Stefán Jökulsson er látinn Magnús Jochum Pálsson skrifar 29. maí 2026 12:03 Stefán Jökulsson kom víða við á ævi sinni en starfaði lengst af sem kennari og útvarpsmaður. Stefán Jökulsson, fyrrverandi lektor við menntavísindasvið Háskóla Íslands, útvarpsmaður og tónlistarmaður, er látinn, 76 ára að aldri.
Morgunblaðið greindi frá andláti hans í morgun. Stefán fæddist í Reykjavík 28. desember 1949, sonur Jökuls Péturssonar, málarameistara og ritstjóra tímaritsins Málarans, og Svövu Ólafsdóttur, húsmóður og félagsmálakonu. Hann ólst upp í Norðurmýrinni, gekk í Ísaksskóla, lauk stúdentsprófi frá Kennaraskóla Íslands árið 1972 og nam síðar ensku og sagnfræði við Háskóla Íslands. Hann starfaði um árabil sem kennari við grunnskóla, meðal annars í Breiðholtsskóla, á Hallormsstað og í Austurbæjarskóla. Stefán starfaði á árunum 1984 til 1990 hjá Ríkisútvarpinu þar sem hann stjórnaði fjölmörgum þáttum á Rás 1. Hann sótti einnig námskeið hjá BBC í London í dagskrárgerð og stjórnun útvarpsstöðva. Síðar starfaði hann við auglýsingagerð hjá AUK, bókaútgáfu og þýðingar. Stefán lauk MA-prófi í miðlunar- og boðskiptafræðum við Leicester-háskóla í Englandi árið 2000. Hann var ráðinn lektor á sviði miðlalæsis við Kennaraháskólann árið 2003, síðar menntavísindasvið Háskóla Íslands. Hann sinnti því starfi til ársins 2019 þegar hann lét af störfum vegna aldurs. Þá skráð hann sig í rannsóknatengt MA-nám í félagsfræði við Háskólann á Akureyri, með áherslu á andlegt líf eldri borgara, og lauk því 2023. Stefán var einnig virkur tónlistarmaður, lék á bæði trommur og hljómborð og spilaði meðal annars með Hauki Morthens, Lúdó og Stefáni og Ragnari Bjarnasyni. Stefán lætur eftir sig þrjú börn og sex barnabörn. Útför Stefáns fer fram í Fríkirkjunni í Reykjavík þann 4. júní klukkan 13.
Andlát Háskólar Fjölmiðlar Tónlist Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Innlent Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Fleiri fréttir Ekki í fyrsta sinn sem Trump stingur upp á Ísland yrði hluti af Bandaríkjunum „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Telja íslenska birgja sátta og áfengisverð í fríhöfninni samkeppnishæft „Við erum að laga Ísland“ Sjá meira