Innlent

Sjálf­stæðis­flokkur, Við­reisn og Sam­fylking mynda meiri­hluta í Hafnar­firði

Eiður Þór Árnason skrifar
Orri Björnsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins, Karolína Helga Símonardóttir, oddviti Viðreisnar og Hildur Rós Guðbjargardóttir, oddviti Samfylkingarinnar í Hafnarfirði.
Orri Björnsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins, Karolína Helga Símonardóttir, oddviti Viðreisnar og Hildur Rós Guðbjargardóttir, oddviti Samfylkingarinnar í Hafnarfirði.

Sjálfstæðisflokkurinn, Viðreisn og Samfylkingin hafa náð samkomulagi um meirihlutasamstarf í Hafnarfirði. Til stendur að kynna meirihlutasáttmála flokkanna á félagsfundum þeirra á morgun. 

Í kjölfarið hyggjast oddvitar undirrita sáttmálann og kynna efni hans á blaðamannafundi í Hamranesi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá oddvitum flokkanna þriggja í Hafnarfirði. 

Á síðasta kjörtímabili mynduðu Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn meirihluta í bæjarfélaginu. Samfylkingin missti tvo bæjarfulltrúa í kosningunum fyrir viku og bættu Framsókn og Viðreisn í stað þess við sig einum manni hvor. Miðflokkurinn fékk einnig mann inn í bæjarstjórn en Sjálfstæðisflokkurinn missti bæjarfulltrúa og fór úr fjórum í þrjá.

Kjörnir bæjarfulltrúar í bænum eftir nýafstaðnar kosningar.

Meirihlutaviðræður í Hafnarfirði hafa verið viðburðarríkar síðustu daga en skömmu eftir kosningar ákváðu bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins að slíta viðræðum við Framsóknarflokkinn. Vísuðu þeir til meints alvarlegs trúnaðarbrests.

Valdimar Víðisson oddviti og bæjarfulltrúar Framsóknar höfnuðu því svo alfarið að þeir hafi gerst sekir um trúnaðarbrest. Oddviti Sjálfstæðisflokksins hefur sagt að áður en viðræðum var slitið við Framsókn hafi samningar tekist um að Valdimar yrði næsti bæjarstjóri Hafnarfjarðar.

Oddvitar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Samfylkingarinnar tilkynntu svo á laugardag að þeir hafi byrjað formlegar viðræður um meirihlutamyndun. Vinna við málefnasamning væri þegar hafin og stefnt að því að kynna hann á þriðjudag.

Fréttin er í vinnslu. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×