Körfubolti

KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vestur­bæinn

Sindri Sverrisson skrifar
Sara Rún, Emma Sóldís og Rebekka á fundinum í dag.
Sara Rún, Emma Sóldís og Rebekka á fundinum í dag. vísir/sigurjón

Landsliðskonan frábæra Sara Rún Hinriksdóttir hefur kvatt uppeldisfélag sitt Keflavík og er gengin í raðir KR. Félagið hefur einnig endurheimt Emmu Sóldísi Svan Hjördísardóttur og tryggt að Rebekka Rut Steingrímsdóttir haldi kyrru fyrir, og ætlar sér greinilega stóra hluti í Bónus-deildinni í körfubolta á næstu leiktíð.

Sara er 29 ára gömul og hefur leikið sem atvinnumaður á Spáni og Ítalíu, í Rúmeníu og Bretlandi. Hún sneri aftur heim til Keflavíkur í byrjun árs 2024 og hefur verið einn besti leikmaður Bónus-deildarinnar.

Í vetur skoraði Sara að meðaltali 19,5 stig í leik í deildinni og var næstefst Íslendinga í þeim efnum, á eftir Danielle Rodriguez. Hún tók 6,1 fráköst og gaf 3 stoðsendingar, og var með næstbesta framlag Íslendinga á eftir Rodriguez.

Emma Sóldís, sem er einnig landsliðskona, snýr nú heim í KR þar sem hún er uppalin. Hún hefur verið á mála hjá Hamri/Þór, eftir að hafa snúið heim til Íslands úr bandaríska háskólaboltanum þar sem hún lék með Liberty Flames.

Meiðsli hafa hins vegar haft mikil áhrif á feril Emmu en hún sleit krossband í hné í febrúar í fyrra, í annað sinn á ferlinum.

Hin 17 ára gamla Rebekka Rut Steingrímsdóttir hefur svo framlengt samning sinn við KR og verður áfram í burðarhlutverki hjá liðinu. Hún skoraði að meðaltali 15,1 stig í leik í Bónus-deildinni í vetur, tók 4,9 fráköst og gaf 2,9 stoðsendingar.

Rebekka stimplaði sig einnig af krafti inn í íslenska landsliðið þegar hún var valin í fyrsta sinn fyrir leiki í nóvember við Serbíu og Portúgal í undankeppni EM.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×