Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Árni Sæberg skrifar 20. maí 2026 10:51 Bera er móðurfélag Ölgerðarinnar. Vísir/Vilhelm Sjö stjórnendur hjá Beru, móðurfélagi Ölgerðarinnar, hafa nýtt kauprétti að samtals 12.825.000 nýjum hlutum í félaginu, fyrir alls 83,1 milljón króna. Stærsti eigandi félagsins, Bóksal, hefur þegar keypt alla hlutina af stjórnendunum fyrir alls 194,4 milljónir króna. Þá nýttu sex aðrir kaupréttarhafar kauprétti að 5.737.500 hlutum í félaginu en ekki liggur fyrir hvort þeir hafi selt hluti sína, þótt telja verði það líklegt.
Í tilkynningu Beru til Kauphallar í morgun segir að vegna nýtingar kauprétta þrettán kaupréttarhafa hafi stjórn nýtt heimild sína samkvæmt samþykktum félagsins, til að hækka hlutafé félagsins í þeim tilgangi að mæta nýtingu kaupréttanna. Hlutafé félagsins verði því hækkað um 18.562.500 krónur og muni eftir hækkun standa í 2.884.377.913 að nafnverði, með útgáfu nýrra hluta. Hver hlutur sé að fjárhæð ein króna og hverjum hlut fylgi eitt atkvæði. Í annarri tilkynningu Beru til Kauphallar er greint frá viðskiptum stjórnenda. Um sé að ræða kaup stjórnenda á grundvelli nýtingar kauprétta annars vegar og hins vegar sölu stjórnenda til Bóksals ehf. Bóksal ehf. er í eigu hjónanna Boga Þórs Siguroddssonar og Lindu Bjarkar Ólafsdóttur og er stærsti eigandi Beru, með rúmlega 11 prósenta hlut. Samkvæmt tilkynningu keyptu stjórnendur á verðinu 6,48 krónur á hlut og seldu á 15,2 krónur en kaupréttirnir hafi verið veittir árið 2021. Eftirfarandi stjórnendur hafi keypt 2.250.000 hluti á 14,48 milljónir króna og selt á 34,2 milljónir: María Jóna Samúelsdóttir, framkvæmdastjóri Danól Guðmundur Pétur Ólafsson, sviðsstjóri sölu- og markaðssviðs Ölgerðarinnar Gunnlaugur Einar Briem, sviðstjóri reksturs og vörustýringar Beru Jón Þorsteinn Oddleifsson, forstjóri Beru Óli Rúnar Jónsson, framkvæmdastjóri Ölgerðarinnar Þá hafi eftirfarandi stjórnendur keypt 787.500 hluti á 5,1 milljón króna og selt á 12 milljónir króna: Júlía Eyfjörð Jónsdóttir, sviðsstjóri framleiðslu- og tæknisviðs Ölgerðarinnar Óskar Ingi Magnússon, fjármálastjóri Beru
Ölgerðin Kauphöllin Mest lesið Hækka stýrivexti aftur Viðskipti innlent Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Viðskipti innlent Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Viðskipti innlent Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Viðskipti innlent Að læra af fimm mistökum Steve Jobs Atvinnulíf „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Viðskipti innlent Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Viðskipti innlent Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Viðskipti innlent Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna Viðskipti innlent „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Engar hópuppsagnir í apríl „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Þórir og Ómar ganga til liðs við Vettvang Farangursvagni ekið utan í flugvél og flugferð aflýst María nýr stjórnarformaður SVEIT Ný Lindex verslun opnuð í Kringlunni Ráðinn forstjóri Nathan Ekkert verður af sameiningu lífeyrissjóðanna Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Spá 0,25 prósentustiga hækkun stýrivaxta Fyrsti ársfjórðungur hafi verið góður í rekstri Kviku banka Úr Símanum í rörin Spá 4,9 prósenta verðbólgu í maí Telur forstjórann reyna að fara fram hjá stéttarfélaginu „Ekki einhverjir krúttlegir krakkar að leika sér í tölvum“ Yfirlýsing Icelandair kom flatt upp á flugmenn Icelandair grunar flugmenn um græsku Hæstiréttur tekur mál Kvikutoppanna ekki fyrir Bakkavararbróðir kaupir í Kviku fyrir milljarða Gengi Alvotech tekur kipp Sjá meira