Repúblikanar unnu kjördæmastríðið Samúel Karl Ólason skrifar 5. júní 2026 07:03 Tveir af hverjum fimm íbúum Bandaríkjanna búa í kjördæmi sem hefur verið breytt í aðdraganda kosninganna í haust. AP/Kim Chandler Útlit er fyrir að Repúblikanar geti grætt um tíu þingsæti í fulltrúadeildinni vegna breytinga á kjördæmum fyrir þingkosningarnar vestanhafs í nóvember. Það er að segja, ef allt fer eftir væntingum þeirra. Demókratar þurfa einungis nokkur sæti til að ná meirihluta í fulltrúadeildinni og bæði kannanir og sagan gefa Demókrötum byr undir báða vængi.
Undanfarna áratugi hefur flokkur sitjandi forseta tapað þingsætum í kosningum sem haldnar eru á miðju kjörtímabili forseta. Kosið er um öll sæti fulltrúadeildarinnar á tveggja ára fresti. Þá er kosið um þriðjung sæta í öldungadeildinni á hverjum tveimur árum. Eins og staðan er núna skiptist fulltrúadeildin milli flokka 217-212. Fimm sæti eru auð og einn þingmaður er óháður. Öldungadeildin skiptis 53-47. Kosningarnar í haust verða að mörgu leyti frábrugðnar öðrum slíkum kosningum. Kjördæmi eru við hefðbundnar aðstæður teiknuð á tíu ára fresti, eftir reglulegt manntal. Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur þó á undanförnum mánuðum, eða allt frá síðasta sumri, þrýst verulega á Repúblikana víðsvegar um Bandaríkin og sagt þeim að gera breytingar á kjördæmum með því markmiði að gera Demókrötum erfiðara að ná meirihluta í fulltrúadeildinni. Það að breyta kjördæmum með þessum hætti, í þágu annars flokksins í Bandaríkjunum, kallast „Gerrymandering“ á ensku. Í einföldu máli sagt er þetta gert með því að þjappa mörgum kjósendum eins flokks í fá kjördæmi og þynna út atkvæði annarra. Hér má sjá tiltölulega stutt útskýringarmyndband Washington Post um það hvernig gerrymandering virkar. Þetta hefur lengi verið stundað í Bandaríkjunum og þess vegna eru í raun tiltölulega fá þingsæti þar í landi sem raunverulega er barist um í kosningum. Úrskurður hæstaréttar frá 2019 gaf í raun ráðamönnum í ríkjum Bandaríkjanna að miklu leyti frjálsar hendur i að teikna upp ný kjördæmi eftir óskum flokkanna, þar sem það er leyfilegt. Hæstiréttur varpaði stærstu sprengjunni Í apríl gaf Hæstiréttur Bandaríkjanna svo grænt ljós á að breyta fjölmörgum kjördæmum Bandaríkjanna þar sem þeldökkir Bandaríkjamenn eða Bandaríkjamenn af latneskum uppruna eru í meirihluta. Kjósendur í slíkum kjördæmum eru líklegri til að kjósa Demókrata. Sjá einnig: Repúblikanar vinna orrustu í kjördæmastríðinu Staðan í kjördæmastríðinu svokallaða er nú, samkvæmt greiningu AP fréttaveitunnar, sú að Repúblikanar telja sig hafa skapað sextán ný sæti þar sem Repúblikani er líklegastur til að hljóta kjör, eftir breytingar á kjördæmum í Texas, Missouri, Norður-Karólínu, Ohio, Flórída, Tennesse, Louisiana og Alabama. Demókratar telja sig hafa skapað sér sex sæti í Kaliforníu og Utah. Breytingar Repúblikana í Indiana og Suður-Karólínu og breytingar Demókrata í Maryland fóru gegnum fulltrúadeildir ríkisþinga en voru ekki samþykktar í öldungadeildum. Hæstiréttur Virginíu stöðvaði breytingar Demókrata þar, þó þær hefðu verið samþykktar af kjósendum. Þá stöðvaði Hæstiréttur Bandaríkjanna einnig breytingar í New York sem Demókratar hefðu getað grætt eitt þingsæti á. Því er staðan sú að Repúblikanar telja sig tíu sætum yfir Demókrötum. Nærri því 145 milljónir manna, eða tveir af hverjum fimm íbúum Bandaríkjanna, búa í kjördæmum sem hefur verið breytt i aðdraganda kosninganna. Binda einnig veikar vonir við öldungadeildina Kannanir í Bandaríkjunum sýna að Demókratar njóta ákveðins forskots á Repúblikana hjá kjósendum. Slíkt hefur lengi verið raunin í kosningum sem þessum, eins og áður hefur komið fram. Forskot þetta nær þó sjaldan í tveggja stafa tölur og óljóst er hvort slíkt forskot muni duga til að ná meirihluta í fulltrúadeildinni. Í samantekt YouGov á landsvísu segjast 46 prósent kjósenda ætla að kjósa Demókrata í kjördæmum þeirra. Þá segjast 42 prósent ætla að kjósa Repúblikana. Demókratar telja sig einnig eiga séns á því að ná meirihluta í öldungadeildinni eða í það minnsta saxa á nauman meirihluta Repúblikana. Í þeim kosningum eru engin kjördæmi heldur kjósa allir íbúar tiltekinna ríkja milli tveggja frambjóðenda. Þar hafa Demókratar einnig upp bratta að sækja. Eins og áður segir er kosið um þriðjung öldungadeildarsæta á hverjum þremur árum. Það eru 33 sæti. Demókratar þurfa að taka fjögur sæti af Repúblikönum til að ná meirihluta í öldungadeildinni. Í síðustu forsetakosningum sigraði Trump með tíu prósentustigum eða meira í öllum nema tveimur af þeim ríkjum þar sem kosið er um sæti sem Repúblikani situr í.
Bandaríkin Þingkosningar í Bandaríkjunum Donald Trump Mest lesið Grunur um alvarlegt kosningasvindl í Svíþjóð Erlent Hefja athugun á fjárhagsaðstoð Reykjavíkurborgar Innlent Segir ásakanir flugvirkja „furðulegar“ Innlent Munu ekki samþykkja frekari hækkun launa Innlent „Það er enginn bissness í þessu fyrir okkur“ Innlent Íslensk ungmenni drekka minnst af orkudrykkjum Innlent Barnaníðingur fékk ekki annað leyfi hjá Hæstarétti Innlent Stefnir í aflýsingar á öllu morgunflugi frá Keflavík og Reykjavík Innlent Beita buddunni til að vega á móti óvinsældum Trumps Erlent „Skólinn okkar er alltof lítill“ Innlent Fleiri fréttir Halda andstæðingum fjarri Grænlandi með samkomulagi Svona var ræða Trumps: Spurning um „gereyðingu“ og nýtt nafn á gervigreind Í leyfi á meðan kosningasvik eru til rannsóknar Bein útsending: Ræða Trumps á allsherjarþinginu Bretar ætla að aðstoða Sáda gegn Hútum Beita buddunni til að vega á móti óvinsældum Trumps Rétta yfir konu spænska forsætisráðherrans Grunur um alvarlegt kosningasvindl í Svíþjóð Stefna að tveimur nýjum herstöðvum á Grænlandi Sniðganga Hvíta húsið Bað Selenskí um að stöðva árásir á rússneskar olíuvinnslur Höfða mál gegn Trump vegna bannsins Pútín sló öll met Sigurboginn verður leyniskyttuhreiður Maður á níræðisaldri lést í átökum um sólbekk Noregur og Kanada auka samstarf í varnarmálum Fyrirgefur Lindsay fyrir að myrða börnin Mótmæli í Texas vegna ICE-liða Kallar kosningarnar „hörmung“ en heitir því að fara ekki fet Senda Trump pillu vegna Ameríkukorts „Myndi ekki skrifa undir samkomulag ef það væri ekki gott“ Framtíð kanslarans í húfi Ætlar sér að skipa „gervigreindarkeisara“ Sérstakt veiðileyfi gefið út eftir að hákarl banaði sundmanni á sjötugsaldri Utanríkisráðherra Úkraínu lýsir yfir gríðarlegu þakklæti Vissi að viðræðum miðaði fram „þrátt fyrir skrítin kort“ Glæpahópurinn 764: Átján ára í tíu ára fangelsi fyrir tilraunir til manndráps og nauðgun á netinu Løkke um samninginn: „Næsta vika getur orðið góð vika“ Bandaríkin hafi samið við Danmörku um Grænland Íhuga að fara nýja leið og bjóða Rússum viðskiptasamninga Sjá meira