„Fórnarlambið látið borga brúsann“ Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 9. júní 2026 11:14 Séra Bjarni segir ískyggilegt hvað þrjótarnir eru orðnir flinkir. Vísir/Samsett Bjarni Þór Bjarnason sóknarprestur á Seltjarnarnesi lenti í klóm svikahrappa sem höfðu tæpa hálfa milljón króna af kreditkortinu hans. Hann segir farir sínar ekki sléttar eftir áratuga viðskipti við Íslandsbanka. „
Ég hef verið viðskiptavinur Íslandsbanka áratugum saman. Ég var fyrst viðskiptavinur Útvegsbanka Íslands, síðan Íslandsbanka frá 1990 þegar Útvegsbankinn og þrír aðrir bankar sameinuðust. Árið 2006 breyttist nafnið í Glitni banka. Nýi Glitnir kom árið 2008 og Íslandsbanki hf. hefur verið til frá árinu 2009. Í öll þessi ár hef ég verið trúfastur viðskiptavinur bankans sem hefur borið ýmis nöfn á þessu langa tímabili,“ skrifar Bjarni í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag. Gaf leyfi fyrir úttekunum Á dögunum bárust honum skilaboð frá Íslandsbanka þar sem honu mvar tilkynnt að kreditkortið hans hefði verið fryst vegna dularfullna færslna úti í heimi upp á 170 þúsund krónur. Samanlagt náðu þrjótar af kortinu 424 þúsundum króna á fáeinum dögum. Í samtali við fréttastofu lýsir hann því að hann hafi þá látið loka kortinu og í kjölfarið lagt leið sína í útibú bankans sem hafði samband fyrir hans hönd við enndurkröfudeildina. Daginn eftir fékk hann hins vegar tölvupóst frá endurkröfudeildinni þar sem honum var tjáð að hann ætti ekki rétt á endurgreiðslu þar sem hann hefði gefið leyfi fyrir úttektunum. Engar tryggingar Þrjótunum hafði þannig ekki aðeins tekist að gabba Bjarna heldur bankann sömuleiðis. Hann situr þannig upp með að þurfa að greiða skuldina. „Ég var orðlaus þegar þessu var vísað á mig. Fórnarlambið er látið borga brúsann. Maður hefði haldið að þeir væru með tryggingar fyrir slíku,“ segir hann. Bjarni færði í kjölfarið öll viðskipti sín yfir í annan banka en segist hafa gert það með óbragð í munni.
Íslandsbanki Netglæpir Neytendur Mest lesið „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Innlent „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Innlent Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali Innlent Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Innlent Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Erlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent Fleiri fréttir Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Áfrýjar ekki dómi fyrir brot á Múlaborg Gervigreindin aukið hraða netsvika gríðarlega Góður gangur í fundarhöldum um þinglok Enn tekist á um þingstörfin og gervigreindin eykur hættuna á netglæpum Jóna Árný endurráðin bæjarstjóri „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám Sjá meira