Galin skattheimta ríkisstjórnarinnar Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar 23. maí 2026 14:32 Í fyrradag átti ég fund með þýskum samstarfsaðila okkar, sem við höfum unnið með árum saman. Viðkomandi selur pakkaferðir frá Þýskalandi til Íslands. Fundarefnið var upphaf framleiðslu- og sölutímabilsins fyrir árið 2027. Hann er orðinn ýmsu vanur þegar kemur að ófyrirsjáanleikanum sem hér ríkir, bæði hvað varðar gengi krónu og breytingar á rekstrarumhverfi ferðaþjónustu á Íslandi. Breytingar sem leiða nota bene alltaf til verðhækkana til neytandans - þ.e. ferðamannsins. Enda njótum við nú þess heiðurs að vera eitt dýrasta ferðamannaland í heimi, ef ekki það allra dýrasta. Þið eruð klikkuð Það er skemmst frá því að segja að ég þurfti að tilkynna um verðhækkanir fyrir árið 2027 eins og vanalega - en að líklega mætti einnig búast við virðisaukaskattshækkun á baðlón og nýju náttúru- og auðlindagjaldi, sem ég vissi reyndar ekkert hvernig yrði, hvar það yrði innleitt og hversu hátt það yrði. Samstarfsaðili minn hristi bara hausinn og sagði “þið eruð klikkuð”. Grafalvarleg staða Nýverið skrifaði Diljá Matthíasardóttir hagfræðingur SAF grein sem birtist á Vísi undir heitinu “Ísland verðleggur sig út af markaði”. Þar bendir hún á að samkvæmt niðurstöðum kannana upplifi sífellt hærra hlutfall ferðamanna að ferð til Íslands sé ekki peninganna virði. Það er grafalvarleg staða sem við við þurfum að staldra við og bregðast við. Ísland er og hefur alltaf verið dýr áfangastaður en nú virðist ákveðnum þröskuldi náð.. Agaleysi á vinnumarkaði og óhófleg skattheimta Ástæðurnar fyrir háu verðlagi hér á Íslandi eru margþættar. Ein af þeim er úrelt vinnumarkaðsmódel og agaleysi á vinnumarkaði, sem veldur því að laun á Íslandi hækka sífellt langt umfram svigrúm til launahækkana - sem síðan brýst út annars staðar í kerfinu - til dæmis í verðbólgu. Önnur stór ástæða er þungt og ófyrirsjáanlegt rekstrarumhverfi atvinnugreina og ekki síst ferðaþjónustu, sem hefur setið undir hrinu skattahækkana. Að hækka enn frekar skatta á útflutningsatvinnugrein í því efnahagsástandi sem við búum við núna er ekki bara dapurleg aðgerð, heldur beinlínis hættuleg. Að stefna rekstrargrundvelli atvinnugreinar á borð við ferðaþjónustu, sem teygir anga sína um allt land í voða, er í raun óforsvaranlegt. Horfur óvissar og stefnir í samdrátt Ofan á þetta allt eru horfur í ferðaþjónustu í heiminum mjög óvissar um þessar mundir. Stríðsátök við Persaflóa hafa valdið hækkunum á eldsneytisverði sem veldur hækkun flugfargjalda sem hefur bein áhrif á áfangastaði eins og Ísland. Auk þessa er von á sendingu frá Evrópusambandinu í formi aukinna umhverfisgjalda á flutninga með flugi vegna ETS-kerfisins sem leikur lausum hala. Horfur í sumar eru góðar en með haustinu virðast vera að birtast alvarlegar blikur á lofti. Linnulausar skattahækkanir En lítum stuttlega á nýlegar og fyrirhugaðar skattahækkanir á ferðaþjónustu, sem hafa haft og munu hafa gríðarlega slæm áhrif á samkeppnishæfni greinarinnar og þar með aðstöðu hennar til verðmætasköpunar um landið allt: ● Gistináttaskattur var hækkaður ríflega í byrjun árs 2025 og er nú 800 kr. fyrir hverja gistieiningu. ● Innviðagjöld á skemmtiferðaskip voru hækkuð í 2.500 kr.á hvern farþega í upphafi árs 2025. Nú hefur það hins vegar sýnt sig rækilega að það var skólabókardæmi um of mikla skattahækkun, sem snerist upp í andhverfu sína. Þetta gjald hefur nú verið lækkað í 1.600 kr. Víti til varnaðar. ● Hækkun virðisaukaskatts á aðgangseyri í baðlónum úr 11% í 24%. Hvenær er óljóst, en líklega í byrjun árs 2027. Að sögn ferðamálaráðherra (Bítið 21.05.2025) er þetta alls ekki skattahækkun, heldur eðlileg aðlögun að virðisaukaskatti á ferðaþjónustu í nágrannalöndunum - sem reyndar er kolrangt og auðvelt að sýna fram á. Þetta hringl veldur mikilli óvissu hjá allri ferðaþjónustunni. ● Innleiðing náttúru- og innviðagjalds, líklega um mitt ár 2027. Hér veit greinin ekkert - hvernig verður þetta innviðagjald, hversu hátt, hvar verður það innheimt, hvenær hefst innheimta og hvernig verður tekjunum varið? Líklegt má telja að þetta gjald verði hlutfallslega hátt. Hér verðum við sem seljum pakkaferðir til Íslands að nota spádómskúluna enn og aftur og vona að við sleppum með glóðarauga. Glórulaus vinstri vitleysa Miðað við núverandi stöðu ferðaþjónustu á Íslandi, getur það þá talist skynsamlegt að hækka skatta og gjöld á ferðamenn svona mikið á svona stuttum tíma? Er það líklegt að verðmætasköpun greinarinnar muni aukast með auknum álögum og að hún skili þar með meiri tekjum til ríkisins? Er ríkisstjórnin með þessu að stuðla að heilbrigðu rekstrarumhverfi, fjárfestingu, nýsköpun, nýjum störfum og arðsemi í ferðaþjónustu? Efla þessir skattar og þessi gjöld samkeppnishæfni greinarinnar, sem er yfirlýst markmið stjórnvalda? Svarið við öllum þessum spurningum er NEI og aftur NEI. Þetta getur bara talist glórulaus vinstri vitleysa. Höfundur er framkvæmdastjóri Kötlu DMI og fyrrverandi formaður SAF. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Bjarnheiður Hallsdóttir Ferðaþjónusta Mest lesið Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson Skoðun Halldór 29.08.26 Halldór Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson Skoðun The EU Referendum Dorrit Moussaieff Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Veistu hvaða sírenur syngja til þín? Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Það er sitthvað bogið við banana Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun Já fyrir íslenskuna! Logi Einarsson skrifar Skoðun Segðu ekki nei, segðu kannski, kannski, kannski Hólmar Örn Finnsson skrifar Skoðun Hverjum treystir þú? María Rut Kristinsdóttir skrifar Skoðun Spænskir strandveiðisjómenn til Íslands Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ryksugan hans Halldórs Svanhvít Aðalsteinsdóttir skrifar Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Barist fyrir veröld sem var Elías Þórsson skrifar Skoðun Við höfum tekið margar góðar ákvarðanir Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kjósum með opnum huga Kristín A. Árnadóttir skrifar Skoðun Um Kanada og Ísland Eliza Reid skrifar Skoðun Frístundamiðstöðvar lagðar niður, á hverjum bitnar það? Sigrún Ósk Arnardóttir skrifar Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Skoðun The EU Referendum Dorrit Moussaieff skrifar Skoðun Lokum ekki augunum fyrir tækifærum – segjum já og sjáum samninginn Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Fullveldi er ekki stofustáss María Kristín Gylfadóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar
Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar
Skoðun Lokum ekki augunum fyrir tækifærum – segjum já og sjáum samninginn Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar