Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Árni Sæberg skrifar 22. maí 2026 12:25 Tekið var á móti fyrstu vél United við hátíðlega viðhöfn í dag. Isavia United Airlines hóf í dag beint flug til Keflavíkurflugvallar frá Washington D.C. og var af því tilefni tekið vel á móti farþegum við komuna til Keflavíkurflugvallar. Í sumar mun United Airlines fljúga daglega á milli KEF og Dulles flugvallar. sem fjölgar valkostum ferðalanga, bæði hvað varðar þægindi og flugtengingar.
Í fréttatilkynningu þess efnis segir að daglegar ferðir til Washington muni fjölga valkostum ferðalanga, bæði hvað varðar þægindi og flugtengingar. „Það er mjög ánægjulegt að taka á móti fyrstu farþegum United Airlines frá Washington. United Airlines er mikilvægur samstarfsaðili og við hlökkum til að sjá áframhaldandi samstarf okkar styrkjast og vaxa á komandi árum. Sú ákvörðun að bæta Washington við sem nýjum áfangastað, samhliða Newark/New York og Chicago, endurspeglar traust United Airlines á Íslandi sem eftirsóttum áfangastað og undirstrikar vaxandi eftirspurn eftir ferðum til og frá landinu,“ er haft eftir Bjarna Páli Tryggvasyni, framkvæmdastjóra þjónustu og rekstrar á Keflavíkurflugvelli. United Airlines hafi flogið til Keflavíkurflugvallar frá árinu 2018 og muni í sumar einnig fljúga daglega frá tveimur öðrum flugvöllum, Newark/New York og Chicago O'Hare. „Við erum afar spennt að hefja okkar fyrstu flug milli Keflavíkur og Washington D.C., sem undirstrikar enn frekar mikilvægi Íslands innan alþjóðlegs leiðakerfis United. Sumarið 2026 munu viðskiptavinir okkar á Íslandi njóta enn fjölbreyttari ferðamöguleika og greiðra tenginga til yfir 50 áfangastaða í Ameríku í gegnum tengistöð okkar í Washington D.C. Þá munu bandarískir ferðalangar einnig fá fleiri möguleika til að ferðast til Íslands og upplifa náttúrufegurð landsins, þar á meðal Bláa lónið, miðnætursólina, svartar sandstrendur og fleira,“ er haft eftir Amit Badiani, yfirmanni sölu fyrir Afríku og Evrópu utan leiðakerfis hjá United Airlines. United Airlines muni fljúga daglega til og frá Keflavíkurflugvelli til Washington Dulles International Airport fram til 23. september. Komutími samkvæmt flugáætlun sé 8:30 og brottfarartími 11:30.
Flug Keflavíkurflugvöllur Bandaríkin Ferðalög Mest lesið Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Sorpa lætur sautján róa Viðskipti innlent Erlent félag kaupir Samskip Viðskipti innlent Guðný Helga tekur við af Haraldi Viðskipti innlent Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Viðskipti innlent Bjóða fjórðungi starfsfólks Microsoft starfslokasamninga Viðskipti erlent Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Viðskipti innlent Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Viðskipti innlent Greiða hundruð milljóna króna sekt Viðskipti innlent Norskir fjölmiðlar í hart við Meta Viðskipti erlent Fleiri fréttir Erlent félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Sjá meira