Mátti ekki kalla dómarann „lausláta mellu“ Árni Sæberg skrifar 4. júní 2026 10:18 Margrét Friðriksdóttir var ákærð fyrir meiðyrði. Vísir/Lýður Valberg Margrét Friðriksdóttir hefur verið dæmd til að greiða 200 þúsund króna sekt í ríkissjóð vegna ummæla hennar um Barböru Björnsdóttur héraðsdómara. Þess var ekki krafist að ummælin yrðu dæmd dauð og ómerk og þau standa því. Margrét kallaði Barböru meðal annars „lausláta mellu“.
Þetta var niðurstaða Héraðsdóm Reykjaness, sem kvað upp dóm klukkan 10:15. Greiði Margrét sektina ekki innan fjögurra vikna þarf hún að sæta 14 daga fangelsisvist. Þá var henni gert að greiða rúmlega 600 þúsund króna málsvarnarlaun fyrri verjanda síns og tvo þriðju hluta þriggja milljóna króna málsvarnarlauna seinni verjandans. Einn þriðji greiðist því úr ríkissjóði. Málið á rætur að rekja til þess þegar Barbara sakfelldi Margréti árið 2023, fyrir hótanir í garð baráttukonunnar Semu Erlu Serdaroglu í Héraðsdómi Reykjavíkur. Í kjölfarið birti Margrét færslu á samfélagsmiðlum þar sem hún kallaði Barböru meðal annars „lausláta mellu“. Hún hélt því jafnframt fram að vitnisburðir í máli hennar hefðu verið falsaðir og um hefði verið að ræða „plott“ til að fá hana sakfellda. Þess má geta að dómnum á hendur Margréti fyrir hótanirnar var áfrýjað til Landsréttar og þar var hún sýknuð.
Meiðyrðamál Margrétar Friðriksdóttur Tjáningarfrelsi Dómsmál Dómstólar Tengdar fréttir Margrét sýknuð í Landsrétti Landsréttur hefur sýknað Margréti Friðriksdóttur, ritstjóra Fréttarinnar, af ákæru fyrir hótanir í garð Semu Erlu Serdar aðgerðarsinna fyrir utan Benzin Café á Grensásvegi árið 2018. 15. desember 2023 14:27 Margrét fær ekki að leiða dómaratríóið fyrir dóm Héraðsdómur Reykjaness hefur hafnað kröfu Margrétar McArthur Friðriksdóttur um að fá að leiða dómarana Barböru Björnsdóttur, Símon Sigvaldason og Sigríði Hjaltested fyrir dóminn sem vitni í meiðyrðamáli lögreglunnar á hendur henni. Barbara og Símon höfðu áður gefið vitni en Margrét hélt því fram að Barbara hefði reynt að hafa áhrif á framburð Símonar. Þá vildi hún að Sigríður kæmi fyrir dóminn vegna ásakana Barböru um áralang einelti af hálfu Sigríðar. 25. mars 2026 13:09 Margrét átti lokaorðið í málinu og flutti Passíusálm Endurtekinn málflutningur í meiðyrðamáli Margrétar Friðriksdóttur fór fram í morgun. Ákæruvaldið krefst þess að hún verði dæmd í þrjátíu daga fangelsi. Í lok þinghaldsins beindi Margrét orðum sínum að Barböru Björnsdóttur héraðsdómara og ítrekaði skoðun sína á henni, áður en hún flutti Passíusálm. 29. maí 2026 11:23 Mest lesið Ekki lengur vafi á því hver hinn látni er Innlent Flaug hvorki með gömlu né nýju Air Force One Erlent Yfirlýsing Landskjörstjórnar: „Fullyrðing Morgunblaðsins er alfarið röng“ Innlent Hóteláform Hreiðars strand vegna vegleysu Innlent Ungir Miðflokksmenn vildu ekki taka þátt í Gleðigöngunni Innlent Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Innlent Dregur enn frekar úr líkum á samningi með skaðabótakröfu Erlent Fylgdust með rússneskum njósnara gefa útsendara gjöf Erlent Kæra varðhald þriðja mannsins til Landsréttar Innlent Gæsluvarðhalds krafist yfir þriðja manninum Innlent Fleiri fréttir Umbúðirnar gallaðar og hakkið fer aftur í bakka Gera ráð fyrir óvenjulangri aðalmeðferð í Reykholtsmálinu Tók konu kyrkingartaki nóttina eftir dóm og verður lengur í haldi Segir efnahagsmálin og verðbólguna að þróast í rétta átt Kristrún vísar ásökunum um sinnuleysi á bug Ekki lengur vafi á því hver hinn látni er Yfirlýsing Landskjörstjórnar: „Fullyrðing Morgunblaðsins er alfarið röng“ Vill að vinnu við gerð áhættumats verði flýtt Leita óþekkts árásarmanns á Þjóðhátíð Kæra varðhald þriðja mannsins til Landsréttar Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Þriðji maðurinn úrskurðaður í gæsluvarðhald Líkur á rigningu í Reykjavík þegar almyrkvinn gengur yfir Gæsluvarðhalds krafist yfir þriðja manninum Björgunarsveitir sinntu tveimur slösuðum ferðamönnum Hóteláform Hreiðars strand vegna vegleysu ,,Þetta eru kosningaherferðarfundir Kristrúnar Frostadóttur fyrir Já til að sjá'' Fyrir fólk sem búi á almyrkvaslóðinni sé nóg að „vera úti í garði og upplifa allt“ Ungir Miðflokksmenn vildu ekki taka þátt í Gleðigöngunni „Við sem samfélag þurfum að standa keik á móti þessu“ Aðallega „karlar að drepa aðra karla“ „Einfaldlega ók bifreið frá punkti A á punkt B“ Í gæsluvarðhaldi en segist einungis hafa verið bílstjóri Billy Long kominn á klakann Helga Lára Haarde aðstoðar Hildi Fólksfjöldi á Hellissandi tífaldast Leita ferðamannanna sem skildu fimm ára son sinn eftir í bíl Pysjutímabilið formlega hafið Bílstjóri ákærður fyrir að nauðga fatlaðri konu Bein útsending: Umdeildur fundur Baudenbacher Sjá meira
Margrét sýknuð í Landsrétti Landsréttur hefur sýknað Margréti Friðriksdóttur, ritstjóra Fréttarinnar, af ákæru fyrir hótanir í garð Semu Erlu Serdar aðgerðarsinna fyrir utan Benzin Café á Grensásvegi árið 2018. 15. desember 2023 14:27
Margrét fær ekki að leiða dómaratríóið fyrir dóm Héraðsdómur Reykjaness hefur hafnað kröfu Margrétar McArthur Friðriksdóttur um að fá að leiða dómarana Barböru Björnsdóttur, Símon Sigvaldason og Sigríði Hjaltested fyrir dóminn sem vitni í meiðyrðamáli lögreglunnar á hendur henni. Barbara og Símon höfðu áður gefið vitni en Margrét hélt því fram að Barbara hefði reynt að hafa áhrif á framburð Símonar. Þá vildi hún að Sigríður kæmi fyrir dóminn vegna ásakana Barböru um áralang einelti af hálfu Sigríðar. 25. mars 2026 13:09
Margrét átti lokaorðið í málinu og flutti Passíusálm Endurtekinn málflutningur í meiðyrðamáli Margrétar Friðriksdóttur fór fram í morgun. Ákæruvaldið krefst þess að hún verði dæmd í þrjátíu daga fangelsi. Í lok þinghaldsins beindi Margrét orðum sínum að Barböru Björnsdóttur héraðsdómara og ítrekaði skoðun sína á henni, áður en hún flutti Passíusálm. 29. maí 2026 11:23