„Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 8. júní 2026 11:03 Flest bendir til þess að Hótel Flatey verði lokað í sumar. Vísir „Það segir sig sjálft að þú rekur ekki hótel í Flatey ef það eru ekki ferjusiglingar,“ segir einn eigenda Hótels Flateyjar.
Innviðaráðuneytið tilkynnti í síðustu viku að ferjan Baldur myndi taka við siglingum milli lands og Eyja frá og með deginum í dag, á meðan unnið væri að viðgerð á annarri vélar eyjaferjunnar Herjólfs. Stefnt er að því að ljúka viðgerð um miðjan júní. Húseigendur og nágrannar óánægðir Sveitarfélög við Breiðfjörð mótmæltu ákvörðun innviðaráðherra og húseigandi í eynni sömuleiðis. Hann sagðist ekki kaupa það að viðgerðinni lyki á tilsettum tíma og að allt líf í eyjunni yfir sumartímann væri í uppnámi. Til stendur að Særún hefji siglingar samkvæmt áætlun í stað Baldurs en eins og Björn Samúelsson, húseigandi í eynni og varamaður í sveitarstjórn Reykhólahrepps, bendir á er flutningsgeta Særúnar ekki sambærileg Baldurs sem hefur fram að þessu séð eynni fyrir vatni og sorphirðu. Fyrstu starfsmenn áttu að fara út í eyju á morgun Þórarinn Arnar Sævarsson, einn eigenda Hótels Flateyjar, bendir sömuleiðis á að það sé ákveðið grundvallaratriði í hótelrekstri að gestir geti komist til hótelsins og frá því. Hann segir að það sé enn þá til skoðunar meðal eigenda hvernig og hvenær opna eigi hótelið aftur, en ljóst er að það verður ekki í þessari viku. „Eftir að við vorum búin að taka ákvörðun um að opna hótelið aftur, þá var Baldri aftur kippt úr sambandi. Á morgun eru menn að fara út í eyju að gera klárt en þá fer bara ekki Baldur. Þeir koma honum ekki út,“ segir hann. „Við ætlum að hafa reksturinn þannig að hótelið geti rekið sig. Það er okkar eina markmið,“ segir hann.
Flatey Ferjan Baldur Reykhólahreppur Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent Marius látinn laus Erlent Séra Guðni Már kveður Ísland Innlent Fleiri fréttir Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi „Ofurnjósnaskip Pútíns“ í íslenskri lögsögu Framtíð moskítóflugunnar á Íslandi óljós en ræðst á næstu vikum Sjá meira