Tvö á slysadeild eftir árás lausra hunda Freyja Þórisdóttir skrifar 31. maí 2026 21:21 Maðurinn segir frá því að hann og vinkona sín hafi reynt að bakka varlega frá hundunum en þeir strax brugðist óðir við. Aðsend Maður og kona sem fóru út að njóta veðursins í dag við Reynisvatn í Grafarholti fóru á slysadeild eftir að lausir hundar bitu þau til blóðs. Hundarnir voru tveir og af tegundinni Border Collie en eigandi þeirra var með þriðja hundinn í taum á göngu við Reynisvatn í Grafarholti. Rétt eftir klukkan eitt í dag var maður, sem vill ekki láta nafns síns getið, úti að skokka ásamt vinkonu sinni í kringum Reynisvatn í Grafarholti þegar þau komu auga á tvo Border Collie-hunda sem hlupu um lausir. Hann segir frá því í samtali við blaðamann að þegar þau hafi reynt að skokka hægt fram hjá öðrum hundinum hafi hann urrað í áttina að þeim, stokkið svo á manninn og bitið til blóðs í fótlegginn. Að sögn mannsinns var eigandi hundanna tveggja með þrjá hunda við vatnið og útskýrir maðurinn að hann og vinkona hans hafi kallað til hennar og beðið hana um að ná í hundana sína. Hún hafi þá sagst ekki geta tekið hundana, orðið dónaleg í svörum og einfaldlega ekki brugðist við af nægilegri festu að mati mannsins. Stuttu seinna hafi hundarnir sprett að konu sem hafi einnig verið á göngu við vatnið og bitið hana aftan á ökklann en margir voru á svæðinu í dag enda frábært veður til útivistar. Þau tvö sem voru bitin fóru á slysadeildina en maðurinn fékk bæði stífkrampasprautu og sýklalyf. Það liggur ekki fyrir hvort konan hafi sömuleiðis þurft slíka meðferð. Þá segir maðurinn frá því að þeir hafi einnig ráðist á annan hund og glefsað í hann en maðurinn sá ekki hversu illa fór fyrir hundinum sem ráðist var á. Reyndu að flýja hundana Border collie-hundar eru mjög oft þjálfaðir sem smalahundar en maðurinn, vinkona hans og konan sem var bitin áttuðu sig að sögn mannsins á því að þeir væru áfram líklegir til að bíta eða glefsa til þeirra ef þau myndu reyna að hlaupa af svæðinu. Þau hafi því brugðið á það ráð að bakka rólega frá hundunum sem hafi þá brugðist við með því að gera sig líklega til að ráðast aftur á þau, tekið spretti hvað eftir annað í átt að þeim, gelt ítrekað og verið ógnandi. Að sögn mannsins þurftu þau að hafa sig öll við og hrópa til að koma í veg fyrir að vera bitin aftur. Hundarnir hafi hlaupið áfram um svæðið og verið ógnandi áfram í um hálftíma en hann hringdi í lögreglu sem bar fljótt að garði og lögreglukona sem virtist vön hundum náði að klófesta hundana. Hann segir þau þrjú, sig, vinkonu sína og konuna sem lenti einnig í því að vera bitin, hafa verið tekin í skýrslutöku en veit ekki hvernig fór með hundana og eiganda þeirra. Varst þú eða þekkir þú einhvern sem var við Reynisvatn í dag þegar hundarnir gengu lausir? Sendu okkur fréttaskot undir nafni eða nafnleynd á ritstjorn@visir.is. Hundar Reykjavík Dýr Gæludýr Mest lesið Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Innlent Holmes flutt á áfangaheimili Erlent Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Innlent „Mistök að fela honum forystu“ Innlent Ákærðir fyrir að frelsisvipta mann og nauðga með röri Innlent Fleiri fréttir Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur Ákærðir fyrir að frelsisvipta mann og nauðga með röri Fundu umfangsmikla kannabisrækt í Bolungarvík „Nauðsynlegt er að kjarasamningar haldi“ Hafði ekkert með átök sundþjálfaranna að gera Freyr látinn fara frá Eflingu Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Stefna á að taka inn skjólstæðinga í næstu viku Segir Ingu hafa brotið trúnað í ræðustól Alþingis Bein útsending: Sjálfsvíg á Íslandi – staðan, forvarnir og leiðin fram á við „Við erum ekki að byrja á núlli“ Fimm ára dómur Norberts staðfestur Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Jöfnuður næst ekki í um öðrum hverjum kosningum Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Endurskoða samning SÁÁ María Sigurðardóttir er látin Handtekinn fyrir líkamsárás, rán, íkveikju og þjófnað Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku „Það er skilgreiningin á því að pissa í skóinn sinn“ Sorpa skoðar að fara í mál við grenndargámasóða „Mistök að fela honum forystu“ „Ég hef mikið til verið hér á eigin spýtur“ Uppselt á opnunarmyndina í tveimur sölum Mundaði hníf og skotinn með rafbyssu í Hagkaup á Eiðistorgi Lögregluembættum fækkað verulega Tjón á tveimur bílum þegar tré fauk Mikill vatnsstrókur í Miðfirði Sex skriðuviðvaranir í gildi Sjá meira
Rétt eftir klukkan eitt í dag var maður, sem vill ekki láta nafns síns getið, úti að skokka ásamt vinkonu sinni í kringum Reynisvatn í Grafarholti þegar þau komu auga á tvo Border Collie-hunda sem hlupu um lausir. Hann segir frá því í samtali við blaðamann að þegar þau hafi reynt að skokka hægt fram hjá öðrum hundinum hafi hann urrað í áttina að þeim, stokkið svo á manninn og bitið til blóðs í fótlegginn. Að sögn mannsinns var eigandi hundanna tveggja með þrjá hunda við vatnið og útskýrir maðurinn að hann og vinkona hans hafi kallað til hennar og beðið hana um að ná í hundana sína. Hún hafi þá sagst ekki geta tekið hundana, orðið dónaleg í svörum og einfaldlega ekki brugðist við af nægilegri festu að mati mannsins. Stuttu seinna hafi hundarnir sprett að konu sem hafi einnig verið á göngu við vatnið og bitið hana aftan á ökklann en margir voru á svæðinu í dag enda frábært veður til útivistar. Þau tvö sem voru bitin fóru á slysadeildina en maðurinn fékk bæði stífkrampasprautu og sýklalyf. Það liggur ekki fyrir hvort konan hafi sömuleiðis þurft slíka meðferð. Þá segir maðurinn frá því að þeir hafi einnig ráðist á annan hund og glefsað í hann en maðurinn sá ekki hversu illa fór fyrir hundinum sem ráðist var á. Reyndu að flýja hundana Border collie-hundar eru mjög oft þjálfaðir sem smalahundar en maðurinn, vinkona hans og konan sem var bitin áttuðu sig að sögn mannsins á því að þeir væru áfram líklegir til að bíta eða glefsa til þeirra ef þau myndu reyna að hlaupa af svæðinu. Þau hafi því brugðið á það ráð að bakka rólega frá hundunum sem hafi þá brugðist við með því að gera sig líklega til að ráðast aftur á þau, tekið spretti hvað eftir annað í átt að þeim, gelt ítrekað og verið ógnandi. Að sögn mannsins þurftu þau að hafa sig öll við og hrópa til að koma í veg fyrir að vera bitin aftur. Hundarnir hafi hlaupið áfram um svæðið og verið ógnandi áfram í um hálftíma en hann hringdi í lögreglu sem bar fljótt að garði og lögreglukona sem virtist vön hundum náði að klófesta hundana. Hann segir þau þrjú, sig, vinkonu sína og konuna sem lenti einnig í því að vera bitin, hafa verið tekin í skýrslutöku en veit ekki hvernig fór með hundana og eiganda þeirra. Varst þú eða þekkir þú einhvern sem var við Reynisvatn í dag þegar hundarnir gengu lausir? Sendu okkur fréttaskot undir nafni eða nafnleynd á ritstjorn@visir.is.
Varst þú eða þekkir þú einhvern sem var við Reynisvatn í dag þegar hundarnir gengu lausir? Sendu okkur fréttaskot undir nafni eða nafnleynd á ritstjorn@visir.is.
Hundar Reykjavík Dýr Gæludýr Mest lesið Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Innlent Holmes flutt á áfangaheimili Erlent Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Innlent „Mistök að fela honum forystu“ Innlent Ákærðir fyrir að frelsisvipta mann og nauðga með röri Innlent Fleiri fréttir Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur Ákærðir fyrir að frelsisvipta mann og nauðga með röri Fundu umfangsmikla kannabisrækt í Bolungarvík „Nauðsynlegt er að kjarasamningar haldi“ Hafði ekkert með átök sundþjálfaranna að gera Freyr látinn fara frá Eflingu Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Stefna á að taka inn skjólstæðinga í næstu viku Segir Ingu hafa brotið trúnað í ræðustól Alþingis Bein útsending: Sjálfsvíg á Íslandi – staðan, forvarnir og leiðin fram á við „Við erum ekki að byrja á núlli“ Fimm ára dómur Norberts staðfestur Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Jöfnuður næst ekki í um öðrum hverjum kosningum Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Endurskoða samning SÁÁ María Sigurðardóttir er látin Handtekinn fyrir líkamsárás, rán, íkveikju og þjófnað Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku „Það er skilgreiningin á því að pissa í skóinn sinn“ Sorpa skoðar að fara í mál við grenndargámasóða „Mistök að fela honum forystu“ „Ég hef mikið til verið hér á eigin spýtur“ Uppselt á opnunarmyndina í tveimur sölum Mundaði hníf og skotinn með rafbyssu í Hagkaup á Eiðistorgi Lögregluembættum fækkað verulega Tjón á tveimur bílum þegar tré fauk Mikill vatnsstrókur í Miðfirði Sex skriðuviðvaranir í gildi Sjá meira