Var samninganefndin að vinna eftir umboði Alþingis? Erna Bjarnadóttir skrifar 9. júní 2026 13:01 Þegar Alþingi samþykkti þingsályktun um aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu 16. júlí 2009 fól það ríkisstjórninni ekki aðeins að leggja fram umsókn. Í sjálfri þingsályktuninni var einnig kveðið á um að við undirbúning viðræðna og skipulag þeirra skyldi ríkisstjórnin fylgja þeim sjónarmiðum um verklag og meginhagsmuni sem fram komu í áliti meiri hluta utanríkismálanefndar. Þau sjónarmið voru því hluti af því umboði sem Alþingi veitti. Í álitinu voru meðal meginhagsmuna Íslands talin forræði þjóðarinnar yfir fiskveiðiauðlindinni, sjálfbær nýting hennar, hlutdeild í deilistofnum og eins víðtækt forsvar í hagsmunagæslu í sjávarútvegi og kostur væri. Meðferð umsóknar Íslands meðal ESB ríkja á þeim tíma Þegar ríki sækir um aðild að ESB fer umsóknin fyrir þjóðþing allra aðildarríkjanna og er metin á vegum nefnda þess samkvæmt reglum hvers lands um sig. Í nefndaráliti Evrópumálanefndar þýska sambandsþingsins frá 21. apríl 2010 er greint frá fundi nefndarinnar með Stefáni Hauki Jóhannessyni, formanni samninganefndar Íslands gagnvart Evrópusambandinu, sem fram fór í desember 2009. Í samantekt nefndarinnar segir m.a.: „Island erwarte keine Sonderbehandlung, hoffe aber auf eine zügige Aufnahme des Verhandlungsprozesses.“ Þýtt á íslensku: „Ísland vænti ekki sérmeðferðar en vonaðist eftir skjótri upptöku samningaviðræðuferlisins.“ Um þau mál sem sneru að fiskveiðistefnu og hvalveiðum sagði íslenska samninganefndin hins vegar samkvæmt þessari samantekt Evrópumálanefndar þýska sambandsþingsins: „Hinsichtlich der noch offenen Fragen im Bereich Fischereipolitik und Walfang rechne Island nicht mit Opt-outs, hoffe aber auf individuelle Lösungen.“ Það er að segja að: Að því er varðar þær spurningar sem enn voru óleystar á sviði fiskveiðistefnu og hvalveiða reiknaði Ísland ekki með undanþágum (opt-outs) en vonaðist eftir individuelle Lösungen (sértækum lausnum fyrir Ísland). Þetta er ekki túlkun andstæðinga ESB-aðildar árið 2026. Þetta er sú mynd sem nefnd þýska sambandsþingsins skráði eftir fund með formanni samninganefndar Íslands í desember 2009. Hvernig samrýmdist þetta umboði Alþingis? Erfitt er að sjá hvernig þessi framsetning samrýmist þeim meginhagsmunum sem Alþingi vísaði til í áliti meiri hluta utanríkismálanefndar árið 2009 og vekur spurningar um hvort þeir sem stóðu að umsóknarferlinu hafi lagt sama skilning í umboð Alþingis og þeir þingmenn sem samþykktu umsóknina. Þarna eru undir grundvallarhagsmunir Íslands sem þá líkt og nú eru talin vera óskert forræði þjóðarinnar yfir fiskveiðiauðlindinni, hlutdeild í deilistofnum og forsvar í hagsmunagæslu í sjávarútvegi. Ef formaður samninganefndar Íslands taldi á þessum tíma ekki raunhæft að sækjast eftir undanþágum vaknar sú spurning hvort sú afstaða hafi verið í samræmi við það umboð sem Alþingi veitti með samþykkt þingsályktunarinnar. Hvernig var síðan ætlunin að ná þeim markmiðum sem Alþingi hafði skilgreint sem grundvallarhagsmuni Íslands? Hvernig átti að tryggja forræði yfir fiskveiðiauðlindinni án undanþágu frá sameiginlegri fiskveiðistefnu Evrópusambandsins? Þegar þetta var sagt við þýska þingmenn í desember 2009, lá fyrir að bæði stjórnarflokkar og stjórnarandstaða í Þýskalandi höfnuðu hugmyndum um varanlegar undanþágur í sjávarútvegsmálum og töldu að Ísland yrði að laga sig að sameiginlegri fiskveiðistefnu Evrópusambandsins. Því er ekki nóg að vísa einfaldlega til þess að „allt hafi átt að koma í ljós í samningaviðræðunum“. Alþingi hafði þegar skilgreint ákveðna grundvallarhagsmuni. Ef formaður samninganefndarinnar taldi ekki að undanþágur kæmu til greina hlýtur spurningin að vera hvar hann fékk umboð til að tala með þeim hætti að orð hans voru skilin eins og fram kemur í þessu nefndaráliti. Hér þarf skýrari svör og upplýsingar Áður en nýtt umboð til að „halda áfram viðræðum“ er veitt er eðlilegt að fá skýrt fram hvernig ætlunin sé að ná markmiðum um yfirráð íslendinga yfir fiskveiðiauðlindinni eins og ráða má af nefndaráliti meirihluta utanríkismálanefndar nú og því hvernig gegnið var fram í síðustu viðræðum og lagði meðal annars grunninn að samþykki þýska sambandsþingsins fyrir umsókn Íslands um aðild að ESB. Þessar spurningar verða ekki afgreiddar með vísan til þess að niðurstaðan hafi átt að koma í ljós síðar í samningaviðræðum. Alþingi hafði þegar skilgreint ákveðna grundvallarhagsmuni Íslands og samninganefndin starfaði í umboði þess. Þess vegna stendur spurningin eftir: Hvernig taldi samninganefndin unnt að tryggja óskert forræði þjóðarinnar yfir fiskveiðiauðlindinni ef ekki var reiknað með undanþágum frá sameiginlegri fiskveiðistefnu Evrópusambandsins? Höfundur er hagfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Erna Bjarnadóttir Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Halldór 26.09.2026 Halldór Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Þegar sjálfboðaliðar borga með sér Hildur Dís Jónsdóttir skrifar Skoðun Sleggjan fundin Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Að vaxa út úr vandanum Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Tuttugu ár frá brottför varnarliðsins – úr áfalli í uppbyggingu Árni Sigfússon skrifar Skoðun Gefið með annarri hendinni og tekið með hinni Sigrún Ólafsdóttir,Zophonías O. Jónsson skrifar Skoðun Hvers vegna liggur svona mikið á? Um breytingar á námsmati í grunnskólum Sædís Ósk Harðardóttir skrifar Skoðun Opið bréf til ríkisstjórnar Íslands - Ákall um aðgerðir vegna þjóðarmorðs Halldóra Haraldsdóttir skrifar Skoðun SÁÁ er stærra en einstaklingarnir Ólafur Hand skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar
Skoðun Hvers vegna liggur svona mikið á? Um breytingar á námsmati í grunnskólum Sædís Ósk Harðardóttir skrifar
Skoðun Opið bréf til ríkisstjórnar Íslands - Ákall um aðgerðir vegna þjóðarmorðs Halldóra Haraldsdóttir skrifar