Ísland í sama flokki og Norður Kórea í námsefnisgerð? Mathieu Grettir Skúlason skrifar 27. maí 2026 12:32 Ísland er eina ríkið með því sem næst ríkisrekna einokun í násmsefnisgerð í Evrópu. Flest ríki innan Evrópu byggja á fjölbreyttu umhverfi útgefenda, menntatæknifyrirtækja, kennara og sérfræðinga. Á meðan hefur Ísland haldið fast í miðstýrða útgáfa á vegum ríkisins sem er á sama tíma fjársvelt og úrelt. Afleiðingarnar birtast í versnandi námsárangri og áhugaleysi nemenda, auknu álagi kennara og vaxandi ójöfnuði í samfélaginu.Ný skýrsla Þróunarsjóðs námsgagna dregur vandann sérstaklega vel fram. Það sem er alvarlegast er að allir sem hafa snertiflöt við skólakerfið vita hversu slæm staðan er en hún hefur aðeins versnað í nær 20 ár. Starfshópur innan mennta- og barnamálaráðuneytisins frá 2024 um námsgögn, skipaður fulltrúum kennara, sveitarfélaga, útgefenda, háskóla og menntatæknifyrirtækja, komst sameiginlega að þeirri niðurstöðu að viðvarandi skortur væri á fjölbreyttum og vönduðum námsgögnum. Lagafrumvarp byggt á þeim tillögum hefur verið lagt fram þrisvar á Alþingi en er nú búið að leggja til hliðar.Fjölbreytt námsgögn eru fjárfesting en ekki kostnaðarliðurRannsóknir sýna að vandað og faglega þróað námsefni er ein af grundvallarforsendum árangursríks skólastarfs. Fjölbreytt og vandað námsefni minnkar álag á kennara, eykur gæði náms og ýtir undir jafnt aðgengi ólíkra nemenda að námi. Þegar kennarar hafa aðgang að vönduðu námsefni losnar tími til að einbeita sér að eiginlegri kennslu sem rannsóknir benda til að sé sterkasti áhrifaþátturinn á námsárangur. Fjárfesting í vandaðri námsgagnaþróun er forvörn gegn dýrari úrræðum síðar. Hlutfall nemenda í sérkennslu hefur hækkað úr 22% árið 2010 í yfir 31% árið 2019. Sérkennsla er margfalt dýrari á hvern nemanda en fjárfesting í fjölbreyttu námsefni sem er hannað með ólíkar þarfir nemenda í huga. Slakur námsárangur í grunnskóla hafa veruleg áhrif á framtíðar námsferil nemenda. Samkvæmt OECD (2025) gæti sú hnignun sem þegar hefur orðið á námsárangri nemenda, án þess að taka tillit til frekari hnignunar ef ekki er gripið til aðgerða, dregið úr landsframleiðslu um meira en 5% til langtíma sem nemur um 200 milljörðum sem við töpum á hverju ári miðað við núverandi landsframleiðslu. Í því samhengi má benda á að fjármagnsaukinn sem sérfræðingar á sviðinu eru að kalla eftir nemur ekki nema rétt rúmum milljarð á ári, eða 0,5% af því sem ríkið tapar á ástandinu.Námsgagnagerð er útflutningstækifæri Staðan er hins vegar sú að flest öll verkefni koðna niður vegna þess að lítið sem ekkert fjármagn er til staðar fyrir skóla og kennara til að kaupa utanaðkomandi námsefni. Það hafa gríðarlega mörg framsækin félög og einstaklingar í námsgagnagerð litið dagsins ljós á Íslandi, stundum meðal þeirra bestu í sínum flokki í heimi, sem ekki hafa náð langt vegna vanfjármögnunar í kerfinu.Ef eðlilegur markaður væri til staðar á Íslandi væri námsgagnagerð útflutningsgrein og þar með ein af tekjulindum ríkisins. Menntatæknimarkaður til dæmis er bæði stærri og vex hraðar en leikjaiðnaðurinn í heild sinni . Námsgagnagerð er því ein af sóknartækifærum íslensks hagkerfis sem myndi á sama tíma bæta gæði menntunar í landinu, auka hagvöxt og þar með lífsgæði, allt á sama tíma. Kennarar eiga að fá að velja hvað hentar þeirra nemendum Einn stærsti misskilningur í umræðunni er að fólk hugsar bara um námsbækur sem námsgögn. Nútíma námsgögn eru á margvíslegu formi svo sem gagnvirkt efni, hljóðefni, myndefni, leikir, spil, tæki, verkfæri, smáforrit og margt fleira.Íslenskur kennarar hafa nánast einvörðungu miðlægan aðgang að námsbókum. Þetta hefur leitt til þess að meirihluti kennarar þurfa að eyða ómældum tíma til búa til námsgögn og þurfa því að eyða meiri tíma í undirbúning en í flestum öðrum OECD ríkjum.Það veit enginn betur nema kennarinn sem er með nemendur fyrir framan sig á hverjum degi hvað hentar þeim. Við þurfum að valdefla kennara til að geta valið um það efni sem hentar þeirra nemendum best hverju sinni og tryggja að fjármagn sé til staðar til að gera það val raunverulegt. Ísland í fremstu röð í námsgagnagerð Ísland er með allt til staðar til að verða leiðandi í námsgagnaþróun á heimsvísu. En Ísland hefur þegar sannað sig þar sem félög í námsgagnaþróun hafa unnið margvísleg alþjóðleg verðlaun og viðurkenningar en eiga undir högg að sækja vegna úrelts fyrirkomulags Íslands í námsgagnagerð.Lausnin er þekkt. Menntastefna er til staðar til 2030, skýrsla mennta- og barnamálaráðuneytisins náði sögulegu samkomulagi 18 hagsmunaaðila um hvað þarf að gera. Nú vantar bara aðgerðir stjórnvalda.Við getum valið hvort við viljum vera í fremstu röð í námsgagnagerð eða halda áfram að vera eina ríkið í Evrópu sem líkist Norður Kóreu. Höfundur er stjórnarmaður í Menntatæknisamtökum Norðurlandanna (Nordic Edtech Forum). Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Er í alvöru engin þörf á að laga Ísland? Þórður Snær Júlíusson Skoðun Börnin sem mæta afgangi Jón Ferdínand Estherarson Skoðun Sniðgöngum öll Ragnhildur Hólmgeirsdóttir,Hólmfríður Jónsdóttir,Daníel Þór Bjarnason,Oddný Björg Rafnsdóttir,Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir,Þorbjörg Ída Ívarsdóttir Skoðun Takk Inga Sæland Jónína Björk Óskarsdóttir Skoðun EES er ekki eina leiðin og kannski ekki sú skynsamlegasta lengur Eggert Guðmundsson Skoðun Hamingjuóskir til allra sem sögðu nei Einar Helgason Skoðun Opið bréf til Landssamtaka lífeyrissjóða Kjartan Björgvinsson Skoðun Helmingsafsláttur af mennskunni Arndís Þórarinsdóttir Skoðun Að virða niðurstöðu sem manni líkar ekki Erna Bjarnadóttir Skoðun Getum við plís lagt niður Fjölmiðlanefnd Daníel Hjörvar Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun EES er ekki eina leiðin og kannski ekki sú skynsamlegasta lengur Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Hver fær að skilgreina hvað þjóðin sagði? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Fjórfrelsið og EES fyrir Ísland Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Já heilbrigðisráðherra - sóknarfærin eru mörg þegar kemur að lýðheilsu barna Halla Þorvaldsdóttir skrifar Skoðun Að PISA upp í vindinn – getur gervigreind þýtt námsefni fyrir börn? Steinþór Steingrímsson skrifar Skoðun Öldungaráð Reykjavíkurborgar tekið úr sambandi Viðar Eggertsson skrifar Skoðun Stöðugleiki á leigumarkaði Benedikt S. Benediktsson skrifar Skoðun Hálfsársuppgjör staðfestir áhyggjur af fjármálum Seltjarnarness Kristinn Ólafsson skrifar Skoðun 5,2% gjaldahækkanir – skýr skilaboðin inn á vinnumarkaðinn Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Hvað gætum við gert fyrir 112 milljarða? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hamingjuóskir til allra sem sögðu nei Einar Helgason skrifar Skoðun Þegar allt fer aftur á fullt – munum eftir fólkinu Ingunn Björk Vilhjálmsdóttir skrifar Skoðun Börnin sem mæta afgangi Jón Ferdínand Estherarson skrifar Skoðun Læsi er sameiginleg ábyrgð og fjárfesting til framtíðar Sædís Ósk Harðardóttir skrifar Skoðun PISA - Viljum við árangur án erfiðisins? Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers eiga fatlaðir og foreldrar þeirra að gjalda? Margrét Össurardóttir skrifar Skoðun Alvöru eða sérhæfðir kennarar Svava Björg Mörk skrifar Skoðun Er í alvöru engin þörf á að laga Ísland? Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Sniðgöngum öll Ragnhildur Hólmgeirsdóttir,Hólmfríður Jónsdóttir,Daníel Þór Bjarnason,Oddný Björg Rafnsdóttir,Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir,Þorbjörg Ída Ívarsdóttir skrifar Skoðun Getum við plís lagt niður Fjölmiðlanefnd Daníel Hjörvar Guðmundsson skrifar Skoðun Gulur september – styðjum hvert annað Soffía Magnúsdóttir skrifar Skoðun Hatur í garð gyðinga Árni Már Jensson skrifar Skoðun Samtal getur bjargað lífi Alma D. Möller skrifar Skoðun Erum við Íslendingar hópheimskir? Ragnar Thorarensen skrifar Skoðun 200 milljarðar – og við getum gert betur Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Hallalaus fjárlög – en á kostnað hverra? Rósa Björk Brynjólfsdóttir skrifar Skoðun Leiðin út úr PISA-lægðinni Björn Brynjúlfur Björnsson skrifar Skoðun Gæfan sem við tökum ekki eftir Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Opið bréf til Landssamtaka lífeyrissjóða Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ef börnin eru ekki vandamálið, hvað er þá að? Birgir Hrafn Birgisson skrifar Sjá meira
Sniðgöngum öll Ragnhildur Hólmgeirsdóttir,Hólmfríður Jónsdóttir,Daníel Þór Bjarnason,Oddný Björg Rafnsdóttir,Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir,Þorbjörg Ída Ívarsdóttir Skoðun
Skoðun Já heilbrigðisráðherra - sóknarfærin eru mörg þegar kemur að lýðheilsu barna Halla Þorvaldsdóttir skrifar
Skoðun Að PISA upp í vindinn – getur gervigreind þýtt námsefni fyrir börn? Steinþór Steingrímsson skrifar
Skoðun Hálfsársuppgjör staðfestir áhyggjur af fjármálum Seltjarnarness Kristinn Ólafsson skrifar
Skoðun Sniðgöngum öll Ragnhildur Hólmgeirsdóttir,Hólmfríður Jónsdóttir,Daníel Þór Bjarnason,Oddný Björg Rafnsdóttir,Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir,Þorbjörg Ída Ívarsdóttir skrifar
Sniðgöngum öll Ragnhildur Hólmgeirsdóttir,Hólmfríður Jónsdóttir,Daníel Þór Bjarnason,Oddný Björg Rafnsdóttir,Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir,Þorbjörg Ída Ívarsdóttir Skoðun