Gefa heila goðsagnarinnar til rannsókna Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. júní 2026 08:31 Aðeins nokkrum dögum fyrir andlát sitt var Claude Lemieux heiðraður sem kyndilberi Montreal Canadiens fyrir leik liðsins í úrslitakeppninni. Getty/Matt Garies Fjölskylda íshokkígoðsagnar vill að fráfall hans nýtist í baráttu við heilaáverka í íþróttinni sem hann helgaði sitt líf. Heili Claude Lemieux verður nefnilega gefinn til CTE-miðstöðvar Boston-háskóla til rannsókna á langtímaáhrifum endurtekinna heilaáverka. Þetta tilkynnti fjölskylda hans í yfirlýsingu sem dóttir hans, Claudia Lemieux Bishop, sendi frá sér. Lemieux framdi að sögn yfirvalda sjálfsvíg á fimmtudag en hann var sextugur. Fyrr í vikunni hafði hann verið kyndilberi Montreal Canadiens fyrir leik liðsins í úrslitakeppninni. Claude Lemieux's brain being donated to Boston University for CTE research after NHL star's death https://t.co/fKD7b8J6WW pic.twitter.com/5ThNmLQWMd— New York Post (@nypost) May 31, 2026 Lemieux spilaði nærri 1500 leiki í NHL-deildinni með sex liðum frá 1983 til 2009 og var þekktur fyrir harðan leikstíl og hæfni til að skara fram úr í stærstu leikjunum á leið sinni að vinna Stanley-bikarinn fjórum sinnum. Hann var einn af ellefu leikmönnum sem hafa unnið Stanley-bikarinn með að minnsta kosti þremur mismunandi liðum. Hann var einnig þekktur sem einn af bestu leikmönnum í úrslitakeppni, en áttatíu mörk hans í úrslitakeppni á ferlinum eru þau níundu flestu í sögu NHL. Fjölskyldan sagðist hafa gefið CTE-miðstöðinni leyfi til að deila opinberlega öllum niðurstöðum undir nafni Lemieux og bætti við að ekki ætti að draga neinar ályktanir varðandi neina greiningu. „Claude helgaði feril sinn eftir að leikmannsferlinum lauk því að hjálpa næstu kynslóð,“ sagði fjölskyldan og vísaði til þess að Lemieux varð umboðsmaður. „Með því að leyfa að nafn hans sé tengt þessari rannsókn vonum við að líf hans geti stuðlað að meiri skilningi, heiðarlegri umræðum og betri vernd fyrir íþróttafólk og fjölskyldur þeirra á komandi árum.“ Lemieux’ Gehirn wird gespendet – „Ein Geschenk an Familien, die nach Antworten suchen“ https://t.co/4C4ypIgbFb pic.twitter.com/ikFCIgEaAX— WELT (@welt) May 31, 2026 Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.552-2218. Íshokkí Mest lesið Jorge Messi látinn Fótbolti Infantino hafnar ásökunum um þöggunargreiðslu til meintrar ástkonu Fótbolti Martraðardvöl Blika: „Tekið á andlega og líkamlega“ Íslenski boltinn Íþróttamanni ársins leið ekki eins og íþróttamanni Sport Framherjaleit Breiðabliks lokið Íslenski boltinn Reynir á kylfinga með öðrum hætti á Íslandsmótinu í dag Golf Fimmtán ára með besta hring dagsins á Íslandsmótinu Golf Nuddari Maradona grátklökkur í réttarsalnum Fótbolti Haaland tilnefndur til tónlistarverðlauna í Noregi Fótbolti Grípa í taumana eftir banaslys Enski boltinn Fleiri fréttir Tap og Hlín fer í Evrópubikarinn Spennan meiri í kvennaflokki fyrir lokahringinn Dagbjartur eykur forystuna Diljá aftur með tvö og áfram í Meistaradeild Framherjaleit Breiðabliks lokið Andri Lucas aftur á skotskónum eftir meiðsli Þrótti mistókst að fara á toppinn Drakk síðast vatn í drykkjarhléi úrslitaleiks HM Sjö mörk í stórsigri Íslendingaliðsins Grípa í taumana eftir banaslys Lutu í lægra haldi gegn toppliðinu Íslendingaliðið áfram í Evrópubikarinn Erlingur Agnars í FH Jorge Messi látinn Reynir á kylfinga með öðrum hætti á Íslandsmótinu í dag Bruno orðinn leikmaður Arsenal: „Ég verð ykkar stríðsmaður“ Sjáðu fernu Emmu og gífurlega mikilvægt mark Vals Fullkomin byrjun íslensku drengjanna heldur áfram Martraðardvöl Blika: „Tekið á andlega og líkamlega“ Infantino hafnar ásökunum um þöggunargreiðslu til meintrar ástkonu Íþróttamanni ársins leið ekki eins og íþróttamanni Nuddari Maradona grátklökkur í réttarsalnum Tryggði bæði framlengingu og skoraði sigurkörfuna Dagskráin: West Ham á nýjum slóðum í ágústbyrjun Táningur Manchester United fær 24 karata gullspjald Argentína mun ekki setja pressu á Lionel Messi Ensk landsliðskona vill sniðganga HM Liverpool fær miðvörð Barcelona á láni Haaland tilnefndur til tónlistarverðlauna í Noregi Afturelding á toppinn eftir stórsigur og tap Fylkis Sjá meira
Heili Claude Lemieux verður nefnilega gefinn til CTE-miðstöðvar Boston-háskóla til rannsókna á langtímaáhrifum endurtekinna heilaáverka. Þetta tilkynnti fjölskylda hans í yfirlýsingu sem dóttir hans, Claudia Lemieux Bishop, sendi frá sér. Lemieux framdi að sögn yfirvalda sjálfsvíg á fimmtudag en hann var sextugur. Fyrr í vikunni hafði hann verið kyndilberi Montreal Canadiens fyrir leik liðsins í úrslitakeppninni. Claude Lemieux's brain being donated to Boston University for CTE research after NHL star's death https://t.co/fKD7b8J6WW pic.twitter.com/5ThNmLQWMd— New York Post (@nypost) May 31, 2026 Lemieux spilaði nærri 1500 leiki í NHL-deildinni með sex liðum frá 1983 til 2009 og var þekktur fyrir harðan leikstíl og hæfni til að skara fram úr í stærstu leikjunum á leið sinni að vinna Stanley-bikarinn fjórum sinnum. Hann var einn af ellefu leikmönnum sem hafa unnið Stanley-bikarinn með að minnsta kosti þremur mismunandi liðum. Hann var einnig þekktur sem einn af bestu leikmönnum í úrslitakeppni, en áttatíu mörk hans í úrslitakeppni á ferlinum eru þau níundu flestu í sögu NHL. Fjölskyldan sagðist hafa gefið CTE-miðstöðinni leyfi til að deila opinberlega öllum niðurstöðum undir nafni Lemieux og bætti við að ekki ætti að draga neinar ályktanir varðandi neina greiningu. „Claude helgaði feril sinn eftir að leikmannsferlinum lauk því að hjálpa næstu kynslóð,“ sagði fjölskyldan og vísaði til þess að Lemieux varð umboðsmaður. „Með því að leyfa að nafn hans sé tengt þessari rannsókn vonum við að líf hans geti stuðlað að meiri skilningi, heiðarlegri umræðum og betri vernd fyrir íþróttafólk og fjölskyldur þeirra á komandi árum.“ Lemieux’ Gehirn wird gespendet – „Ein Geschenk an Familien, die nach Antworten suchen“ https://t.co/4C4ypIgbFb pic.twitter.com/ikFCIgEaAX— WELT (@welt) May 31, 2026 Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.552-2218.
Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.552-2218.
Íshokkí Mest lesið Jorge Messi látinn Fótbolti Infantino hafnar ásökunum um þöggunargreiðslu til meintrar ástkonu Fótbolti Martraðardvöl Blika: „Tekið á andlega og líkamlega“ Íslenski boltinn Íþróttamanni ársins leið ekki eins og íþróttamanni Sport Framherjaleit Breiðabliks lokið Íslenski boltinn Reynir á kylfinga með öðrum hætti á Íslandsmótinu í dag Golf Fimmtán ára með besta hring dagsins á Íslandsmótinu Golf Nuddari Maradona grátklökkur í réttarsalnum Fótbolti Haaland tilnefndur til tónlistarverðlauna í Noregi Fótbolti Grípa í taumana eftir banaslys Enski boltinn Fleiri fréttir Tap og Hlín fer í Evrópubikarinn Spennan meiri í kvennaflokki fyrir lokahringinn Dagbjartur eykur forystuna Diljá aftur með tvö og áfram í Meistaradeild Framherjaleit Breiðabliks lokið Andri Lucas aftur á skotskónum eftir meiðsli Þrótti mistókst að fara á toppinn Drakk síðast vatn í drykkjarhléi úrslitaleiks HM Sjö mörk í stórsigri Íslendingaliðsins Grípa í taumana eftir banaslys Lutu í lægra haldi gegn toppliðinu Íslendingaliðið áfram í Evrópubikarinn Erlingur Agnars í FH Jorge Messi látinn Reynir á kylfinga með öðrum hætti á Íslandsmótinu í dag Bruno orðinn leikmaður Arsenal: „Ég verð ykkar stríðsmaður“ Sjáðu fernu Emmu og gífurlega mikilvægt mark Vals Fullkomin byrjun íslensku drengjanna heldur áfram Martraðardvöl Blika: „Tekið á andlega og líkamlega“ Infantino hafnar ásökunum um þöggunargreiðslu til meintrar ástkonu Íþróttamanni ársins leið ekki eins og íþróttamanni Nuddari Maradona grátklökkur í réttarsalnum Tryggði bæði framlengingu og skoraði sigurkörfuna Dagskráin: West Ham á nýjum slóðum í ágústbyrjun Táningur Manchester United fær 24 karata gullspjald Argentína mun ekki setja pressu á Lionel Messi Ensk landsliðskona vill sniðganga HM Liverpool fær miðvörð Barcelona á láni Haaland tilnefndur til tónlistarverðlauna í Noregi Afturelding á toppinn eftir stórsigur og tap Fylkis Sjá meira