Senda loftbelgi á loft á hálftíma fresti á meðan sólmyrkvinn stendur yfir Freyja Þórisdóttir skrifar 31. maí 2026 19:54 Almyrkvi á sólu á Íslandi í mars árið 2015. Vísir/GVA Bandarískir vísindamenn munu nýta loftbelgi til að gera mælingar, sem fjármagnaðar eru af geimferðastofnuninni NASA, á andrúmsloftinu yfir Íslandi. Mælingarnar verða framkvæmdar meðan á sólmyrkvanum stendur í ágúst og snúast um að kanna áhrif myrkvans á lægsta lag veðrahvolfsins. Vísindamennirnir hafa notið aðstoðar Háskóla Íslands, Sævars Helga Bragasonar og fleiri sérfræðinga hérlendis.
Líkt og víða hefur verið fjallað um undanfarið mun skuggi tunglsins færast yfir Ísland síðdegis miðvikudaginn tólfta ágúst. Í umfjöllun sem birt var á vefnum Sólmyrki 2026 punktur is er fjallað um verkefni sem kallast Nationwide Eclipse Ballooning Project (NEBP). Það snýst um að kanna hvað gerist næst yfirborði jarðar þegar sólarljósið dvínar skyndilega. Í umfjölluninni um verkefnið segir meðal annars frá því hversu viðkvæmt þetta innsta lag veðrahvolfsins getur verið fyrir breytingum. „Jaðarlagið er innsti hluti veðrahvolfsins, andrúmslofts jarðar og það lag sem yfirborðið hefur bein áhrif á. Það breytist stöðugt yfir daginn þegar sólarljós hitar yfirborðið upp og hlýrra loft rís. Almyrkvi á sólu veldur sérkennilegri tilraun á lofthjúpinn því þá verður skammvinnt rökkur um miðjan dag. Hitastig getur fallið hratt, vindur gæti breyst og lofthjúpurinn tímabundið hegðað sér líkt og nóttatæki snemma.“ Vísindamennirnir telja að sólmyrkvinn á Íslandi gefi þeim sérstaklega dýrmæt gögn því myrkvinn verður síðdegis, nálægt þeim tímapunkti þegar andrúmsloftið breytist náttúrulega er kvölda tekur. Loftbelgir sendir á loft á hálftíma fresti Teymi vísindamanna frá Idaho- og Kentucky-háskólum í Bandaríkjunum mun senda veðurkanna á loft sem hanga í loftbelgjum. Mælingar munu standa yfir í um þrjátíu klukkustundir í kringum 12. ágúst og verða belgirnir sendir á loft á lykilaugnablikum. Þá er haft eftir Dr. Matt Bernards, prófessor við Idaho-háskóla sem hefur umsjón með rannsóknunum á Íslandi, að hugmyndin sé að senda belgina á loft á hálftíma fresti á meðan sólmyrkvinn stendur yfir en svo á klukkutíma fresti um miðjan dag þegar ekki er eins mikilvægt að senda þá jafn ört á loft. Hann segir einnig frá því að það taki um tvær klukkustundir fyrir hvern loftbelg að ná þrjátíu og þriggja kílómetra hæð frá jörðu en það er þar sem þeir springa. „Belgirnir okkar eru litlir svo fólk verður að vera nálægt til að sjá þá. Þegar þeir eru fylltir af helíumi á jörðu niðri eru þeir um tveir metrar að þvermáli,“ er haft eftir Bernards. Líklegast þykir að tilraunin fari fram nálægt Tungubökkum í Mosfellsbæ. Bernard hefur einnig sagt að almenningi sé velkomið að koma og fylgjast með vísindamönnunum en rannsóknin er frekar smá í sniðum. Það verður að öllum líkindum einungis að sjá nokkra vísindamenn, tölvubúnað, helíumtanka og svo veðurbelgi sem stíga hægt og rólega til himins.
Tunglið Geimurinn Almyrkvi 12. ágúst 2026 Bandaríkin Háskólar Mest lesið Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Innlent Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar Innlent Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Erlent Ming Ting dæmd í tólf ára fangelsi Innlent „Við munum ná markmiðum okkar“ Erlent Stórslysaleg fyrsta upplifun af landinu Innlent Fluttur með þyrlunni eftir vinnuslys Innlent Johnson & Johnson greiðir 693 milljarða króna vegna málsókna Erlent Hátt í þúsund atkvæði komin: Margfalt fleiri mættu á fyrsta degi Innlent Skjálfti að stærð 7,1 skók Japan Erlent Fleiri fréttir Ætlar að áfrýja dómnum Ming Ting dæmd í tólf ára fangelsi Fluttur með þyrlunni eftir vinnuslys Meirihluti aðildarfyrirtækjanna andvígur Saka Kristján um að beita Landhelgisgæslunni fyrir sig Hátt í þúsund atkvæði komin: Margfalt fleiri mættu á fyrsta degi Kannast ekki við afskipti af Bandero og uppkvaðning í Edition málinu Stórslysaleg fyrsta upplifun af landinu Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Enn skelfur í Bárðarbungu Rafmagnslaust í Breiðholti í um klukkustund Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Senda norðlenskt rusl úr landi Umfangsmestu rýmingar frá seinni heimsstyrjöldinni: „Tunglið var orðið appelsínugult“ Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Stjórnlausir skógareldar og vertar sem fagna Á þriðja hundrað þegar greitt atkvæði Brotlenti í djúpu gili Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Snýr aftur á spítalann í skugga kæru til Landsréttar Flugmaðurinn er fundinn Sækja slasaðan göngumann á Esjuna „Fólk er ekki heimskt“ Sorglegt að ekki hafi tekist að vernda konuna Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Varði helginni á spænskri fjöldahjálparstöð Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Lilja Rafney syrgir eiginmann sinn Sjá meira