Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Agnar Már Másson skrifar 11. ágúst 2026 19:10 Koma þyrfti á eins konar áfyllingarkerfi í verslunum. Gert er ráð fyrir því að árið 2030 verði 10 prósent drykkjarvöru í fjölnotapakkningu, síðan væri hægt að skila ílátinu, það hreinsað og svo fyllt aftur á það. Smá eins og gömlu kókflöskurnar. Vísir/Vilhelm Samtök verslunar og þjónustu lýsa áhyggjum af nýrri Evrópureglugerð sem gæti gjörbreytt því hvernig neytendur versla í matinn. Til að draga úr umfangi plastumbúða á að leggja hluta matvöruverslana undir áfyllingarstöðvar. Þá gætu drykkjarvörur og jafnvel skyndibiti verið seld í fjölnota umbúðum, sem ætti svo aftur að skila til söluaðilans.
Benedikt S. Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu, hefur þungar áhyggjur af nýrri umbúðareglugerð Evrópusambandsins sem tekur gildi í mánuðinum og verður að líkindum innleidd á Íslandi á grundvelli EES-samningsins. Til að draga úr vægi einnota umbúða er meðal annars stefnt að því að árið 2030 verði um 10 prósent af söluplássi matvöruverslana sem eru stærri en 400 fermetrar lagt undir áfyllingarstöðvar þar sem neytendur myndu fylla á fjölnota umbúðir. Þá eigi 10 prósent af drykkjarvörum í verslunum að vera seld í endurnýtanlegum umbúðum – og um 40 prósent árið 2040 – svo að hægt verði að skila þeim í verslunina sem muni svo fylla aftur á ílátið. „Margir þekkja gömlu kókflöskuna sem er fyllt og seld í verslun og fyllt aftur á hana og hún aftur sett í sölu,“ útskýrir Benedikt. Reglugerðin er kölluð PPWR og á að draga úr umbúðaúrgangi. Þó að Benedikt telji markmið reglugerðarinnar að mestu jákvæð telur hann að þeim fylgi umfangsmiklar kvaðir og kostnaður fyrir framleiðendur, sem gætu þurft að taka nýjar umbúðir í notkun og jafnvel fjárfesta í nýjum pökkunarlínum. Hann segir að þetta eigi einnig við um skyndibitastaði, sem verði frá og með árinu 2028 látnir afhenda vörur í endurnýtanlegum umbúðum og taka svo á móti þeim á ný, væntanlega gegn gjaldi. „Þar eru uppi fjölmörg álitamál sem snúa að bara svona heilnæmi matvælanna þegar þau eru bara ekki geymd í umbúðum eða í einhverjum stöðluðum umbúðum sem hafa sannað gildi sitt.“ Benedikt telur reglugerðina geta haft þveröfug áhrif á Íslandi og leitt til þess að efnisnotkun í umbúðir aukist á Íslandi og í nágrannaríkjum, sem séu þegar með hátt endurvinnsluhlutfall. „Enda má gera ráð fyrir að meginhluti regluverksins hafi verið svona hannaður með hliðsjón af þörfum og ástandi í Mið- og Suður-Evrópu, sem kannski á ekki við hér og í ýmsu tilliti erum við komin bara lengra en þau ríki sem þar eru.“ Einnig var rætt við Benedikt um málið í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag.
Verslun Neytendur Matvöruverslun Umhverfismál Mest lesið Hörður boðar óvænt til starfsmannafundar Viðskipti innlent Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Viðskipti innlent Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Viðskipti innlent Man varla fundinn í gær: Starfsfólk heldur jafnvel að það sé að fá Alzheimer Atvinnulíf Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Viðskipti innlent Jafnrétti í stjórnum skilyrði fyrir Framúrskarandi fyrirtæki Framúrskarandi fyrirtæki Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Viðskipti innlent Stjórnendur þurfa líka stuðning og FOBO á vinnustöðum eykst Atvinnulíf Samherji selur Margréti til Færeyja Viðskipti innlent Spá óbreyttum vöxtum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hörður boðar óvænt til starfsmannafundar Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Loka Krambúðinni á Húsavík Atvinnulausum Íslendingum fjölgaði um 700 á einu ári Verulegur samdráttur hjá Isavia 50skills tryggir 729 milljónir í fjármögnun Mikill munur á afkomu almannatengla Vill að ríkissáttasemjari fái auknar valdheimildir í kjaradeilu Selja fyrir 400 milljónir í Síldarvinnslunni Setja upp fjörutíu smáhýsi í Þjórsárdal Sextán starfsmönnum sagt upp á Siglufirði Vilja að 23 lóðir verði seldar undan Vatnsendaerfingja Sjá meira