Setti nýtt heimsmet örfáum dögum eftir svekkelsið á Steraleikunum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. júní 2026 07:30 Hafþór Júlíus Björnsson hafði ástæðu til að fagna eftir að hafa sett enn eitt heimsmetið. Getty/Waleed Zein Hafþóri Júlíusi Björnssyni tókst ekki að setja heimsmet á Steraleikunum í Las Vegas í Bandaríkjunum í síðustu viku en hann bætti úr því innan við viku síðar.
Hafþór Júlíus tók þátt í Swaglyft-aflraunadeginum í Liberec í Tékklandi um helgina og tókst þar að bæta í safnið nýju glæsilegu heimsmeti. Á Steraleikunum ætlaði Fjallið sér að fara upp með 515 kíló en heimsmetið átti hann sjálfur frá því að hann lyfti 510 kílóum á síðasta ári. Í keppni helgarinnar var þó ekki á ferðinni fyrrnefnt heimsmet í réttstöðulyftu eins og hann reyndi við í Vegas heldur annars konar réttstöðulyftumet. Hafþór setti heimsmetið í Tékklandi með því að lyfta 400 kílóum sjö sinnum í röð. Heimsmetið var því í endurtekinni réttstöðulyftu, „deadlift for reps“ eins og það er kallað á enskri tungu. Enginn annar hefur náð að lyfta slíkri þyngd sjö sinnum í röð. „Takk til allra aðdáenda minna í Tékklandi. Andrúmsloftið í dag var magnað,“ skrifaði Hafþór Júlíus á samfélagsmiðla sína. „Einnig miklar þakkir til Tomas Holman og allra sem komu að Swaglyft-aflraunadeginum fyrir gestrisnina. Viðburðurinn var ótrúlegur,“ skrifaði Hafþór. Hann var ekki eini Íslendingurinn á svæðinu. „Síðast en ekki síst, takk til vina minna og teymis sem ferðuðust að heiman til að styðja mig. Ég hefði ekki getað þetta án ykkar,“ skrifaði Hafþór eins og sjá má hér fyrir neðan. View this post on Instagram A post shared by Hafþór Júlíus Björnsson (@thorbjornsson)
Aflraunir Mest lesið Jorge Messi látinn Fótbolti 16 ára setti vallarmet á Íslandsmótinu Golf Infantino hafnar ásökunum um þöggunargreiðslu til meintrar ástkonu Fótbolti Framherjaleit Breiðabliks lokið Íslenski boltinn Martraðardvöl Blika: „Tekið á andlega og líkamlega“ Íslenski boltinn Íþróttamanni ársins leið ekki eins og íþróttamanni Sport Drakk síðast vatn í drykkjarhléi úrslitaleiks HM Fótbolti Andri Lucas aftur á skotskónum eftir meiðsli Enski boltinn Grípa í taumana eftir banaslys Enski boltinn Reynir á kylfinga með öðrum hætti á Íslandsmótinu í dag Golf Fleiri fréttir Mætti þrátt fyrir ráð um annað í skugga ásakana Aston Villa hyggst fylla í götin Guðrún úr leik eftir tap fyrir Juventus Ellefu ensk lið í eldlínunni víðsvegar um heim 16 ára setti vallarmet á Íslandsmótinu Flottur sigur Íslendingaliðsins í fyrsta leik Tap og Hlín fer í Evrópubikarinn Spennan meiri í kvennaflokki fyrir lokahringinn Dagbjartur eykur forystuna Diljá aftur með tvö og áfram í Meistaradeild Framherjaleit Breiðabliks lokið Andri Lucas aftur á skotskónum eftir meiðsli Þrótti mistókst að fara á toppinn Drakk síðast vatn í drykkjarhléi úrslitaleiks HM Sjö mörk í stórsigri Íslendingaliðsins Grípa í taumana eftir banaslys Lutu í lægra haldi gegn toppliðinu Íslendingaliðið áfram í Evrópubikarinn Erlingur Agnars í FH Jorge Messi látinn Reynir á kylfinga með öðrum hætti á Íslandsmótinu í dag Bruno orðinn leikmaður Arsenal: „Ég verð ykkar stríðsmaður“ Sjáðu fernu Emmu og gífurlega mikilvægt mark Vals Fullkomin byrjun íslensku drengjanna heldur áfram Martraðardvöl Blika: „Tekið á andlega og líkamlega“ Infantino hafnar ásökunum um þöggunargreiðslu til meintrar ástkonu Íþróttamanni ársins leið ekki eins og íþróttamanni Nuddari Maradona grátklökkur í réttarsalnum Tryggði bæði framlengingu og skoraði sigurkörfuna Dagskráin: West Ham á nýjum slóðum í ágústbyrjun Sjá meira