Segir magnað að fá að sjá verk Bjarkar á Listahátíð Smári Jökull Jónsson skrifar 30. maí 2026 14:00 Lára Sóley Jóhannsdóttir er listrænn stjórnandi Listahátíðar í Reykjavík en Björk er ein þeirra sem sýna mun á hátíðinni. Listahátíð í Reykjavík Listahátíð í Reykjavík verður sett klukkan tvö í dag en hátíðin stendur yfir til 14. júní. Alls eru viðburðir hátíðarinnar um sextíu talsins og flytjendur um þrettán hundruð en Björk Guðmundsdóttir er meðal listamanna sem koma fram á hátíðinni.
Listahátíð Reykjavíkur er haldin í þrítugasta og fimmta sinn en hún var fyrst haldin árið 1970. Hátt í sextíu viðburðir verða haldnir á sextán dögum þar sem um þrettán hundruð listamenn koma fram. Opnunarhátíðin fer fram í Hafnarhúsinu klukkan tvö í dag. „Þar opnar líka formlega sýning Karin Sander og á dagskrá eru ávörp og brot úr völdum viðburðum hátíðarinnar,“ segir Lára Sóley Jóhannsdóttir, listrænn stjórnandi Listahátíðar. „Svo nær opnunarhátíðin hápunkti þegar skólahljómsveitir Reykjavíkurborgar sameinast á Hörputorgi. Gestir í Hafnarhúsinu verða leiddir þangað og hljómsveitirnar koma spilandi víða að og sameinast í nýju verki eftir Samúel Jón Samúelsson,“ bætir Lára Sóley við. Magnað að fá Björk Klukkan sex í dag opnar sýning Bjarkar Guðmundsdóttur í Listasafni Íslands, samhliða sýningu James Merry sem Björk hefur unnið með lengi. „Þetta er alveg magnað, bæði að fá að sjá verkin hennar og hans James. Það er í samstarfi við Listasafn Íslands þannig að það er mjög stór viðburður.“ Dagskrá Listahátíðar í Reykjavík er fjölbreytt.Listahátíð í Reykjavík Hluti af sýningu Bjarkar er nýtt verk af væntanlegri plötu hennar. Lára Sóley segir hátíðina sannkallaða menningarveislu og nefnir sérstaklega klúbb Listahátíðar sem verður starfræktur í Iðnó þar sem fram fara daglegir viðburðir, tónleikar, hagyrðingakvöld og smiðjur. Spennt fyrir hátíðarlistamanninum Lára segist eiga erfitt með að velja þann viðburð sem hún er spenntust fyrir. „Við erum að fá hljómsveit trommuleikara frá Rúanda sem verða með frábæra sýningu á stóra sviðinu í Borgarleikhúsinu.“ Trommuleikarar frá Rúanda verða með tónleika í Borgarleikhúsinu.Listahátíð í Reykjavík Að sögn Hildar er töluvert af viðburðum hátíðarinnar opnir en nánari upplýsingar um miðasölu má kynna sér á heimasíðu hátíðarinnar. „Ég er líka mjög spennt því Hildur Guðnadóttir er hátíðarlistamaður þannig að við erum með þrjá viðburði sem tengjast henni auk listamannaspjalls. Ég er líka mjög spennt fyrir fjölskyldudagskrá í Elliðaárstöð og líka í Hörpu. Þannig að það er margt í boði.“
Menning Listahátíð í Reykjavík Björk Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Innlent Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Fleiri fréttir Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Telja íslenska birgja sátta og áfengisverð í fríhöfninni samkeppnishæft Sjá meira