Barn missti meðvitund eftir árekstur á skólalóð Árni Sæberg skrifar 29. maí 2026 16:37 Áreksturinn varð á skólalóð Foldaskóla, sem er í Grafarvogi í Reykjavík. Vísir/Vilhelm Barn missti meðvitund eftir árekstur rafmagnskrossara og rafmagnshlaupahjóls á skólalóð Foldaskóla í Grafarvogi í Reykjavík um klukkan 13 í dag. Glæfralegur akstur rafknúinna ökutækja er viðvarandi vandamál að sögn lögreglu.
Vísi barst ábending um málið frá áhyggjufullum föður barns í skólanum, sem varð vitni að atvikinu. Hjördís Sigurbjartsdóttir, stöðvarstjóri lögreglustöðvarinnar á Vínlandsleið, staðfestir í samtali við Vísi að slysið hafi orðið. Kastaðist af hlaupahjólinu „Það er þarna ógætilegur akstur á rafmagnskrossara og það verður árekstur við barn á rafmagnshlaupahjóli, þau koma sitt hvort megin fyrir hornið. Sá sem er á krossaranum, hann ekur ógætilega. Þetta eru bæði börn. Barnið á hlaupahjólinu kastast af því og missir meðvitund. Það var flutt með sjúkrabíl á sjúkrahús en var þá komið til meðvitundar.“ Vakthafandi varðstjóri hjá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu segir í samtali við Vísi að áverkar barnsins hafi verið minni háttar en það hafi verið flutt á sjúkrahús til öryggis. Ofsalega kraftmikil Hjördís segir að glæfralegur akstur barna og ungmenna á rafknúnum ökutækjum sé viðvarandi vandamál á skólalóðum og víðar. „Þau eru oft og tíðum alveg ofsalega kraftmikil. Það er allt of mikill kraftur í þessu fyrir unga ökumenn sem ekki hafa færni eða þroska til að stjórna tækjunum.“ Að öðru leyti segir hún að málið sé í rannsókn og hafi verið tilkynnt til barnaverndar.
Grunnskólar Lögreglumál Börn og uppeldi Slökkvilið Reykjavík Mest lesið Landlæknir fellir niður starfsleyfi sex lækna Innlent Hefði þegið samtal við Jóhannes Innlent Sigmar í veikindaleyfi Innlent Samninganefnd Reykjavíkurborgar leyst undan störfum Innlent Lárus Welding á endastöð hjá MDE Innlent Niður í ellefu ára bruni um á allt að 100 kílómetra hraða Innlent Pútín sló öll met Erlent Verði að bregðast við „bullandi launarýrnun“ Innlent Muni grípa til nauðsynlegra aðgerða vegna verkfallsins Innlent Fyrirgefur Lindsay fyrir að myrða börnin Erlent Fleiri fréttir Bílastæði við Stúdentagarða verða einkastæði Verði að bregðast við „bullandi launarýrnun“ Flugvirkjar eigi að sýna vilja sinn í verki Lárus Welding á endastöð hjá MDE Segja Icelandair hafa hafnað boði um frestun verkfalls Bifreið fjarlægð með krana eftir að eldur kviknaði Litlu nær um peningana í Fljótagöng Hefði þegið samtal við Jóhannes Tekjur af fiski utan kvóta rúmlega fjórfaldast á fimm árum „Norðurlöndin eru ekki að eltast við skráningarskyldu hlaðvarpa“ Muni grípa til nauðsynlegra aðgerða vegna verkfallsins Tveir á vinnupalli sem hrundi Landlæknir fellir niður starfsleyfi sex lækna Útgjaldaaukningin mest hjá Ragnari Skoða hvort útlendingar þurfi að bíða eftir fullri aðstoð Niður í ellefu ára bruni um á allt að 100 kílómetra hraða Börn á rafmagnskrossurum og Kópavogur vill herða reglur Sigmar í veikindaleyfi Tafir á Keflavíkurflugvelli Vilja þingkosningar og staðgöngumæður Samninganefnd Reykjavíkurborgar leyst undan störfum Barn á rafmagnskrossara sótt af foreldrum sínum Rýma húsið: „Draumurinn er að Reykjavíkurborg geti hjálpað okkur“ Skattadrottning þurfti að borga álag eftir allt saman Vill þyngja hámarksrefsingu fyrir að kaupa vændi af barni „Mikill skilningur á því að það þurfti að fara í breytingar“ Hólmarnir í Tjörninni fá andlitslyftingu Missti stjórn á bílnum og hafnaði á vegg Vonar að „Evrópusambandsblætið“ renni af forystu ríkisstjórnarinnar Fá engin svör frá ráðherra og segja matvælaöryggi undir Sjá meira