Segir að það sé bara einn heimsklassaleikmaður í enska landsliðinu Fótbolti Braut nálgunarbann með því að heimsækja kærustu sína Sport Maður dagsins á HM: Ólst upp í Englandi en valdi Bandaríkin Fótbolti Ung frjálsíþróttakona lést í fríi með fjölskyldunni Sport Breiðablik og Víkingur mætast í undanúrslitum Íslenski boltinn Aron Elís: „ Ég ætla ekki að fara jinxa neitt“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Sjá meira