Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 4. júní 2026 13:46 Það eru alvöru kanónur á bakvið kaffihúsið. Nokkur fjöldi þekktra kanóna úr íslensku samfélagi ætlar að opna nýtt kaffihús í vesturbæ Reykjavíkur þar sem verslunin Kjötborg verður til húsa þar til síðar í mánuðinum. Einn verðandi eigenda segir að um sé að ræða vinahóp sem hafi lengi haft þá hugmynd að tryggja að eitthvað yrði um að vera í húsnæðinu ef Kjötborg myndi loka.
Greint var frá því í lok apríl að ein rótgrónasta verslun borgarinnar að Ásvallagötu 19 hefði verið sett á sölu. Bræðurnir Kristján Jónasson og Gunnar Jónasson hafa staðið vaktina þar um áratugaskeið og fagna sjötíu ára afmæli verslunarinnar í ár. Verslunin var stofnuð í smáíbúðahverfinu en færði sig svo að Ásvallagötu árið 1981 og hófu bræðurnir þá störf nítján ára. Morgunblaðið greinir frá því í dag að nýir eigendur hafi fest kaup á húsnæðinu. Þar sé um að ræða nokkrar fjölskyldur, þjóðþekkta vini raunar á borð við Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, Hálfdán Steinþórsson, Árna Odd Þórðarsson, Pálma Haraldsson og Sigurður Hannesson. Einn vinanna Erla Björnsdóttir sem allajafna er kennd við Betri svefn segir í samtali við Vísi að vinirnir hafi lengi haft þessa hugmynd. „Við höfum lengi rætt um það að þegar Kjötborg hættir þá myndum við vilja að eitthvað skemmtilegt tæki þarna við, eitthvað sem þjónar nærsamfélaginu og okkur þykir flestum mjög vænt um Kjötborg og ég er sjálf alin upp í húsinu við hliðina á og hef verið viðskiptavinur bræðranna frá því að verða fimm ára að aldri, þannig okkur finnst sjónarsviptir af þeim brærðum og viljum endilega að þetta haldi svona áfram, að þetta rými þjóni Vesturbænum og sjáum fyrir okkur svona lítið hverfiskaffihús sem getur verið samkomustaður íbúa og gert gott fyrir hverfið okkar.“ Hálfdán Steinþórsson, Pálmi Haraldsson og Sigurður Hannesson taka allir þátt í stofnun nýs kaffihús. Fram hefur komið að Kjötborg muni loka dyrum sínum í síðasta sinn í lok þessa mánaðar. Erla segir að nýir eigendur taki við húsnæðinu 1. júlí. Þá þurfi að huga að því að undirbúa húsnæðið sem kaffihús og afla tilskilinna rekstrarleyfa. Stefnt sé að því að nýtt kaffihús opni í húsnæðinu í haust að sögn Erlu, vonandi í október. Erla segir vinafjölskyldurnar hafa verið vini um árabil. Þau hafi reglulega hist undanfarin ár. „Við gefum hvort öðru í skóinn í desember og erum með leik sem kallast Jólastígvélið og hittumst reglulega og það er mikil vinátta í þessu hverfi og okkur fannst viðeigandi að við tækjum okkur samanog myndum gera þetta verkefni til að þétta okkar hóp enn betur saman og gera hverfið betra fyrir alla.“ En er kaffihúsið komið með nafn? „Kaffi Kjötborg er allavega vinnuheitið okkar núna og okkur langar að halda heiðri Kjötborgar á lofti. Þannig ætli það verði ekki bara Kaffi Kjötborg? Mér finnst það hljóma ágætlega.“
Veitingastaðir Reykjavík Mest lesið Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Viðskipti innlent Arion banki hækkar gjöld Neytendur Ekki syrgja sumarfríið (of snemma!) Atvinnulíf ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Viðskipti innlent Fleiri fréttir Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Sjá meira