Virðist bjartsýnn á að gæfan sé að snúast Úkraínumönnum í hag Hólmfríður Gísladóttir skrifar 9. júní 2026 11:15 Selenskí var í Lundúnum um helgina, þar sem hann fundaði meðal annars með leiðtogum Bretlands, Þýskalands og Frakklands og heimsótti Karl III. Getty/Wiktor Szymanowicz „Ég held að Pútín sé umkringdur fólki með ólíkar skoðanir. Helmingur vill halda stríðinu áfram. Helmingur vill stoppa. Og ég held að þeir sem koma úr viðskiptalífinu skilji að efnahagslega er ástandið í Rússlandi hræðilegt. Það er að hruni komið.“
Þetta segir Vólódimír Selenskí, forseti Úkraínu, í viðtali við The Guardian. Til umræðu var fundur hans með rússneska auðmanninum Roman Abramovich, sem virðist hafa tekið sér hlutverk milligöngumanns milli stjórnvalda í Moskvu og Kænugarði. Að sögn Selenskís sagði hann við Abramovich að hann myndi aldrei samþykkja að gefa eftir Donbas-héruðin, eins og Vladimír Pútín Rússlandsforseti hefur krafist. Selenskí segir í viðtalinu að hernaðarlega sé Úkraína nú í bestu stöðu sem hún hefur verið síðastliðin tvö og hálft ár. „Við getum ekki fullyrt að Rússland sé að tapa stríðinu en við getum sagt að dag eftir dag eru þeir að tapa forskotinu,“ segir forsetinn. Að sögn Selenskís eru Rússar að tapa að minnsta kosti 30 þúsund hermönnum á mánuði; um 23 til 24 þúsund sem eru drepnir og aðrir sem snúa heim alvarlega særðir. Hann segir mannfallið minna meðal Úkraínumanna. Úkraínumenn hafa verið að gera áhrifamiklar árásir á orkuinnviði í Rússlandi, sem hafa valdið orkuskorti á afmörkuðum svæðum. Hér sést reykur eftir árás stíga til himins í Sankti Pétursborg.Getty/Ali Cura Forsetinn bendir einnig á að þróunin á alþjóðasviðinu hafi ekki reynst Rússum hagfelld en þeir hafa meðal annars tapað stuðningsmönnum í valdastöðum í nýafstöðnum kosningum í Ungverjalandi, Armeníu og Aserbaídsjan. „Þeir eru einangraðir innan Evrópu og einnig frá Bandaríkjunum. Þannig að þeir standa einir,“ segir Selenskí. Hafa ber í huga að forsetinn hefur haldið sig við að lofa stuðning Bandaríkjamanna þrátt fyrir að verulega hafi fjarað undan honum eftir að Donald Trump komst aftur til valda. Selenskí harmar þó í viðtalinu að Úkraína hafi ekki notið stuðnings á við Ísrael og bandamenn Bandaríkjanna í Mið-Austurlöndum. „Það er miður,“ segir hann. Aðspurður um árásir Úkraínumanna á skotmörk í Rússlandi, segir forsetinn þeim öðrum þræði ætlað að fá Rússa til að upplifa það á eigin skinni hvernig það er að búa við stöðug átök. „Sigur í þessu stríði vinnst þegar rússneskt samfélag áttar sig á því að stríðið er hræðilegt, að það það er ekki bara harmleikur fyrir einhvern annan langt í burtu heldur líka fyrir það sjálft. Og ég held að það sé að gerast.“
Úkraína Rússland Bretland Innrás Rússa í Úkraínu Hernaður Mest lesið Samninganefnd Reykjavíkurborgar leyst undan störfum Innlent Fyrirgefur Lindsay fyrir að myrða börnin Erlent Rýma húsið: „Draumurinn er að Reykjavíkurborg geti hjálpað okkur“ Innlent Pútín sló öll met Erlent Sigurboginn verður leyniskyttuhreiður Erlent Skattadrottning þurfti að borga álag eftir allt saman Innlent Barn á rafmagnskrossara sótt af foreldrum sínum Innlent Skipuleggur eigin jarðarför Innlent Vilja þingkosningar og staðgöngumæður Innlent Maður á níræðisaldri lést í átökum um sólbekk Erlent Fleiri fréttir Pútín sló öll met Sigurboginn verður leyniskyttuhreiður Maður á níræðisaldri lést í átökum um sólbekk Noregur og Kanada auka samstarf í varnarmálum Fyrirgefur Lindsay fyrir að myrða börnin Mótmæli í Texas vegna ICE-liða Kallar kosningarnar „hörmung“ en heitir því að fara ekki fet Senda Trump pillu vegna Ameríkukorts „Myndi ekki skrifa undir samkomulag ef það væri ekki gott“ Framtíð kanslarans í húfi Ætlar sér að skipa „gervigreindarkeisara“ Sérstakt veiðileyfi gefið út eftir að hákarl banaði sundmanni á sjötugsaldri Utanríkisráðherra Úkraínu lýsir yfir gríðarlegu þakklæti Vissi að viðræðum miðaði fram „þrátt fyrir skrítin kort“ Glæpahópurinn 764: Átján ára í tíu ára fangelsi fyrir tilraunir til manndráps og nauðgun á netinu Løkke um samninginn: „Næsta vika getur orðið góð vika“ Bandaríkin hafi samið við Danmörku um Grænland Íhuga að fara nýja leið og bjóða Rússum viðskiptasamninga Trump rekur CNN og fleiri fjölmiðla úr Hvíta húsinu Andersson fær stjórnarmyndunarumboðið Hákarl banaði sundmanni Segir „íslamista“ skýra velgengni vinstrimanna Danskar F-35 lentu á Grænlandi í fyrsta sinn Kínverjar leituðu til Írana fyrir hönd Sáda Norðmenn kynna „stærstu breytingarnar frá upphafi“ á EES samstarfinu Segir Karl hafa hljómað himinlifandi eftir dauða Díönu Slapp við fangelsisvist eftir að hafa notað maura í matargerð Rússar kjósa sér 450 skoðanabræður Rússar hafi skipulagt fjölþáttaárás gegn Póllandi Vill fara með Svíþjóð í nýja átt Sjá meira