Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Eiður Þór Árnason skrifar 26. maí 2026 21:28 Ástráður Haraldsson er ríkissáttasemjari. Vísir/Vilhelm Boðað hefur verið til fundar í kjaradeilu Icelandair og Félags íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA) hjá ríkissáttasemjara klukkan tíu á morgun. Hann segir langt í land og hefur beint því til samningsaðila að þeir tjái sig ekki um efni viðræðnanna við fjölmiðla.
Til stóð að halda fund í deilu Icelandair og flugvirkja hjá embættinu í dag en honum var frestað vegna veikinda. Ekki hefur enn verið boðað til nýs fundar. Þetta segir Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari í samtali við Vísi. „Við erum bara að vinna að því að reyna að halda samtalinu lifandi og vinna þetta áfram með skipulögðum hætti en það er óbreytt staða.“ Óskað hafi verið eftir því að fulltrúar Icelandair og FÍA tjái sig ekki við fjölmiðla „umfram það sem nauðsynlegt er.“ Kjarasamningar Icelandair við FÍA og Flugvirkjafélag Íslands runnu út í lok september. Þá eru samningar einnig lausir við Flugfreyjufélag Íslands en sú deila er ekki komin inn á borð ríkissáttasemjara. Fellt niður fjölda flugferða Aukin harka hefur færst í samskipti Icelandair og flugmanna síðustu vikur en flugfélagið hefur sakað félagsmenn FÍA um að stunda óformlegar aðgerðir. Nokkur fjöldi flugferða hefur verið felldur niður hjá Icelandair síðustu vikur vegna manneklu. Til að mynda var minnst fjórum ferðum aflýst vegna áhafnarskorts um helgina. Formaður FÍA hefur hafnað því að um skipulagðar aðgerðir sé að ræða og sagt þetta afleiðingu slæmrar mönnunar eða ófullnægjandi álagsprófunar flugáætlunar. Forsvarsmenn Icelandair vísa þessu á bug og segja að flugmenn hafi skyndilega hætt að selja frídaga sína. Grunur sé um samstilltar aðgerðir. Fréttin er í vinnslu.
Mest lesið Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Innlent Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Innlent Heiða greinir frá morðhótunum Innlent „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Innlent Mikil spenna í veðurkortunum Innlent Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut og miklar tafir Innlent Vonbrigði ef ballið er búið á Hótel Flatey Innlent Þórður nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar Innlent Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Innlent Ari ekkert heyrt í Hildi síðan á föstudag Innlent Fleiri fréttir Flugöryggismál að Airbus fái að nýta Reykjavík sem varaflugvöll Samfylking og Sjálfstæðisflokkur í samstarf í Suðurnesjabæ Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Kynntu nýjan meirihluta í Hafnarfirði Ferðamenn stundum slegið tvær flugur í einu höggi Nýr bæjarstjóri, morðhótanir og afar samrýmdar systur Þórður nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar Bein útsending: Kynna meirihlutasáttmála og nýjan bæjarstjóra Hafnarfjarðar Ari ekkert heyrt í Hildi síðan á föstudag Lögðu hald á 9mm hálfsjálfvirka skammbyssu Mikil spenna í veðurkortunum Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut og miklar tafir Taldi kosningarnar ógildar vegna ógilds kjörseðils Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Telja frumvarp um sjókvíaeldi stangast á við gildandi lög Vakta hafsvæðið með ESB-dróna frá Hornafirði Sannfærður um að finna eitthvað spennandi að gera Heiða greinir frá morðhótunum Selja húsnæðið vegna andstöðu íbúa Komu vélarvana fiskibát til hjálpar Sátt um að klára ESB-umræðu í tæka tíð Sátt á þingi um þjóðaratkvæði og beðið eftir fréttum úr borginni Bein útsending: Borgarfulltrúar kveðja „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Afbókuðu hantaveiruskipið í maí en enn væntanlegt í ágúst Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Hafi ekki hætt þrátt fyrir ítrekuð högg frá konunni Matvælastofnun kærir hótanir til lögreglu Valdimar kveður sáttur en segir síðustu daga krefjandi Allt tiltækt lið kallað út vegna elds í rafhlaupahjóli innandyra Sjá meira