Innlent

Valdimar kveður sáttur en segir síðustu daga krefjandi

Lovísa Arnardóttir og Gunnar Reynir Valþórsson skrifa
Valdimar Víðisson lætur senn af störfum sem bæjarstjóri í Hafnarfirði. 
Valdimar Víðisson lætur senn af störfum sem bæjarstjóri í Hafnarfirði.  Vísir/Vilhelm

Valdimar Víðisson, oddviti Framsóknarflokksins og fráfarandi bæjarstjóri í Hafnarfirði, segir síðustu daga hafa verið krefjandi og ýmislegt hafi verið sagt sem hann taki nærri sér. Um þúsund hafa mótmælt nýjum meirihluta og að Framsókn sé ekki með í honum. Nýr meirihluti kynnir sáttmála sinn í dag.

„En allir hafa rétt á sinni skoðun og að tjá hana. Ég sjálfur hef tamið mér það að sýna öllum virðingu í orði og verki, ég er orðvar og legg áherslu á heiðarleika og einlægni. Það eru eiginleikar sem ég er stoltur af og hafa einkennt öll mín störf hvort sem það er skólastjóri, bæjarfulltrúi eða bæjarstjóri,“ segir hann í færslu sem hann birti á Facebook-síðu sinni í morgun.

Gengur stoltur frá borði

Þar segir hann að senn líði að því að hann láti af störfum sem bæjarstjóri og að hann gangi stoltur frá borði.

„Við í Framsókn unnum afar góðan sigur í kosningunum þann 16. maí. Bættum við okkur 11% fylgi og einum bæjarfulltrúa. Framsókn mun halda áfram að vinna vel og af heilindum fyrir ykkur. Því getið þið treyst,“ segir hann og óskar nýjum meirihluta alls hins besta í þeirra störfum.

Hann stefni nú á nokkurra vikna frí og sé spenntur fyrir nýjum kafla.

„Ég kveð ykkur með hlýju, virðingu og bjartsýni fyrir hönd Hafnarfjarðar. Ég mun halda áfram að vera úti um allt í Hafnarfirði með ykkur Hafnfirðingum enda hvergi betra að vera.“

Viðburðarríkir dagar

Sjálfstæðisflokkurinn, Viðreisn og Samfylkingin hafa náð samkomulagi um meirihlutasamstarf í bænum og til stendur að kynna meirihlutasáttmála flokkanna á félagsfundum þeirra í dag. Í kjölfarið hyggjast oddvitar undirrita sáttmálann og kynna efni hans á blaðamannafundi í Hamranesi.

Meiri­hluta­viðræður í sveitarfélaginu hafa verið viðburðarríkar en fyrst stóð til að endur­nýja sam­starf Sjálf­stæðis­flokksins og Framsóknar­flokksins sem mynduðu meiri­hluta á síðustu tveimur kjörtíma­bilum. Þær viðræður fóru svo fljótt út um þúfur þar sem Valdimar Víðisson bæjarstjóri og oddviti Framsóknarmanna var sakaður um trúnaðarbrest. Í framhaldinu hittust fulltrúar Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Samfylkingar og náðu þau fljótlega samkomulagi sem kynnt verður formlega síðar í dag.

Þúsund mótmæla

Rúmlega þúsund manns hafa skrifað undir undirskriftarlista gegn nýju meirihlutasamstarfi. Rúm 30 þúsund búa í bænum.

Aðstandendur undirskriftalistans benda á að Framsókn hafi verið á meðal sigurvegara kosninganna og fullyrða að fjölmargir hafi kosið sérstaklega með það að markmiði að sjá áframhaldandi samstarf núverandi meirihluta. „Rödd kjósenda á að skipta máli við myndun meirihluta og við val á bæjarstjóra. Með undirskrift okkar lýsum við yfir andstöðu við þessa niðurstöðu og stuðningi við að Framsókn og Sjálfstæðisflokkurinn fari áfram með meirihluta í Hafnarfirði,“segir að lokum í yfirlýsingunni við undirskriftalistann.

Töluverðar breytingar urðu á fulltrúum í bæjarstjórn í kosningunum 16. maí. Samfylkingin missti tvo bæjarfulltrúa í kosningunum og bættu Framsókn og Viðreisn í stað þess við sig einum manni hvor.

Miðflokkurinn fékk einnig mann inn í bæjarstjórn en Sjálfstæðisflokkurinn missti bæjarfulltrúa og fór úr fjórum í þrjá. Sjálfstæðisflokkurinn, Viðreisn og Samfylkingin eru núna með sjö fulltrúa af ellefu í bæjarstjórn Hafnarfjarðar.


Tengdar fréttir

Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal

Valdimar Víðisson oddviti Framsóknar í Hafnarfirði segir ólíka túlkun á handabandi snurðan á þræði meirihlutaviðræðna. Hann telur þó alla vinna af heilindum og vonast til að Framsókn komist aftur að borðinu.

Bæjar­stjóri Hafnar­fjarðar fer yfir dramatíkina

Oddvitar Sjálfstæðisflokkanna í Reykjavík, Hafnarfirði og í Mosfellsbæ kanna nú allir forsendur fyrir meirihlutaviðræðum með Viðreisn. Við förum yfir helstu tíðindi úr meirihlutaviðræðum sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×